Heim ÝmislegtApple Hvað er þetta Apple WWDC sem allir eru að tala um?

Hvað er þetta Apple WWDC sem allir eru að tala um?

eftir Gestapenni

Eftirfarandi pistill birtist fyrst hér: WebMo Design Blog

 

Fólk sem fylgist með fréttum af tæknimálum hefur eflaust tekið eftir fjölda frétta af Apple vörum síðustu daga og rekist ítekað á skammstöfunina WWDC. Apple WWDC17 stendur fyrir Apple World Wide Developer Conference 2017, sem er árleg ráðstefna fyrir þá sem þróa hugbúnað fyrir Apple tæki eins og iPhone, iPad og Apple tölvur svo eitthvað sé nefnt.

 

Tim Cook Forstjóri Apple í opnunarkynningu WWDC17

Tim Cook Forstjóri Apple í opnunarkynningu WWDC17

 

Apple heldur þessa ráðstefnu árlega til þess að kynna hvað er framundan hjá þeim á sviði hugbúnaðar og vélbúnaðar ásamt því að standa fyrir fjölda fyrirlestra, vinnustofa fyrir hugbúnaðarfólk og verðlaunaathöfnum fyrir verkefni sem hafa staðið upp úr á árinu. Það sem vekur oftast mesta athygli eru uppfærslur á stýrikerfunum iOS og macOS og hvaða nýju möguleikar opnast fyrir þar en síðustu ár hafa minni kerfi eins og tvOS og watchOS einnig fengið aukna athygli.

Ráðstefnan er fyrst og fremst hugsuð fyrir forritara, hönnuði og aðra sem koma að hugbúnaðargerð fyrir Apple vörur sem hefur vaxið gríðarlega síðustu ár og þá sérstaklega með auknum vinsældum iPhone og iPad. Apple býður einnig stærstu tæknifréttaveitum heimsins að koma og fylgjast með og eykst fréttaflutningur í kringum ráðstefnuna alltaf með hverju árinu.

Munurinn á kynningum á þessari ráðstefnu og á hefðbundnum kynningum Apple er að á WWDC er oft verið að kynna hluti sem eiga marga mánuði eftir í þróun og prófunum sem og nýja tækni og tól sem forritarar eiga eftir að nýta sér til að þróa allskonar nýjungar, þó að umfjöllunum fréttamiðla mætti stundum skilja sem að um tilbúnar vörur og nýjungar sé að ræða.

 

HomePod hátalarinn hefur vakið mikla athygli

HomePod hátalarinn hefur vakið mikla athygli

 

Þetta árið stendur hátalarinn HomePod uppúr, en það er hátalari sem tengist tónlistarveitunni Apple Music ásamt því að tengjast Siri og HomeKit sem getur stjórnað ýmsum snjalltækjum eins og snjöllu ljósaperunum frá Philips Hue sem dæmi. Einnig voru kynntar uppfærslur á flestum tölvulínum, nýr iMac Pro, nýr iPad Pro, iOS 11, macOS High Sierra og fleira og fleira sem er hreinlega efni í annan pistil.

 

Höfundur er tæknistjóri hjá WebMo Design.
Við fylgjumst ávallt spennt með WWDC og nýjungum í heimi snjalltækjanna og erum alltaf til í að setjast niður með kaffibolla og ræða um snjalltækjalausnir.

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira