Lappari er með HTC 8x í prófunum frá Emobi en ég sá að hann var að lækka hjá þeim úr 79.900 í aðeins 39.900 krónur og fannst tilvalið að skoða hann aðeins betur.
Þó svo að þetta sé ekki nýjasti síminn á markaðnum þá vildi ég kanna hvort þetta væru ekki mögulega kaup ársins fyrir þann sem vantar alvöru snjallsíma á bónusverði. Vélbúnaðarlega er hann vel sambærilegur við Samsung Ativ S og Nokia Lumia 820, 920 og 925 en eins og sést hér að neðan eru þeir æði líkir. Það er helst skortur á 4G samanborið við Lumia símtækinn en hann styður vitanlega 3.5G (HSDPA+) sem eftir uppfærslur íslenskra símafyrirtækja virkar betur og betur.
Umfjöllun er væntanleg seinna í vikunni en eftir að hafa notað hann í tæpar 2 vikur þá verð ég að mæla með því að þú skoðir þennan, kjörinn fyrir þá sem vilja gera góð kaup eins og t.d. fyrirtæki sem vantar símtæki fyrir starfsmenn.. #bargin
Speccar án ábyrgðar
| Tæki | Samsung Ativ S | HTC 8X | Lumia 925 | Lumia 920 | Lumia 820 |
| Stýrikerfi | WP8 | WP8 | WP8 | WP8 | WP8 |
| Vinnsluminni | 1 GB | 1 GB | 1 GB | 1 GB | 1 GB |
| Örgjörvi | 1.5 GHz | 1.5 GHz | 1.5 GHz | 1.5 GHz | 1.5 GHz |
| Kjarnar | 2 | 2 | 2 | 2 | 2 |
| Skjástýring | Adreno 225 | Adreno 225 | Adreno 225 | Adreno 225 | Adreno 225 |
| Geymslurými | 16 GB | 16 GB | 16 GB | 32 GB | 8 GB |
| Minniskort | Já | Nei | Nei | Nei | Já |
| Þyngd | 135 gr | 130 gr | 139 gr | 185 gr | 160 gr |
| Skjástærð | 4.8″ | 4.3″ | 4.5″ | 4.5″ | 4.3″ |
| Upplausn | 1280 x 720 | 1280 x 720 | 1280 x 768 | 1280 x 768 | 800 x 480 |
| PPI | 306 | 342 | 334 | 332 | 217 |
| Tegund | Super Amoled | S-LCD2 | Amoled | IPS TFT | Amoled |
| Myndavél | 8 MP | 8 MP | 8.7 MP | 8.7 MP | 8.7 MP |
| Auka myndavél | 1.2 MP | 2.1 MP | 1.3 MP – f/2.4 | 1.3 MP – f/2.4 | VGA – f/2.4 |
| Flass | Led | Led | Dual-Led | Dual-Led | Dual-Led |
| Tæki | Samsung Ativ S | HTC 8X | Lumia 925 | Lumia 920 | Lumia 820 |
| Tengimöguleikar | |||||
| 2G | Quad-Band | Quad-Band | Quad-Band | Quad-Band | Quad-Band |
| 3G | Já | Já | Já | Já | Já |
| 4G (á ísl) | Nei | Nei | Já | Já | Já |
| WiFi | Já | Já | Já | Já | Já |
| GPS | Já | Já | Já | Já | Já |
| 3.5 hljótengi | Já | Já | Já | Já | Já |
| NFC | Já | Já | Já | Já | Já |