Samsung Galaxy S7

eftir Jón Ólafsson

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að nýlega kom nýtt Galaxy flaggskip í sölu frá Samsung en við fjölluðum um Galaxy S7 edge hér á Lappari.com fyrir skemmstu. Núna er komið að litla bróðir sem heitir einfaldlega Samsung Galaxy S7 og á pappírum er hann mjög líkur stóra bróðir..

Galaxy S7 er svo sem ekki ódýrt símtæki en hann er þó ódýrari en edge, verður áhugavert að sjá hvort Samsung hafi gert einhverjar málamyndanir sem koma niður á hraða eða notagildi.

 

Hér má sjá afpökkun á Samsung Galaxy S7

Við yfirlestur má sjá að þessi umfjöllun er keimlík Galaxy S7 edge umfjöllun enda komu símtækin út á sama tíma með svo til sama vélbúnað.

 

Hönnun og vélbúnaður

Fyrsta upplifun er ég handlék tækið var mjög jákvæð, símtækið er massíft og virkar sterklegt. Það minnir mig töluvert á Galaxy S6 sem er flott því Galaxy S6 var og er frábært símtæki sem hefur lifað ágætlega í harðri samkeppni við aðra framleiðendur.

Eins og með Galaxy S7 edge þá var það tvennt sem heillaði mig strax við Galaxy S7 en fyrir það fyrsta var það útlitið og síðan vélbúnaðurinn, en á flesta mælikvarða þá er Galaxy S7 gríðarlega öflugt símtæki og með öllu því helsta sem ber að vænta í flaggskipi frá Samsung. Eins og fyrr segir kom útlitið mér nokkuð á óvart en það er greinilegt að hér er um að ræða vel smíðað tæki og útpælda hönnun. Línur sem skerast mætast á þann hátt að nær ómögulegt ætti að vera fyrir ryk, hár og annað eins að komast innundir skjáinn. Þetta þarf svo sem ekki að koma á óvart þar sem símtækið er vatnsvarið.

 

Bakhlið símans er varið með Gorilla Glass 4 og því ágætlega varið gegn rispum. Þetta veitti mér öryggis- og premium tilfinningu í þá áttina að þó maður reki sig aðeins utan í þá kemur síminn ekki brotinn uppúr vasanum. Eins og með edge þá mundi ég sjálfur þó örugglega fá mér einhverja hlíf yfir tækið sjálft.

 

s7_2

 

Ég var nokkuð hrifinn af Galaxy S6 en núna hefur Galaxy S7 heillað mig uppúr skónum… gullfallegt tæki og vel hannað.

 

Síminn er merkilega nettur í hendi og vasa þó að hann sé alls ekki lítill en hann er 5,1″ að stærð meðan stóri bróðir er 5.5″. Símtækið virkar mun nettari en t.d. Lumia 1520/950XL og iPhone 6S Plus sem ég hef verið mest með undanfarið.

Eins og fyrr segir er hann vel búinn vélbúnaðarlega, hann laggar ekkert í neinum aðgerðum í stýrikerfinu eða þeim forritum og leikjum sem ég prófaði, þetta er ekki alveg sjálfgefið með Android síma. Samsung Galaxy S7 er með er með 4GB vinnsluminni og keyrir á Exynos 8 kubbasettinu sem er það nýjasta og besta sem völ er á í dag. Örgjörvinn er ekki af verri endanum en hann heitir Exynos 8 (octa 8890 –  octa 2.15GHz + dual 1.6GHz + dual 1,15GHz) og getur símtækið keyrt á einum og uppí 8 kjörnum eftir því hversu álagið er mikið.

Helstu stærðir

  • Hæð 142.4 mm
  • Þykkt 7.9 mm
  • Breidd 69.6 mm
  • Þyngd 152 gr

 

s7_5

 

Til að taka útlitið saman þá er Samsung Galaxy S7, eins og stóri bróðir, eitt fallegasta símtækið sem ég hef prófað lengi, frágangur er vandaður, það fer vel í hendi og virkar sterklegt.

 

Tengimöguleikar

Síminn er, eins að önnur flaggskip, hlaðinn ýmiskonar aukabúnaði og leiðum til þess að tengjast öðrum hlutum. Þar má nefna bluetooth 4.2, NFC , hröðunarmælir (e.accelerometer), snúðvísir (e.gyroscope) og GPS svo að eitthvað sé nefnt. Galaxy S7 styður ýmsa þráðlausa staðla eins og t.d. 802.11 a/b/g/n/ac og styður vitanlega 4G.

Síminn er með hefðbundnu microUSB tengi neðst á símanum ásamt því að þar er einnig 3.5mm tengi fyrir heyrnartól en eins og venjulega hefði ég sjálfur hefði kosið að hafa það efst á tækinu.

 

Rafhlaða og lyklaborð

Samsung Galaxy S7 er með hraðhleðslu sem þýðir að það er hægt að fullhlaða símtækið á aðeins 100 mínúntum (60%  á 30 mín), endingin kom mér nokkuð á óvart samanborið við aðra Android síma. En fyrstu 2 dagana var hún bara þokkaleg en eftir það þá náði ég léttilega að klára fullan vinnudag og vel það. Eins og venjulega þegar ég prófa síma þá var ég ekki að huga að neinum sérstökum rafhlöðusparnaði þegar kemur að notkun. Ég setti upp öll venjuleg forrit sem mér datt í hug eins og Facebook, Twitter, Skype, Instagram, Snapchat, ýmsa leiki, þrjá EAS tölvupóst reikninga en við frekar mikla notkun í þessum prófunum endist rafhlaðan út daginn eins og fyrr segir og var yfirleitt á milli 20-40 % eftir 14 tíma notkun.

Fæstir Android símar sem ég hef notað hingað til hafa búið yfir annarri eins rafhlöðuendingu, að minnsta kosti ekki meðan ég hafði þá í minni umsjá.

 

s7_6

 

Samsung notar minni rafhlöðu í litla bróðir eða 3000mAh rafhlöðu og hún er því miður ekki útskiptanleg enda síminn vatnsheldur (1.5 m í 30 mín) með IP68 vottun en hér gefur að líta uppgefinn endingartíma rafhlöðuna.

  • Tal yfir 3G: Allt að 22 tímar
  • Tónlistar afspilun: Allt að 62 tímar
  • Myndbandsafspilun: Allt að 14 tímar

Samsung Galaxy S7 styður þráðlausa hleðslu

 

Hljóð og mynd

Skjárinn í þessum síma er náttúrlega ekkert annað en frábær, hann er bjartur, skýr og snertivirkni er ótrúlega góð, reyndar mögulega of góð á köflum. Skjárinn er 5,1″ Super Amoled með Gorilla Glass 4 rispuvörn og styður QHD 1440 x 2560 upplausn við 577 pixla á tommu (577 ppi) sem er frábært á alla mælikvarða. Allt, s.s. myndir, letur eða kvikmyndir, er kristaltært á þessum skjá, klárlega einn sá besti á markaðnum í dag. Smá vandræðalegt en ég hef ekkert neikvætt að segja um skjáinn á Galaxy S7 sem er sambærilegt við S7 edge en þetta gerist ekki oft.

Galaxy S7 er með ágætis hátalara og hugbúnað til að stýra þeim sem gerir það að verkum að hljómurinn úr símtækinu er góður, eins og venjulega myndi ég samt alltaf velja mér heyrnartól til að njóta tónlistar en hátalararnir sinna samt starfi sínu með sóma.

Myndavélin í Galaxy S7 er að flestu leiti mjög góð, hvort heldur sem er ljósmyndataka eða myndbandsupptakan. Helst ber að nefna hversu ótrúlega snögg og þægileg myndavélin er í vinnslu, mjög fljótlegt að kveikja á vélinni og byrja að mynda en þetta er lykilatriði þegar ná þarf góðri tækifærismynd. Það er ekki sérstakur myndavélatakki sem er vissulega vonbrigði en það er hægt að tvísmella á heimatakka (neðst á framhlið) til að ræsa myndavélina sem vandist mjög vel.

 

s7_1

 

Fram myndavélin (fyrir Selfie) er 5MP (f/1.7) með auto HDR og er mjög góð í öll myndsímtöl og sjálfmyndir, á tíðum fannst mér hún á pari við aðalvélina við góð birtuskilyrði.

Aðalvélin er 12 MP (f/1.7 // 1.4 µm pixel size) með 1/2.6″ sensor og tekur hún mjög skarpar myndir við góð birtuskilyrði ásamt því að vera furðugóð þegar birtan minnkar. Myndavélin er hlaðin auka krúsidúllum eins og 4K upptöku og Motion (Live) picture svo eitthvað sé nefnt.

Eins og á S7 edge þá fannst mér vélin stundum lenda í vandræðum með að focusa þegar aðdráttur er notaður og í myndbandsupptökum. Helst var það í lengri upptökum þar sem mikið var um að vera en þá færði síminn focus af viðfangsefninu yfir á eitthvað annað sem var í jaðrinum sem endaði oftar enn ekki í hálfónýtri upptöku. Það er samt hægt að smella á viðfangsefnið í myndbandsupptöku til að stilla focus, þetta var ekki algengt og sem betur fer létt að leiðrétta ef vel er fylgst með.

Litir voru annars afbragðsgóðir og við góð birtuskilyrði var mjög gaman að skoða dýptina á litunum sem myndavélin náði að beisla.

 

s7_7

 

Myndavélin er með LED flash og býður uppá ýmsar mismunandi stillingar eins og t.d. geo-tagging, hægt að taka upp 4K video og taka 9MP myndir á sama tíma, touch focus, andlits/bros detection, Auto HDR, panorama o.s.frv. Einfalt er að fara inn í frekari stillingar og leika sér með ISO stillingar, næturstillingar, manual HDR stillingu sem getur gefið myndum meiri dýpt og reyndar oft á tíðum eilítið ýktan blæ, sem er hugsanlega það sem menn eltast við með HDR myndatökum.

Myndbandsupptakan í vélinni er góð og bíður uppá upptöku í eftirfarandi upplausn

  • 4K (3840 x 2160) við 30 fps
  • 1080p HD (1920 x 1080) við 60 fps
  • 720p HD (1280 x 720) við 240 fps

Myndbandsupptaka er hraðvirk og einföld í notkun og skemmtilegt er að leika sér með HDR og dual-video upptökur.

 

s7_4

 

Í samanburði við iPhone 6s Plus þá er myndavélin í Galaxy S7 mun betri, hún er fljótari að starta sér upp, fljótari að focusa og tekur skarpari myndir og þá sér í lagi ef birtuskilyrði minnka.

 

 

Margmiðlun og leikir

Tónlistarspilarinn sem kemur með símanum er auðveldur í notkun og þægilegt að skruna í gegnum hann. Þar er hægt að stilla, breyta og bæta hljóðið sem gæti hentað fyrir þá sem vilja. Myndbandsafspilun í símanum er mjög þægileg og spilar síminn flest þau form af myndböndum sem finnast á stafrænu formi í dag. Eins og með aðra Android síma þá er ekkert mál að sækja sér önnur og mögulega betri forrit til að leysa media afspilun ef þurfa þykir.

 

Galaxy S7 tækið sem við prófuðum er með 32GB geymslurými sem nýtist undir stýrikerfi eða ljósmyndir og annað margmiðlunarefni en til viðbótar er hann með rauf fyrir Micro-SD kort sem styður allt að 200GB minniskort sem er ekkert slor… Það er líklega nauðsynlegt að kaupa minniskort strax ef nota á símann við myndatökur, sérstaklega ef nota á 1080p eða 4K upptökur sem taka mikið geymslupláss en til viðbótar þá fá notendur aukalega 115GB geymslupláss hjá Onedrive ef þeir nota það app til að taka afrit af ljósmyndum.

 

Hugbúnaður og samvirkni

Samsung Galaxy S7 kemur með Android 6.0 sem er nýjasta útgáfan af stýrikerfinu en að venju hafa Samsung sett sitt eigið viðmót yfir stock Android kerfið og heitir viðmótið Touchwiz. Eins og ég sagði í Galaxy S7 edge umfjöllun þá hefur helsta umkvörtunarefni mitt á Samsung símtæki hingað til hefur snúið að hugbúnaðarhlutanum og því miður er það óbreytt.

Það eru misjafnar skoðanir á TouchWiz og líklega eru margir þarna úti sem elska það og látum við notendum eftir að meta það en að okkar mati gerir það kerfið sannarlega fallegra og oft á tíðum notendavænna. Þessar krúsídúllur eru á stundum á kostnað framleiðni þar sem þessir flottu og krúttlegu fídusar eru oft á tíðum að þvælast fyrir venjulegu vafri um símann og oft leiðir kerfið notendur lengri leið að þeim stillingum sem breyta á.

 

s7_8

 

TouchWiz hefur samt lagast í gegnum árin og þroskast en fyrir mína parta þá líkar mér mun betur við stock Android viðmótið eins og Google hannar það. Góðu fréttirnar eru þó að það er hægt að setja upp Google Now Launcher eða leika sér aðeins í þema stillingum og þannig hægt að færa viðmótið í áttinu að stock, eins langt og það nær.

TouchWiz virkar samt einhvern veginn betur samofið við Android en það hefur verið hingað til, það er samt smávegis overlap á milli Samsung og Google forrita og því þurfa notendur að velja á milli tveggja forrita frá sitthvorum aðila til að framkvæma einfalda hluti. Samsung hefur samt gefið út að fyrirtækið sé að vinna með Google í þessum málum með það að leiðarljósi að einfalda upplifun notenda og mögulega lagast þetta því með uppfærslu seinna meir.

Android er með öllum helstu möguleikum sem snjallsímanotendur geta vænst og hefur þroskast ansi vel síðustu árin, kerfið er orðið mun stöðugra og hraðvirkara en það var. Ef notendur vantar einhver forrit til viðbótar við grunnvirkni sem er innbyggð þá eru allar líkur á að það finnist í Google Play Store, sem er forritamarkaður Google en hann er pakkaður af forritum og þjónustum sem er hægt að sækja ókeypis eða kaupa.

Í þann tíma sem ég hef haft Samsung Galaxy S7 til afnota þá hefur hann fyrst og fremst verið notaður sem vinnutæki. Það eru öll helstu Microsoft forrit eins og Office pakkinn og OneDrive löngu komin á Android og virka vel þar. Ég notaði Outlook appið til að samstilla þrjú EAS netföng, Gmail auk þess sem ég setti upp Simnet póstinn minn á hann. Öll vinna í póstumhverfi er mjög einföld og þægileg og á pari við það besta sem ég hef prófað.

 

 

Niðurstaða

Samsung Galaxy S7 er eins og stóribróðir, Galaxy S7 edge, frábær Android sími með endingargóða rafhlöðu, hann er gullfallegur og fer vel í hendi. Símtækið er sterkbyggt að finna og býr yfir öllum þeim helstu kostum sem maður getur reiknað með í fullorðins Android snjallsíma, skoðaðu þennan alvarlega ef þú ert í símaleit enda mjög öflugt tæki hér á ferð.

Galaxy S7 er með frábærum skjá en hann einn af stóru kostunum við þetta símtæki, myndavélin kom mér einnig skemmtilega á óvart en Samsung hafa einbeitt sér að því að gera grunnkosti myndvélarinnar góða, frekar en að troða inn óþarfa krúsidúllum sem þvælast bara fyrir notendum.

Android hefur þroskast mikið síðustu árin og er í dag mun betra kerfi en það var bara fyrir tveimur árum síðan, en veikleiki þessa símtækis er sannarlega TouchWiz viðmót Samsung. Þetta er vitanlega bara mín skoðun og þarf hún ekki að endurspegla skoðun þjóðarinnar.

Þó að Galaxy S7 edge sé kannski fallegri en Samsung Galaxy S7 þá er það ekki alveg sanngjarn samanburður þar sem S7 edge er líklega fallegasti Android síminn sem ég hef prófað hingað til. Galaxy S7 kemur þó fast á hæla stóra bróðir og er án efa einn langbesti Android síminn sem ég hef prófað hingað til.

 

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira