Heim MicrosoftWindows Mobile Enduruppsetning á Windows síma

Enduruppsetning á Windows síma

eftir Jón Ólafsson

Það geta verið nokkrar ástæður fyrir því að þú viljir eyða gögnum útaf símanum þínum og setja hann upp aftur. Ef þú selur símann eða einfaltlega eitthvað forrit sem er að valda vandræðum og þú vilt byrja aftur með hreint borð.

Ég ákvað að renna yfir þessa færslu núna 20.10.2013 en ég skrifaði hana upphaflega í janúar 2013 enda eru skjáskot að mestu af Lumia 920 sem ég átti þá. Ég ákvað að prófa þetta ferli aftur á Nokia Lumia 925 (OS 8.0.10328.78 með Amber GDR2) og afþví að ég vildi endurheimta stillingar aftur þá fór í gegnum allt afritunar ferlið.

Afritun og endurheimt gagna eru að verða mikilvægari partur af snjallsímanum, símarnir verða öflugri og geta borið meira af gögnum en þeir gátu hér áður. Þetta gerir þörfina meiri á því að geta tekið afrit af því sem í símanum er meiri og sérstaklega ef eitthvað kemur uppá. Hvort sem verið sé að færa gögn á milli símtækja eða setja upp aftur  t.d. ef tæki tapast.

Fólk verður að ákveða hvort tekið sé afrit sem er notað þegar nýr sími er síðan settur upp eða hvort afriti sé eytt til þess að byrja sannarlega með hreint borð.

 

Af Heimaskjá, strúka til vinstri og finna settings Settings > backup

 

1
Afritunarstillingar

Hvernig er afritað

Í stuttu máli þá afritast gögn notenda sjálfkrafa á SkyDrive

  • App list + setting : Þetta heldur utanum öll forrit sem eru á símanum ásamt aðrar sérstillingar
  • Text Messages: Hér getur þú valið hvaða skilaboð þú vilt afrita eins og SMS, Facebook Chat o.s.frv.
  • Photos: Hér getur þú séð hvort það séu ekki örugglega tekin afrit af ljósmyndum og myndböndum

Best er að smella á App list+settings og smella á back up now til að uppfæra afritið

 

Það sem markmiðið er að endurheimta símann með sömu forritum þá er nauðsynlegt að fara næst í language+regon sem er undir settings.  Þar þarf að athuga hvað er skráð undir Country/Region því það þarf að setja sama land þegar síminn er ræstur að nýju. Ef það er ekki gert þá er ekki hægt að sækja forrit beint úr afrituðum applista. Ekkert stórmál en pirrandi að fá villumeldingar og þurfa að sækja handvirkt í Store.

 

 

Hvernig er síminn frumstilltur

Þegar búið er að skoða afritunarstillingar þá er ekkert annað að gera enn að krossa fingur og frumstilla símann.
Það er gert með því að fara í Setting > About og smella á reset your phone

 

2
Varúð þetta eyðir öllum upplýsingum af símanum

 

Endurheimt afrita

Eftir að síminn er frumstilltur endurræsir hann sig en það ferli tók um 3 mín.  Þegar síminn hefur ræst sig upp þarf að velja sama tungumál og áður og þar næst að skrá notenda inn með Live ID en þetta er gert til að auðkenna notenda við afrit og gögn sem hann á hýst á SkyDrive.

Næst býður síminn notenda að endurheimta afrit sem finnst á SkyDrive. Þessi valmöguleiki var valin og þá koma upplýsingar sem leiða notendan með einföldu móti hvernig ferlið fer fram.

3
Live ID
4
Afrit valið

Þá byrjar afritun á frumstillingum (notendareikningum og sms os.frv.) og þegar það er búið kemur upp gluggi sem býður notenda að setja inn leyniorð fyrir þær þjónustur sem voru virkar áður (Facebook, Twitter, Nokia o.s.frv.). Þetta er í raun og veru einu stillingar sem notandi þarf að setja inn til að endurheimta símann í það ástand og hann var í áður.

Ég mæli sterklega með því að næst sé farið í Settings og WiFi til að niðurhal af SkyDrive fari fram yfir þráðlausanetið. Það tók um 3 mínúndur að sækja afritið niður á símann og eftir það var símtækið endurræst.

Eftir endurræsingu var tölvupóstur, SMS, tengiliðir, facebook og twitter uppsett úr afriti og flest öll forrit sem voru á símanum.

 

5
Endurheimtun stillinga
6
Leyniorð forrita

 

 

Hér að néðan má sjá hvað gerist þegar vittlaust country/region er valið við endurheimtun forrita af markaði en niðurhal stoppaði með villu sem ber skemmtilegt heiti eða 8000fff.

 

7
8000ffff

 

Þetta er vegna þess að ég var upphaflega með Dönsku í reginal settings en breytti í UK og markaður getur því ekki hlaðið niður forritum sem eru ekki gerð fyrir þann markað. Þetta er í raun og veru mjög eðlilegt en mætti vera betur útskýrt með skiljanlegri villumeldingu.

Síminn var því stilltur á UK með því að fara í Settings > Language+region og þar var Country og Browser tungumál stillt á UK en  Format var stillt á Icelandic. Eftir endurræsingu þá hlóðust forritin sjálfkrafa inn án vandræða.

Annað

Við nánari skoðun kom í ljós einn stór kostur við afritunarlausnarinnar í ljós. Ef notandi fær sér annan Windows Phone 8 síma þá getur hann keyrt sama afrit inn á þann síma. Afritun eru sem sagt tengd við Live ID notenda og virka á alla Windows Phone 8 síma

Hér er Youtube myndband sem sýnir að hægt er að setja Nokia Lumia 920 afrit upp á HTC 8X

 

Niðurstaða

Þó svo að ég hafi í upphafi rekið mig á smá vandræði varðandi endurheimtu á forritum þá eru þau vandræði nokkuð eðlileg og ekki bundin við stýrikerfið heldur takmarkanir milli markaða.

Afritunarlausnin er Windows Phone 8 sú besta sem ég hef prófað í snjallsímum en sem komið er. Mér þótti mikilvægt að sjá lausnina endurheimta allar stillingar og uppsetningu símans ásamt því að endurheimta afrit af SMS, MMS og símtalasögu. Lausnin er innbyggð í stýrikerfið, er mjög einföld og vistar/sækir allt í skýið.

Ef eitthvað er hægt að setja útá, þá væri kostur ef hægt væri að taka afrit af stillingum og gögnum annara forrita, þ.e.a.s. forrita sem notandi hefur hlaðið niður af forritamarkaði.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira