OnePlus 6T

eftir Jón Ólafsson

Fyrir um tveimur mánuðum síðan, fengum við hér á Lappari.com OnePlus 6T snjallsíma lánaðan frá Tölvutek. Ég hlakkaði nokkuð mikið til að leika mér aðeins með OnePlus enda var ég mjög ánægður aðra OnePlus síma sem ég hef áður prófað.
Tölvutek var reyndar ekki fyrsta fyrirtækið sem ég hugsaði til þegar ég leitaði mér að snjallsíma en þetta er skemmtileg viðbót við frábært úrval af allskonar tæknibúnaði. Þegar þessi umfjöllun fór í loftið þá er símtækið reyndar komið í sölu hjá Símanum, Nova og Vodafone.

Hér má sjá afpökkun á tækinu.

Hönnun og vélbúnaður

Eftir að hafa handleikið OnePlus 6T í stutta stund þá varð ég strax mjög hrifinn af tækinu, þetta er glæsilegt símtæki án þess að vera að reyna það of mikið. Ég fékk strax á tilfinninguna að í höndunum hefði ég vandaðan og vel smíðaðan síma. Eins og sést í afpökkunarmyndbandinu þá er bakhliðin sem er þakin gleri og því líklega mjög einfalt að smita puttaförum þar. Það fylgir lin plasthlíf með símtækinu sem er vel, en ég fékk einnig með carbon hlíf sem er mun sterkari, og reyndar flottari að mínu mati.

OnePlus 6T er samsettur utan um álramma (eitt heilt stykki) sem gerir símtækið mun sterkara og massífara þegar það er handleikið. Álramminn þekur hliðar símans og hjálpar til við að gefa þá tilfinningu að notandinn haldi á sterku og vönduðu tæki. Hliðarnar eru rúnaðar eins og algengt er í dag en þetta hjálpar við að láta símtækið falla vel og eðlilega í hendi..
Framhliðin er bara einn stór skjár fyrir utan sjálfumyndavél en efst á brún er hátalari og á neðstu brún er hljóðnemi.

Þessi sjálfumyndavél fellur inn í notch efst í skjá eins og er örlítið í tísku þessa mánuði. Framleiðendur hafa verið að keppast við að koma skjánum alla leið útað brún en einhversstaðar þarf myndavélin að vera.

Allur frágangur á framhlið er til fyrirmyndar og greinilega vandað vel til verka. Skjárinn nær svo til alveg út að brún á hliðum og endum (borderless´ish).

OnePlus 6T er með tvo takka á hægri hlið eða power takka og síðan takka sem hægt er að hreyfa á þrjá vegu, til að slökkva á öllu hljóði, setja á titring eða til að kveikja á hljóði. Þetta er mjög hentugt, einfalt og þægilegt að slökkva á hljóði með takka. Á vinstri hlið er síðan hækka/lækka takkinn.
Neðst á framhlið er fingrafaraskanni til að aflæsa símtækinu en hann er staðsettur undir skjánum sem er nokkuð einstakt. Mér finnst þessi skanni virka…. ágætlega ef ég á að vera rausnalegur, hann á það allavega til að stríða mér við notkun.
Ég aflæsi símtækinu frekar með PIN númer eða með sjálfumyndavélinni sem gerir það hratt og vel og virkar yfirleitt alltaf. Staðsetning takka er annars góð og einfalt að ná til þeirra með annarri hendi.

Helstu stærðir í mm.
Hæð: 157,5
Breidd: 74,8
þykkt: 8,2
Þyngd: 185 gr


OnePlus 6T er töluvert ódýrari en flaggskip annara framleiðanda þótt það endurspegli sig ekki í vélbúnaði. Hann er einmitt vel útbúninn og stendur nærri mun dýrari tækjum… á blaði allavega.

Síminn keyrir á Snapdragon 845 kubbasettinu og keyrir á tveimur fjórkjarna örgjörvum. Annar keyrir á 4×2.8 GHz og hinn á 4×1.7 GHz, skjástýringin heitir Adreno 630. Símtækið ætti því að ráða léttilega við flest allt sem notendur vilja keyra á símanum. Síminn sem ég prófaði er með 128 GB af geymsluplássi sem ætti að duga flestum.
Þessi öflugi örgjörvi, góð skjástýring og 6 GB af vinnsluminni skila sér í viðbragðsgóðu viðmóti og hef ég aldrei orðið var við eitthvað hökt í símann, hvort sem er í stýrikerfinu sjálfu, forritum eða í leikjum sem ég prófaði.

Tengimöguleikar

Neðst á OnePlus 6T er USB-C tengi og efst á vinstri hlið er hólf fyrir 2 nano SIM kort en tækið styður ekki microSD kort sem er galli fyrir suma. Ég tengdi símtækið við tölvuna (Windows 10) til að sækja ljósmyndir sem ég hafði tekið og var það nokkuð einfalt. Síminn kom fram í My Computer og myndirnar þar inni í möppu sem heitir „innri geymsla\DCIM\“.

Eins og algengt er í dag þá er ekki hefðbundin 3.5 mm heyrnartólstengi en það fylgir með USB-C í 3.5mm skott til að tengja í heyrnartólin í.


OnePlus 6T er með Bluetooth 5.0 (A2DP, aptX HD, LE) og með þráðlausu neti eins og við er að búast sem styður 802.11 a/b/g/n/ac og þar með allar helstu dulkóðanir sem skipta máli eins og er. OnePlus 6T er með NFC kubb sem býður meðal annars upp á borganir, samnýtingu gagna, og notkun NFC merkja. Eins og við má búast styður símtækið 4G að fullu og var mjög sprækt á 4G neti Símans meðan ég prófaði það. Það er einfalt að stýra notkun og stillingar á milli SIM korta, eins og hvort kortið sé “default”, hvort SIM eigi að vera með 4G tenginguna eða hvort það séu bæði.

B

Rafhlaða og lyklaborð

Rafhlöðuending hefur verið góð í þeim prófunum sem ég gerði en hún er þó aðeins 3700 mAH. Ég fór léttilega í gegnum fullan vinnudag á einni hleðslu og þar sem tækið styður hraðhleðslu þá er hægt að hlaða úr 0% í 65% á hálftíma.

Endurance einkunn af GSMarena.com

Stýrikerfið og lyklaborð er hægt að stilla á íslensku í Android sem er kærkomið og ætti að einfalda og létta mörgum lífið. Íslensk þýðing á kerfinu er nokkuð góð og tiltölulega einfalt að rata um kerfið. Lyklaborðið í OnePlus 6T er gott og þægilegt er að nota það til innsláttar.

Hljóð og mynd

Skjárinn á OnePlus 6T er 6.41″ Amoled skjár sem styður 1080 x 2340 upplausn eða 402ppi (pixel per inch). Ég bar skjáinn saman við Samsung Note 9 sem var hjá mér og var ég ekki hrifinn í upphafi þó hann líti ágætlega út á blaði (speccalega). Mér fannst samt skjárinn alltaf verða betri og betri við daglega notkun og kom hann vel út í öllum prófunum hjá mér í venjulegum forritum sem og leikjum. Litir, birta og skerpa með besta móti og með Adaptive mode er hægt að stilla lita/skerpu profile eftir því sem hentar hverjum og einum.


Snertivirkni í skjánum er mjög góð en eins og við er að búast þá er erfitt er að nota símann með blauta fingur eða í vettlingum.

Myndavél

Ég er nettur myndavélanörd og því skiptir góð myndavél mig miklu máli. Það fyllti mig ekki trausti að um leið og ég deildi á Twitter myndum af OnePlus 6T þá sendu 3-4 aðilar mér skilaboð um að myndavélin væri léleg. Enginn þeirra hafði reyndar prófað síman eða gert samanburð og því kannski erfitt að treysta á svoleiðis yfirlýsingar og því um að gera að prófa sjálfur.

OnePlus 6T er með tvær aðalmyndavélar á bakhlið eða eina 16MP (f/1.7, 25mm, wide) og síðan aðra 20 MP (f/1.7, 25mm, wide). Aðalmyndavélar eru með Sony myndflögu (IMX519 og IMX376K) og virðist vera með ágætri linsu, þannig að áhugaljósmyndarar ættu ekki að verða sviknir af myndum sem símtækið tekur á sjálfvirkum stillingum. Myndavélaappið er “stock Android” en það er nokkuð gott, hægt er að fara í handvirkar stillingar og leika sér þar. Sjálfvirkar stillingar sem koma á tækinu ættu samt að duga flestum.

Eftir um tveiggja mánaða notkun þá er í raun og veru bara eitt sem ég tek eftir við notkun á myndavélinni sem pirrar mig lítillega. Einstaka myndir eiga það til að verða mjög grófkorna og/eða óeðlilega mikið yfirlýstar. Þarna er líklega sjálfvirkur hugbúnaður að hugsa fyrir mig en langflestar myndir eru mjög góðar.
OnePlus 6T kemur með næturmyndastillingu (Night Mode) sem ég hélt fyrst að væri bara markaðsgimmik en það er ótrúlega flott viðbót sem virkar merkilega vel í frekar eða mjög dimmum myndum.

Litir og skerpa eru nokkuð eðlilegir ásamt því að vélin er mjög fljót að finna og halda focus á myndefni. Reynda má segja að mat á litum séu að vissu leyti persónubundin einkunn en samanborið við það sem ég hef prófað og/eða hef aðgang að í dag til samanburðar, þá er ég mjög ánægður.

OnePlus 6T er einnig með góða 16MP f/1.7 myndavél á framhlið sem hentar ágætlega t.d. í sjálfur, Snapchat eða myndsímtöl eins og Skype eða Hangout. Hún getur tekið 1080p myndbönd @ 30 fps.

Hátalarar

Hátalarar á OnePlus 6T er staddir neðst á síma og skjóta þannig hljóði niður í stað þess að beina þeim að notenda. Í stuttu máli skila þeir góðum hljómi, raddir hljóma skýrt en þeir eru hlóðlátir og hljómlitlir miðað við t.d. iPhone 8.
Síminn er með stafrænni útilokun á umhverfishljóðum með sér hljóðnema sem ætti að virka vel í íslenska logninu.

Margmiðlun og leikir

Margmiðlunarupplifun á OnePlus 6T er mjög góð eins og við er að búast miðað við vélbúnað og ræður hann við að spila og gera “allt” það sem ég ætlaði honum. Hvort sem það var leikur sem ég sótti af Google Play, bíómynd af innra-minni, Youtube video eða aðra vefstrauma. Frábær rafhlöðuending hjálpar líka við að gera þessa upplifun sem besta.

Með innbyggðum tónlistarspilara ásamt þjónustu eins og Spotify áskrift eða Google Music þá ertu kominn með öfluga tónlistarkosti. Einfalt er einnig að bæta við tónlist eða bíómyndum beint af tölvu og ætti OnePlus 6T að ráða við allt sem þú gætir viljað nota hann í þótt hann sé þjáður af plássleysi og vöntun á rauf fyrir SD kort.

Hugbúnaður og samvirkni

Það er einfalt að uppfæra OnePlus 6T í nýjustu stýrikerfið eða Android 9. Eins og með flesta framleiðendur þá bætir OnePlus ofan á sérstöku viðmóti sem þeir hanna en það var samt ekki mikið að þvælast fyrir okkur. Þetta viðmót er einfalt og hægir ekkert á símtækinu enda er tækið með eindæmum viðbragðsgott og skemmtilegt í allri notkun.
Þar sem þetta er Android sími þá fylgir Google svítan einnig með ásamt þessu venjulega eins og tölvupóstforrit, reiknivél, dagbók, tengiliðir, vekjaraklukka o.s.frv. Allt það sem mögulega vantar á að vera fáanlegt í Google Store sem er forritamarkaður Google.

Niðurstaða

OnePlus 6T er mjög gott alhliða símtæki sem ætti að gleðja flesta. Þetta er fallegt símtæki, öflugra og betra en margir Android símar sem ég hef prófað, sérstaklega þegar horft er á verðið en þetta er með betri Android tækjum á markaðnum og þá sérstaklega ef horft er á lágt verð miðað við önnur flaggskip.

Ég hef allavega tekið ákvörðun, ég ætla ekki að skila þessu tæki til Tölvutek heldur kaupa hann og nota áfram. Eftir að hafa komið beint af iPhone X síma sem ég var ánægður með þá hef ég vanist OnePlus 6T vel og þessi sími er einfaldlega frábær í vinnu og leik.

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira