Heim ÝmislegtAppleÁ ég að fá mér iPad Pro eða Surface Pro 4?

Á ég að fá mér iPad Pro eða Surface Pro 4?

eftir Jón Ólafsson

Sala á Apple iPad Pro hefst í dag og ákvað ég því að renna yfir tæknibloggin sem ég fylgist reglulega með til að skoða viðbrögðin og hvort vélin freisti mín eitthvað. Í mjög stuttu máli þá er augljóst að vélin fær misjafnar móttökur, allt frá því að vera “Fyrsta spjaldið sem skiptir máli” yfir í “Thin, Light, Pointless“.

 

Eftir lesturinn situr eftir spurningin: Fyrir hvern er þessi vél?

 

Ég skaut niður á lista, hluti sem ég hef vanist í þeim spjaldtölvum sem ég nota að staðaldri til að móta mér skoðun á því sem ég þarf, hvað er gott að hafa og hvað er óþarfi fyrir mig. Ég rakst á sambærilegan samanburð á Twitter sem ég vann útfrá en vitanlega þarf ég ekki allt sem er skráð og sannarlega þessi listi breytilegur milli notenda.

Útgangspunkturinn er samt, er iPad Pro sé mögulega vél sem hentar mínum þörfum betur en Surface Pro 4 sem Microsoft kynnti fyrir skemmstu en þá vél hef ég verið að skoða með kaup í huga.

 

iPad ProSurface Pro 4
Venjulegt stýrikerfi með aðgegni að skráarkerfiNeiJá
Stuðningur fyrir marga notendurNeiJá
Sama upplifun og á tölvuNeiJá
Keyrir forrit í gluggaNeiJá
Keyrir mörg forrit samtíma (multitasking)2Já
Leysir af borðtölvunaNeiJá
Leysir af FartölvunaNeiJá
Leysir af SpjaldtölvunaJáJá
Hraðari örgjörviNeiJá
Innbyggður borðstandurNeiJá
Breytanlegur borðstandurNeiJá
Hægt að vinna með í fanginuNeiJá
USB portNeiJá
Stuðningur fyrir doccuNeiJá
Stuðningur fyrir MmúsNeiJá
Snertipenni fylgir meðNei ($99)Já
Rafhlöðuending penna12 klst1 ár
Útskiptanlegir pennaendarNei5
Lyklaborð$169$123 
SnertimúsNeiJá
Pixlar á tommu (ppi)264267
Stæðsti mögulegi harðdiskur128 GB1 TB
microSD lesariNeiJá
Mesta mögulega vinnsluminnið4 GB16 GB
Mini Display Port tengiNeiJá
Andlitsauðkenning til aflæsingarNeiJá
Myndavél/Sjálfumyndavél8/1.2 MP8/5 MP
Þarft borð- eða fartölvu til að gera alltJáNei
Lægsta verð með lyklaborð og penna$1067$1029
Geymslupláss í þeirri vél32 GB128 GB

 

 

Ætlar þú að fá þér iPad Pro og ef svo er, hvað notarðu hana í og hvaða tæki leysir hún af hólmi?

 

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd


This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira