Þegar minna er meira
Gagnaöryggi og geymslupláss eru ekki lengur bara hlutir sem stórfyrirtæki og atvinnuljósmyndarar hugsa um. Á tímum 4K myndbanda, ljósmynda í mikilli upplausn og vaxandi kröfu um að eiga afrit af öllu, er öflugt NAS orðið hjartað á mörgum nútímaheimilum og hjá smærri fyrirtækjum. Þetta á sér í lagi við þar sem gagnamagnið hefur aukist mikið á sama tíma og skýjageymsla hefur hækkað í verði – og gæti hækkað meira í framtíðinni.
Fyrir þá sem ekki vita: NAS stendur fyrir Network Attached Storage. Í grunninn er þetta sérhæfð gagnageymsla sem er tengd beint við tölvunet (LAN) í stað þess að vera tengd beint við eina tölvu með USB. Öll tæki á sama neti geta þar af leiðandi nálgast hana samtímis.
Einfaldleiki vs Appfitu og öryggisógnir
Þegar risarnir á markaðnum, QNAP og Synology, keppast við að troða sem flestum fídusum í tækin sín, fer Ubiquiti aðra leið með UNAS línuna sína.
Í mörg ár hef ég reitt mig á QNAP eða Synology NAS gaura, þetta eru frábær tæki á margan hátt sem hafa reynst mér vel bæði heima fyrir og hjá viðskiptavinum. Helsti kostur þeirra og líka ókostur að mínu mati, er að þau geta hýst vefþjóna, tölvupóstþjóna, spjallrásir, leikaservera og keyrt sýndarvélar, allt á sömu græjunni.
Það er sannarlega kostur að hafa svona all-in-one lausn en á sama tíma er það vandamál, a.m.k. miðað við mína notkun.
Öryggissjónarmið
NAS er yfirleitt settur upp einu sinni og keyrir svo áfram án þess að það þurfi að fikta mikið í stillingum. Þetta er ekta svona „out of sight, out of mind” tæki. Ef það er ekki stillt sérstaklega í upphafi er líklegt að NASinn uppfæri hvorki stýrikerfi né þjónusturnar sem eru keyrandi á honum.
Með hverri þjónustu sem keyrð er stækkar árásarflöturinn (attack surface) fyrir óprúnta aðila. Síðustu ár hafa komið ítrekaðar fregnir af ransomware árásum sem nýta sér veikleika í þjónustum sem þessum. Persónulega hef ég aðstoðað bæði fyrirtæki og einstaklinga við að reyna að endurheimta gögn eftir slíkar árásir, oftast án árangurs.
Þetta fékk mig til að spyrja sjálfan mig: hvað vil ég eiginlega fá út úr svona gagnageymslu? Þetta er það helsta sem mér datt í hug:
- Stapíl gagnageymsla með RAID valkostum og sveigjanlegri geymsluuppsetningu (Storage Pools).
- Fjöldi spindla skiptir mig máli þar sem ég er með 10Gb localnet og ætla að nota hefðbundna diska.
- Engar auka þjónustur keyrandi á tækinu nema ég hafi kveikt á þeim sjálfur í upphafi.
- Reglulegar uppfærslur og stuðningur frá framleiðanda eitthvað inn í framtíðina.
- Active Directory samþætting – ég vil notendastýra möppur þaðan, bæði aðgengi að sameignarsvæðum og persónulegum möppum.
- Staðbundin stjórnun – tækið á að geta starfað án þess að þurfa að tala við ský eða AD, með local notendur og aðgangsstýringu ef þess þarf.
Hönnun
Ég hef hingað til ekki getað fjallað um vörur frá UniFi án þess að minnast á hversu falleg þau eru, sér í lagi þegar þau eru komin í snyrtilegan rekka en UNAS Pro 8 er engin undantekning á því. Hann er vandaður að finna, sterklegur úr burstuðu áli og passar fullkomlega í 19″ skáp (tekur 2U pláss).
Framhliðin er stílhrein en þar eru átta sleðar fyrir diska, eitt LED ljós og og reset takki. Á bakhlíð eru síðan tvo slott fyrir NVMA diska fyrir flýtiminni (cache), 1x 10Gb RJ45 tengi, 2x 10Gb SFP+ tengi og hot-swap powersupply og slot fyrir annað slíkt fyrir redudency. Ekkert óþarft á framhlíðinni, allt það sem máli skiptir á bakhlíðinn
Vélbúnaður og tengimöguleikar
UNAS Pro kom upphaflega á markaðinn fyrir nokkrum árum – ég prófaði hann þá og líkaði mjög vel. Seinna hluta síðasta árs kom UniFi svo með mun öflugari UNAS Pro 8 (og litla bróðir hans, UNAS Pro 4) og vitanlega varð ég að prófa stóra bróðir. Það er smá munur á þeim vélbúnaðarlega sem hægt er að sjá hér:
Samanburður á UNAS Pro línum á Ubiquiti Store Europe

Helstu kostir UNAS Pro 8:
- 10Gb tengimöguleikar: Tækið er eins og fyrr segir með bæði 10Gb RJ45 og tvö SFP+ tengi. Hraðinn er það sem búast má við á 10Gb neti en að flytja hundruð gígabæta af 4K upptökum tekur mun skemmri tíma en áður.
- Tveir aflgjafar (Redundancy): Hægt er að setja upp tvo aflgjafa samtímis (Hot Swap). Fyrir vinnuumhverfi þar sem niðurtími er ekki í boði er þetta gott öryggisnet.
- Tool-less diskskúffur: Þú þarft ekki skrúfjárn til að skipta um diska. Þetta hljómar kanski sem smáatriði en þegar þú ert að meðhöndla 8 diska telur allt svona.
Diskarnir
Þegar kemur að því að velja diska í NAS sem á að vera í gangi allan sólarhringinn eru ódýrir neytendadiskar ekki valkostur. Ég tók fjóra WD Gold 8TB diska sem ég átti í öðrum NAS og setti RAID 5 geymslulaug (storage pool). Þeir eru hannaðir fyrir 24/7 notkun og að mínu mati með ansi meira endingartakmark (TBW) en hefðbundnir Red eða IronWolf diskar. Til viðbótar notaði ég Seagate IronWolf 8TB sem varadisk (hot spare). Hugsunin með hot spare er að ef einn diskur bilar þá grípur kerfið sjálfkrafa til varadisks. Til viðbótar var ég með tvo aðra diska úr Plex þjóni sem ég keyri án RAID (stand alone) enda bara gömul afrit af DVD diskum sem ég á og skipta mig litlu máli. Síðan fann ég tvo NVMe diska sem UNAS notar fyrir skyndiminni (cache) til að auka afköst við smærri skráarfærslur.
Hugbúnaður: UniFi OS – Network Attached Storage
Hér verður skilnaðurinn við QNAP og Synology hvað skýrastur samkvæmt minni upplifun. UniFi OS viðmótið er orðið mjög straumlínulaga í gegnum alla vörulínuna hjá þeim og á UNAS er þar engin undantekning. Það eru engar App verslanir þar sem þú getur hlaðið niður forritum og tólum frá þriðja aðila.
Fyrir mér þá má almennt segja einfaldleiki = öryggi.
Ubiquiti nálgast NAS-heiminn á sama hátt og þeir nálgast netkerfin sín, markmiðið er einsleitt viðmót sem er eins útum allt. Þú sérð geymslurýmið þitt í sama viðmóti og þú stýrir þráðlausa netinu og myndavélunum. Svo ef þú hefur komið nálægt Unifi þá er allt nokkuð kunnulegt að sjá.
RAID uppsetningin var einföld og sjálfvirk að miklu leyti. Ég veldi hversu mikið öryggi ég vildi (vörn gegn 1 eða 2 biluðum diskum) og kerfið sér um afganginn. Ég hef ekki rekist á flókin „Storage Pool” vs. „Volume” valkosti sem geta ruglað.

**** Verk í vinnslu – ekki dæma of harkalega ****
Eftir nokkrar vikur í notkun er ég kominn að þeirri niðurstöðu að þetta er nákvæmlega það viðmót sem þarf undir einfalda og öfluga gagnageymslu. Örgjörvinn er ekki lengur að eyða orku í að keyra 50 bakgrunnsforrit sem ég nota aldrei, hann einbeitir sér að því að skrifa og lesa gögn enda það hans eini tilgangur í NAS. Kerfið er snöggt og snappí, viðmótið er laggar ekkert og einfalt að sjá nákvæmlega hvað er í gangi á hverjum tíma.
Hvað varðar skráaþjónustur þá er SMB virkjað sjálfkrafa og NFS og Rsync eru í boði fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Time Machine stuðningur er líka til staðar fyrir Mac notendur.
Það sem mér þótti fróðlegt er innbyggður skýja stuðningur en hægt er að taka afrit af Office 365 umhverfi fyrirtækja niður á UNAS, afritun sem svo margir gleyma og halda að það sé bara nóg að nota skýið og þar með þurfi ekkert að hugsa út í afritun. Síðan er svokölluð Offsite afritun þar sem þú getur speglað það sem er á UNAS yfir á annan NAS, CIFS/SMB stæðu eða á skýja þjónustu eins og t.d. OneDrive, Google Drive, Amazon S3, Dropbox, Backblaze B2 og Wasabi.
Að lokum er hægt að dulkóða hvern geymslupól (Storage Pool) fyrir sig en krafan er að minnsta kosti 12 stafa lykilorð. Þetta þýðir að jafnvel þótt einhver nái aðgengi að tækinu og dragi diskana út, þá kemst hann ekki að gögnunum.
Active Directory og notendastýring
UNAS Pro 8 getur tengst Active Directory og þar með leyft AD notendum að nálgast möppur án þess að þurfa að búa til sér usera locally á tækinu. Það er líka hægt að nota staðbundna notendur, sem þýðir að tækið getur keyrt alveg sjálfstætt án AD eða skýjaþjónustu. Þetta gefur sveigjanleika, hvort sem um er að ræða heimili eða fyrirtæki með Windows umhverfi.
Ég leyfi einni grúppu í AD að lesa og skrifa á sameignarsvæði og síðan eru notendur með sér drif og allt mappað með GPO.
Hraðaupplifun
Á 10Gb neti mælist lestur úr RAID 5 pólnum stöðugt yfir 800 MB/s og skrif í kringum 600–700 MB/s. Vitanlega fer hraðinn svolítið eftir því hvernig skrár ég er að flytja en þetta er allt nálægt þeim takmörkuðum sem hefðbundnir spindladiskar hafa. Við flutning á stórri 4K kvikmyndasafns möppu (um 400GB) tók ferlið mun skemmri tíma en áður. Ég hef allavega ekki rekið mig á að UNAS Pro 8 sé flöskuháls í mínum prófunum, hef frekar verið að rekast á fjöldi spindla og almennan diskahraða sem takmörkun þegar kemur að hraða.
Niðurstaða: Fyrir hvern er UNAS Pro 8?
Eftir að hafa skipt yfir frá hefðbundnum NAS, finn ég fyrir töluverðum hraða mun og jú, hugarró útfrá gagnaöryggi. Ég þarf allavega ekki lengur að vakna við tölvupósta um nýja veikleika í einhverju margmiðlunar appi sem fylgdi með gamla QNAP tækinu mínu og að ég þurfi að uppfæra strax.
Ef þú vilt keyra Plex, Dockera, vefþjóna og tölvupóst beint á NASinum þínum, er þetta tæki líklega ekki fyrir þig. Ég keyri Plex á öðrum þjóni og nota UNAS Pro 8 sem undirliggjandi geymslu í gegnum möppuð drif. Plex þjónninn fær allan þann hraða og stöðugleika sem hann þarf, á meðan geymslan er í höndum tækis sem er hannað til þess eins að hýsa gögn.
Kostir:
- Góð smíði, burstuð ál, passar í 19″ rekka
- 10Gb tenging – hraðinn er það sem búast má við á 10Gb neti og sér í lagi ef bæði SFP+ eru aggregeituð.
- Einfalt stýrikerfi án bloatware
- Active Directory samþætting virkar vel
- Passar vel inn í UniFi umhverfi
Gallar:
- Ekki ætlað til að keyra þriðja aðila öpp, ef þú vilt það þarftu að leita annað
- Nýtist best í UniFi umhverfi, þótt það sé ekki skilyrði