LG V20

eftir Jón Ólafsson

Í síðasta mánuði kynnti LG nýtt símtæki sem heitir einfaldlega V20 en reiknað er með að hann komi í sölu seinna í þessum mánuði. Eins og er bendir ekkert til þess að þessu sími komi í sölu í Evrópu en það getur þó mögulega breyst.

Hvað svo sem því líður þá er Lappari.com með eintak til prófunar og höfum við látið hann finna fyrir því síðustu 2 vikurnar. Því miður var hann ekki í kassa þegar við fengum hann og því ekki mögulegt að taka upp afpökkunarmyndband að þessu sinni.

Við höfum almennt verið ánægðir með þá LG síma sem við höfum prófað eins og til dæmis G2 og G3, verður áhugavert að sjá hvernig LG V20 kemur til með að standa sig en miðað við vélbúnað, þá ætti þetta að vera úber tæki. Hvað er annað hægt með tvær aðal myndavélar, tvo skjái, fjögur DAC og hægt að keyra tvö öpp á sama tíma (split screen). LG V20 er einnig fyrsta símtækið sem kynnt er með Android 7.0 Nougat en það eitt og sér er áhugavert því LG nær að koma á markað síma með Nougat áður en Google Pixar kemur í sölu.

 

Hönnun og vélbúnaður

Það er einfalt að útskýra fyrstu upplifun mína þegar tækið var handleikið: VÁ…. vá hvað þetta er sexy tæki. Ég er nokkuð viss um að aðrir framleiðendur munu horfa til þessa símtækis vel fram á næsta ár, bara til að ná því að gæðum og búnaði.

 

lgv20_3

 

Það má samt segja að það sé tvennt sem heillaði mig strax við LG V20 en fyrir það fyrsta er það vélbúnaðurinn sem ég var búinn að lesa um áður en ég fékk tækið í hendina. Hitt sem kom mér nokkuð á óvart og er það útlit og hönnun á símtækinu sjálfu en það er greinilegt að hér er um að ræða vel smíðað tæki og útpælda hönnun. Línur sem mætast á þann hátt að nær ómögulegt ætti að vera fyrir ryk, hár og annað eins að komast innundir skjáinn. Framhlið er svo til öll þakin af þessum glæsilega skjá en hann nær alveg til hliðanna og nær svo til alveg að toppi og botni símtækisins, hef sjaldan séð svona fallega útfærslu á framhlið símtækis.

 

lgv20_8

 

Á bakhlið eru einnig myndavélar, flash og fingrafaraskanni sem er einnig powertakki. LG heldur þannig í þessa venju sína að hafa power takka á bakhlið, ákvörðun sem ég hef lengi furðað mig á en þessi staður venst síðan alltaf eftir smá notkun. Á vinstri hlið eru takkar til að hækka og lækka í tækinu en þó að þeir séu frekar litlir þá er einfalt að finna þá án þess að ströggla mikið við það.

Bakið er úr áli og einfalt er að opna það með einum sér takka sem er néðarlega á hægri hlið, þetta állok nær svo til alveg upp að toppi og niður að botni. Frábært að komast með einföldu móti í nanoSIM og microSD raufina sem styður 256 GB minniskort, ásamt því að einfalt er að skipta út rafhlöðu ef þarf.

 

lgv20_9

 

 

Síminn er merkilega nettur í hendi og vasa þó að hann sé alls ekki lítill enda 5,7″ að stærð, hann virkar samt einhvern veginn mun nettari en svona stór símtæki eru almennt. Eins og fyrr segir er hann vel búinn vélbúnaðarlega, hann laggar ekkert í neinum aðgerðum í stýrikerfinu eða þeim forritum og leikjum sem ég prófaði, þetta er ekki alveg sjálfgefið með Android síma.

LG V20 er með 4GB vinnsluminni og keyrir á Snapdragon 820 kubbasettinu frá Quadcomm sem er það vinsælasta í flagskipum þessa dagana. Símtækið er með Adreno 530 skjástýringu ásamt því að vera með fjórkjarna örgjörva, tveir sem keyra á 2.15 GHZ og aðrir tveir sem keyra á 1.6 GHz.

 

Helstu stærðir:

  • Hæð 159.7 mm
  • Þykkt 7.6 mm
  • Breidd 78.1 mm
  • Þyngd 174 gr

Til að taka útlitið saman þá er ég mjög ánægður með útlit og almennt hönnun á LG V20, eitt fallegasta símtækið sem ég hef prófað lengi, frágangur er vandaður, það fer vel í hendi og virkar sterklegt.

 

 

Tengimöguleikar

Síminn er eins að önnur flagskip hlaðinn ýmiskonar aukabúnaði og leiðum til þess að tengjast öðrum hlutum. Þar má nefna bluetooth 4.2 (með aptX fyrir hljóð), NFC, Infrared blaster, fingrafaraskanna til aflæsingar, hröðunarmælir (e.accelerometer), snúðvísir (e.gyroscope) og GPS svo að eitthvað sé nefnt. LG V20 styður ýmsa þráðlausa staðla eins og t.d. 802.11 a/b/g/n/ac og styður vitanlega 4G (LTE CAT12 600Mbps niður og 150Mbps upp).

 

lgv20_5

 

Síminn er með USB-C tengi neðst á símanum en með því þá er t.d. mun einfaldara að stinga tækinu í samband við tölvu eða hleðslutæki því það skiptir engu máli hvernig snúran snýr. Þar er einnig 3.5mm tengi fyrir heyrnartól en þó ég hefði sjálfur hefði kosið að hafa það efst á tækinu þá má maður vera þakklátur fyrir að hafa það.

 

lgv20_7

 

 

Rafhlaða og lyklaborð

Endingin á LG V20 kom mér nokkuð á óvart samanborið við aðra Android síma með svipuðum vélbúnaði. En fyrsti 1-2 dagana var hún bara þokkaleg en eftir það þá náði ég léttilega að klára fullann vinnudag og vel það. Eins og venjulega þegar ég prófa síma þá var ég ekki að huga að neinum sérstökum rafhlöðusparnaði þegar kemur að notkun. Ég setti upp öll venjuleg forrit sem mér datt í hug eins og Facebook, Twitter, Skype, Instagram, Snapchat, ýmsa leiki, þrjá EAS tölvupóst reikninga en við frekar mikla notkun í þessum prófunum endist rafhlaðan út daginn eins og fyrr segir og var yfirleitt á milli 20-40 % eftir 14 tíma notkun. Fæstir Android símar sem ég hef notað hingað til hafa búið yfir annarri eins rafhlöðuendingu, að minnsta kosti ekki meðan ég hafði þá í minni umsjá.

LG er nota 3200mAh rafhlöðu í V20 sem er útskiptanleg eins og fyrr segir en hér gefur að líta uppgefinn endingartíma rafhlöðunna miðað við prófanir hjá GSMArena.

  • Tal yfir 3G: 20:17 tímar
  • Netvafr: 7:39 tímar
  • Myndbandsafspilun: 8:32 tímar

LG V20 styður ekki þráðlausa hleðslu

 

 

Hljóð og mynd

Skjárinn í þessum síma er náttúrlega ekkert annað en magnaður en hann er bjartur, skýr og snertivirkni er ótrúlega góð. Skjárinn er 5,7″ IPS LCD með Gorilla Glass 4 rispuvörn og styður QHD 1440 x 2560 upplausn við 513 pixla á tommu (513 ppi). Allar myndir, letur eða kvikmyndir eru kristaltærir á þessum skjá, smá vandræðalegt en ég hef ekkert neikvætt að segja um skjáinn og það gerist ekki oft.

LG V20 er með auka skjá á framhlið sem sýnir tilkynningar og/eða flýtivísanir í ýmis forrit en hann er 2.1″ að stærð og með 160 x 1040 upplausn. Hélt að þetta væri óþarfa stælar þangað til ég prófaði, mjög gagnlegt og líklega til þess valdandi að rafhlöðuending stórlagast þar sem ekki er kveikt á stórum og björtum skjá til að sýna þessar upplýsingar.

 

lgv20_2

 

LG V20 er með frábæra hátalara (miðað við síma) og hugbúnað til að stýra þeim sem gerir það að verkum að hljómurinn úr símtækinu er góður, eins og venjulega mundi ég samt alltaf velja mér heyrnartól en þeir sinna samt starfi sínu með sóma. Hljóðafspilin er mjög tær en DAC ræður við að spila 32-bit/192KHz en tækið er með B&O (Bang and Olufsen) Play vottun. Ég prófaði tónlistar afspilun með Sennheiser og Bose heyrnartólum og var öll afspilun óaðfinnanleg, kristaltær og hljómmikil.

DAC ræður líka við 24-bit/192KHz upptöku og er með tækni sem kallast active noise cancellation sem vinnur að því að hreinsa umhverfishljóð eins og vind frá þegar talað er í síma eða tekið er upp hljóð með honum. Það er hægt að taka upp hljóð allt að 132dB án bjögunar í óþjöppuðum WAV eða þjöppuðu FLAC svo eitthvað sé nefnt.

 

Myndavélin kom mér skemmtilega á óvart en hún var hraðvirk, einföld og skilaði mér ágætis myndum við flest tækifæri, hvort heldur sem er ljósmyndataka eða myndbandsupptakan. Helst ber að nefna hversu ótrúlega snögg og þægileg myndavélin er í vinnslu, mjög fljótlegt að kveikja á vélinni og byrja að mynda en þetta er lykilatriði þegar ná þarf góðri tækifærismynd. Það er ekki sérstakur myndavélatakki sem er vissulega vonbrigði en þetta er orðin regla frekar en undantekning með nýleg símtæki.

Fram myndavélin (fyrir Selfie) er 5MP (f/1.9) sem getur tekið bæði venjulegar (83°) myndir ásamt því að geta tekið (120°) wide myndir. Vélin er með auto HDR og er mjög góð í öll myndsímtöl og sjálfmyndir, á tíðum fannst mér hún á pari við aðalvélarnar við viss birtuskilyrði.

 

lgv20_6

 

Aðal vélin er tvöföld en önnur er 16 MP (f/1.8 og 75° venjuleg) meðan hin er 8 MP (f/2.4 og 135° wide) og tekur hún mjög skarpar myndir við góð birtuskilyrði ásamt því að vera furðugóð þegar birtan minnkar. Önnur er sem sagt hefðbundin meðan hin er víðlinsu. Myndavélin er hlaðin auka krúsidúllum eins og 4K upptöku, GEO merkingu, snertifocus, andlits/bros nema (fyrir focus), panorama og HDR svo eitthvað sé nefnt. Mér þótti vélin samt stundum lenda í vandræðum með að focusa þegar aðdráttur er notaður og í myndbandsupptökum. Helst var það í lengri upptökum þar sem mikið var um að vera en þá færði síminn focus af viðfangsefninu yfir á eitthvað annað sem var í jaðrinum sem endaði oftar enn ekki í hálfónýtri upptöku.

Litir voru annars afbragðsgóðir og við góð birtuskilyrði var mjög gaman að skoða dýptina á litunum sem myndavélin náði að beisla. Myndavélin er með tvöföldu LED flash og býður uppá ýmsar mismunandi stillingar og er nokkuð einfalt er að fara inn í frekari stillingar og leika sér með ISO stillingar, næturstillingar, manual HDR stillingu sem getur gefið myndum meiri dýpt og reyndar oft á tíðum eilítið ýktan blæ, sem er hugsanlega það sem menn eltast við með HDR myndatökum. Myndbandsupptakan í vélinni er góð og uppá upptöku í eftirfarandi upplausn

 

lgv20_10

 

  • 2060p við 30 fps
  • 1080p við 30 fps
  • 720p við 120 fps

Myndbandsupptaka er hraðvirk og einföld í notkun en hægt er að leika sér með HDR og dual-video upptökur og eru gæðin á hljóðupptöku eftirtektarverð. Síminn getur tekið hljóð upp í 24-bit/192KHz stero upptöku. Í samanburði við iPhone 6s Plus sem ég er með hér hjá mér, þá finnst mér myndavélin í LG V20 mun betri, hún er fljótari að starta sér upp, fljótari að focusa og tekur skarpari myndir og þá sér í lagi ef birtuskilyrði minnka. Kannski væri betra að bera hann við Galaxy S7 eða iPhone 7 en ég er því miður ekki með þess lags tæki við höndina eins og er.

 

 

Margmiðlun og leikir

Tónlistarspilarinn sem kemur með símanum er auðveldur í notkun og þægilegt að skruna í gegnum hann. Þar er hægt að stilla, breyta og bæta hljóðið sem gæti hentað fyrir þá sem vilja. Myndbandsafspilun í símanum er mjög þægileg og spilar síminn flest þau form af myndböndum sem finnast á stafrænu formi í dag. Eins og með aðra Android síma þá er ekkert mál að sækja sér önnur og mögulega betri forrit til að leysa media afspilun ef þurfa þykir.

 

lgv20_1

 

LG býður uppá sérstaka rafhlöðustillingu fyrir leiki og einnig er hægt að sérstilla t.d. FPS fyrir hvern leik fyrir sig til að hámarka endingu rafhlöðu. LG V20 tækið sem við prófuðum er með 32GB geymslurými sem nýtist undir stýrikerfi, ljósmyndir og annað margmiðlunarefni en eins og fyrr segir þá er hann með rauf fyrir Micro-SD kort sem styður allt að 256 GB minniskort sem er ekkert slor…

Það er líklega nauðsynlegt að kaupa minniskort strax ef nota á símann við myndatökur, sérstaklega ef nota á 1080p eða betra við myndbandsupptökur sem taka mikið geymslupláss.

 

 

Hugbúnaður og samvirkni

LG V20 kemur með Android 7.0 Nougat sem er nýjasta útgáfan af stýrikerfinu, að venju hafa LG sett sitt eigið viðmót yfir stock Android kerfið í V20 og heitir viðmótið Optimus UI 5.0. Þetta viðmót breytir tækinu töluvert frá stock Android eins og Google hannar það en ég er ekki viss um að það sé nokkuð svo slæmt. Þessar krúsídúllur eru reyndar stundum á kostnað framleiðni og þvælast fyrir venjulegu vafri um símann en ég vandist þessu LG viðmóti mjög hratt og stöggla við að finna eitthvað neikvætt um það að segja.

Android er með öllum helstu möguleikum sem snjallsímanotendur geta vænst og hefur þroskast ansi vel síðustu árin, kerfið er orðið mun stöðugra og hraðvirkara en það var. Ef notendur vantar einhver forrit til viðbótar við grunnvirkni sem er innbyggð þá eru allar líkur á að það finnist í Google Play Store, sem er forritamarkaður Google en hann er pakkaður af forritum og þjónustum sem er hægt að sækja ókeypis eða kaupa.

 

lgv20_4

 

Í þann tíma sem ég hef haft LG V20 til afnota þá hefur hann fyrst og fremst verið notaður sem vinnutæki. Það eru öll helstu Microsoft forrit eins og Office pakkinn og OneDrive löngu komin á Android og virka vel þar. Ég notaði Outlook appið til að samstilla fjögur EAS netföng, Gmail auk þess sem ég setti upp Simnet póstinn minn á hann. Öll vinna í póstumhverfi er mjög einföld og þægileg og á pari við það besta sem ég hef prófað.

 

 

Niðurstaða

LG G20 er frábær Android sími með endingargóða rafhlöðu, hann er gullfallegur og fer vel í hendi. Símtækið er sterkbyggt að finna og býr yfir öllum þeim helstu kostum sem maður getur reiknað með í fullorðins Android snjallsíma, ég vona svo sannarlega að LG komi til með að bjóða upp á þennan síma hér á Íslandi enda mjög öflugt tæki hér á ferð.

LG V20 er með frábærum skjá en hann einn af stóru kostunum við þetta símtæki, myndavélin kom mér einnig skemmtilega á óvart en LG hafa einbeitt sér að því að gera grunnkosti myndvélarinnar góða, frekar en að troða inn óþarfa krúsidúllum sem þvælast bara fyrir notendum. Fyrir áhugamenn er samt gott að vita af því að einfalt er að fara inn í stillingar og stilla vélina handvirkt eins og hæfir hversu sinni.

Ég hef líklega sagt þetta áður en LG V20 er með fallegri símtækjum sem ég hef prófað og mögulega einn besti alhliða Android síminn sem ég hef prófað hingað til…..

 

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira