UniFi ViewPort

eftir Jón Ólafsson

UniFi ViewPort er nokkuð spennandi græja sem ég hef beðið eftir að prófa. Þetta er græja sem getur t.d. hentað æði vel þegar fyrirtæki eru með UniFi eftirlitsmyndavélar og vilja láta þær sjást á skjá.

Hingað til hef ég leyst óskir fyrirtækja um svona lausn með Raspberry Pi eða SSF tölvu. Núna er loksins er komin lausn sem hefur þann eina tilgang að taka við straumi frá eftirlitsmyndavélum og birta á skjá.

UniFi ViewPort getur sýnt allt að 16 vélar og býður uppá afspilun í allt að 4K @ 30 ramma á sekúndu. Tengist við LAN með GB PoE porti (802.3af) og er með auka LAN porti ef þú vilt t.d. líka snúrutengja sjónvarpið við LANið.

Hér má sjá unboxing á græjunni ásamt uppsetningu og notkun á UniFi ViewPort..

Tónlistin undir myndbandinu birtist í Tónaflóði á RÚV þann 22.08.2020. Þar kom Jóhanna Guðrún fram ásamt hljómsveitinni Albatross og lagið sem valið var er flutningur hennar af laginu Sumar konur eftir Bubba Morteins.

Það ber að hafa í huga að UniFI ViewPort er ekki “stand-alone” græja þar sem hún tengist við og er sett upp í UniFI Protect kerfinu. Það kerfi er í dag fáanlegt á CloudKey Plus, DreamMachine Pro og UniFI Protect Network Recorder.

Takk Netkerfi og tölvur fyrir lánið á græjunni.

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira