Heim ÝmislegtAndroid Nokia 6.1 umfjöllun

Á síðasti ári vakti Nokia 6 verðskuldaða athygli fyrir glæsilega hönnun og frábært verð en vandfundið var það tæki sem sameinaði þessa eftirsóknarverðu kosti í einu tæki. Það var því talsverð eftirvænting eftir Nokia 6.1 sem kynntur var á MWC 2018 og hvort að uppfærða útgáfan myndi vekja eins mikla athygli og fyrirrennarinn. Við hérna á Lappari.com höfum nú tekið smá snúning á Nokia 6.1 og vægt til orða tekið þá kemur þetta símtæki okkur á óvart.

Nokia 6.1

Undirritaður fer ekki í grafgötur með þá staðreynd hversu vel honum leist á Nokia 6 þegar hann kom út í fyrra. Skjástærðin sem og hönnunin var með því flottasta sem komið hefur fram í símahönnun undanfarin ár. Þegar kassinn af Nokia 6.1 er opnaður þá fer ekkert á milli mála að HMD hefur haldið í fyrra útlit á Nokia 6 og bætt um betur með nýjum lit sem er með svartri áláferð ásamt koparlituðum kanti. Þessi blanda lítur hreint út sagt alveg svakalega vel út og gefur ef til vill til kynna hvað Nokia 6.1 kemur til með að bjóða upp á. Þrátt fyrir að skjárinn sé 5,5 tommur að stærð þá fer Nokia 6.1 vel í hendi. Með í kassanum er USB-C-snúra sem nýtist fyrir tölvutengingar og fyrir USB-hleðsluna sem fylgir einnig með. Stereo-heyrnartól fylgja einnig með sem og einfaldur pinni til þess að losa um SIM og minniskortaraufina á símanum.

Hleðslan er í gegnum USB-C-tengi á botninum á símanum þar sem hljóðneminn fyrir símtöl sem og stereo-hátalarinn er staðsettur. Að ofanverðu er 3,5mm hátalaratengi og svo er fingrafaralesari aftan á símanum í staðinn fyrir á valmyndartakkanum á fyrri símum. Svo má nefna það að Nokia 6.1 er ekki með neina fasta takka að framanverðu heldur birtast þessir virknitakkar eins og valmyndartakkinn, bakktakkinn og forritatakkinn neðst á skjánum.

Nokia 6.1 er með 5,5 tommu skjá sem gerir hann svipað stóran og Nokia 7 sem var kynntur á sama tíma og Nokia 6.1. Geymsluminnið í símanum er 64GB og er síðan hægt að bæta við það allt að 256GB minniskorti. Vinnsluminnið er 4GB.

Nokia 6.1 keyrir líkt og meðbræður sínir, Nokia 7 og Nokia 8 Sirocco á Android 8.0, betur þekkt sem Oreo-útgáfan af Android. Nokia 6.1 ræður vel við þessa nýjustu Android-uppfærslu og er í raun magnað að sjá hversu vel þessi útgáfa virkar í þessum síma.

Hönnun og vélbúnaður

Eins og áður hefur komið fram þá gefur hönnunin á Nokia 6.1 ekkert eftir og viðmiðið sem Nokia 6 setti í fyrra hefur verið jarðað með þessari uppfærslu. Sem fyrr þá er þessi nýja Nokia-lína í takti við það sem áður þekktist þegar Nokia var upp á sitt besta á símamarkaðnum. Síminn er smíðaður úr heilli álskel og rennislétt yfirborðið helst einstaklega vel og ekki mikið um að rispur komi fram á símanum í venjulegri notkun.

Eins og með fyrri Nokia-síma frá HMD þá er Nokia 6.1 með þrjá takka á hliðinni; tveir takkar sem þjóna þeim tilgangi að annaðhvort hækka eða lækka hljóðstyrk símans og svo er þar fyrir neðan á hægri hliðinni fjölnotatakki sem nýtist við að kveikja eða slökkva á símanum, aflæsa skjálæsingu eða með því að tvíýta og ræsa þar með myndavélina.

Eitt af því sem hefur verið uppfært í 2018-línunni af Nokia-snjallsímum er að fingrafaraskanninn hefur verið færður á bakhlið símans. Er þetta í takt við ákveðna þróun á markaðnum og verður áhugavert að sjá hvernig notendur aðlaga sig að þessari breytingu. Nokia 6.1 er með fingrafaraskanna sem er staðsettur rétt fyrir neðan myndavélalinsuna á símanum. Þetta er án efa kærkomið fyrir þá sem eru farnir að stóla á þetta sem sína auðkenningu inn í sitt símtæki og í prófunum hefur þessi skanni virkað hnökralaust og án vandræða. Hægt er að nota fingrafaraskannann til þess að opna símtækið þegar það er læst eða til þess að auðkenna sig t.d. inn í Play Store til þess að staðfesta kaup á forriti eða niðurhal og er það að færast í aukana að mörg smáforrit sem bjóða upp á innskráningu sé farin að nota fingrafaraskannann til þess

Nokia 6.1 er ekki með sérstakan myndavélatakka neðarlega á hægri hliðinni til þess að koma myndavélinni í gang en það er hinsvegar auðvelt með áðurnefndu tvíýti eða með því að virkja myndavélina af biðskjá símans með einföldum hætti. Myndavél er mjög snögg í gang og hægt að smella strax af myndum á augabragði.

Nokia 6.1 kemur mjög vel út úr viðmiðunarprófum AnTuTu og er niðurstaðan í takt við síma sem eru að keppa á hinum vinsæla miðjumarkaði. Nokia 6.1 fær 89353 sem næstum tvöfaldar hraðavirkni símans frá því sem þekktist í Nokia 6.

Ef samanburðurinn er tekinn saman við Nokia-símana sem komu út í fyrra þá sést hvað Nokia 6.1 er að skora hátt þar:

Nokia 3 Nokia 5 Nokia 6 Nokia 8 Nokia 6.1
27086 44626 47307 175091 89353

Helstu eiginleikar:

  • Símkerfisvirkni; GSM / HSPA / LTE.
  • Skjár; 5,5 tommur, IPS LCD, 16M litir, 1080 x 2160 díla upplausn (403 PPD), Corning Gorilla Glass 3
  • Örgjörvi; Qualcomm SDM630 Snapdragon 630, 2,2 GHZ áttkjarna Cortex-A53 með Adreno 508-skjástýringu
  • Minni; 4GB vinnsluminni, 64GB geymsluminni ásamt microSD-kortarauf sem styður allt að 256GB
  • Myndavél; Dual 16 MP Carl Zeiss, DUAL LED-flass með autofocus. Selfie-myndavél; 8MP með autofocus. Myndskeiðsupptaka í 2K og 1080P@30FPS
  • Aðrir þættir; Bluetooth 5.0, GPS og Wifi með 801.11 b/g/n
  • Stærðir; 148,8 x 75,8 x 8,2 mm. Þyngd; 172 gr.

Tengimöguleikar

2018-línan af Nokia-símum er öll komin með USB-C-tengi. Það nýtist fyrir hraðhleðslutækið sem fylgir með Nokia 6.1 en samkvæmt fullyrðingum HMD þá er hægt að ná 50% hleðslu á símanum á innan við 30 mínútum. Tengið nýtist líka fyrir gagnatengingu við tölvu og er hægt að nýta sér þá símann sem geymslueiningu eða til að flytja gögn af símanum yfir á tölvu. Nokia 6.1 styður Bluetooth 5.0-staðalinn og ætti því að vera brúkfær fyrir flestan handfrjálsan búnað sem og þráðlausa Bluetooth-hátalara. Einnig styður Nokia 6.1 hefðbundna Wi-Fi-staðla ásamt því að vera með möguleikann á að breyta sér í ‚heitan reit‘ þannig að önnur tæki geta þá tengst við símann í gegnum Wifi.

Í hefðbundinni daglegri notkun heldur Nokia 6.1 góðu gagnasambandi, hvort sem það er í gegnum símkerfið eða á þráðlausu neti og engir teljanlegir hnökrar voru í slíkri vinnslu á meðan prófanir stóðu yfir.

Nokia 6.1 er með innbyggðu FM-útvarpi sem mun eflaust vekja kátínu margra gamalgróinna Nokia-notenda. Líkt og með fyrri síma þá þarf að tengja heyrnartól við símann til þess að FM-virknin nýtist.

Rafhlaða og lyklaborð

Rafhlaðan er 3000 milliampstundir (mAh) og í daglegri notkun sem felur í sér notkun á Facebook, Snapchat, vafri um nokkrar fréttasíður, tölvupóstsendingar og stöku leikjanotkun þá er um 30% eftir af rafhlöðunni að kvöldi til þegar maður setur símann í hleðslu.

Líkt og með 2017-árgerðirnar af Nokia-símunum þá væri hægt, með takmarkaðri notkun sem myndi einskorðast við hefðbundna símvirkni eins og símtöl og SMS-skeytasendingar, að ná rafhlöðuendingunni upp í tvo daga og ánægjulegt að sjá símtæki sem maður er ekki lentur í rafhlöðuveseni með rétt áður en kvöldfréttirnar byrja.

Nokia 6.1 er með íslenska útgáfu af Android-stýrikerfinu og kemur hún sjálfvalin í símanum. Google hefur verið að gera góða hluti með íslensku þýðinguna á Android-stýrikerfinu og segja má að hún sé svo gott sem komin á par við það sem þekktist áður í Symbian-stýrikerfinu sem og S40-stýrikerfinu sem Nokia notaði á sínum eldri símum á sínum tíma.

Hljóð og mynd

Skjárinn er 5,5 tommur að stærð en þrátt fyrir að vera með svona stóran skjá þá fer síminn ótrúlega vel í hendi. Upplausnin er 1080 x 1920 dílar sem er að skila sér í hefðbundinni Full HD-upplausn. Síminn hentar einstaklega vel fyrir áhorf, hvort sem það eru staðbundin myndskeið eða streymi af netinu. Skjáhlutföllin eru 16:9 sem gerir Nokia 6.1 einstaklega þægilegan í notkun hvort sem það er í hefðbundinni notkun, í leikjaafspilun eða til að horfa á myndskeið.

Hátalarinn er staðsettur neðst til hægri á símanum og eru hljómgæðin þó nokkuð góð. Síminn er einnig með 3,5mm jack-tengi fyrir heyrnartól

Myndavél

Nokia 6.1 státar af 16 megapixla myndavél og líkt og með flest alla fyrri Nokia-síma þá er myndavélin í heimsklassa og skilar af sér skýrum og góðum myndum. Nokia hefur haft það orðspor af sér, allt frá því að fyrstu snjallsímarnir fóru í fjöldaframleiðslu, að bjóða upp á öfluga myndavélavirkni, óháð öðrum íhlutum eða gæðum hvers síma fyrir sig, í hvaða verðflokki sem er. Einnig er hægt að ræsa myndavélina annað hvort af biðskjánum eða með því að tvíýta á valmyndartakkann á hliðinni á símanum.

Það tekur myndavélina einungis örfá sekúndubrot að ræsa sig og er myndavélin snögg að ná fókus á myndefni og smella af myndum. Fjölmargir valmöguleikar eru í myndavélinni eins og möguleiki á að merkja myndir með GPS-staðsetningu, í hvaða átt myndaefnið er, sjálfvirku hallamáli til að tryggja að sjóndeildarhringurinn sé jafn í landslagsmyndatöku og margt fleira.

Nokia 6.1 er með Carl Zeiss-linsu líkt og Nokia 8 var með og er ánægjulegt að sjá að ódýrari símar í Nokia-línunni eru komnir með linsu frá Carl Zeiss.

Það sem er þó áhugaverðast við þessa nýju Nokia-línu er að Nokia Camera Pro-myndavélaforritið er sjálfvalda myndavélaforritið í símanum. Þeir sem kannast við Camera Pro-forritið úr Lumia-símunum ættu því að taka því fagnandi því með þessu forriti er opnað á fjölmargar handvirkar stillingar þegar teknar eru myndir. Einfalt er að breyta stillingunum og sjá hvernig myndin kemur út í rauntíma á skjánum áður en smellt er af.

Margmiðlun og leikir

Nokia 6.1 kemur furðulega á óvart þegar það kemur að margmiðlunar- og leikjavirkni og ef til vill kemur munurinn á Nokia 6.1 og Nokia 6 hvað mest fram í þessari virkni.

Þeir leikir sem prófaðir voru í Nokia 6.1 virkuðu vel og komu mynd- og hljóðgæði mjög vel út.

Líkt og með aðra Android-síma þá er auðvitað alltaf gott að slökkva á þeim forritum sem eru í gangi hverju sinni.

Hugbúnaður og samvirkni

Líkt og með flest alla snjallsíma sem keyra á Android-stýrikerfinu þá er aragrúi af smáforritum sem notendur geta sett upp á sínum símum og þannig sérsniðið símtækið að sinni daglegu notkun. Nokia 6.1 keyrir á ‚stock‘-útgáfu af Android-stýrikerfinu. Í stuttu máli þýðir það einfaldlega að Nokia 6.1 keyrir á Android-stýrikerfinu eins og það kemur beint frá Google. Það er því enginn viðbótahugbúnaður merktur Nokia í þessum síma og því er ekki verið að íþyngja símanum með einhverjum sérsniðnum hugbúnaði eða valmynd sem í mörgum tilfellum hefur verið þess valdandi að hægja umtalsvert á virkni símans til lengri tíma.

Í þessum prófunum var Nokia 6.1 uppsettur með Microsoft Outlook-smáforritinu með virkri samstillingu á tölvupósti. Tveir aðgangar voru samtímis í gangi og voru engir hnökrar á vinnslu símans og allur tölvupóstur skilaði sér án vandræða. Einnig voru hefðbundin samfélagsmiðlaforrit í gangi eins og Facebook, Twitter, Instagram og Snapchat. Engin vandamál komu upp við notkun þessara forrita í Nokia 6.1.

Hægt er að tengja Nokia 6.1 við tölvu með USB C-snúru og ná þannig að hlaða gögnum beint af símanum eða setja frekari gögn inn á símann.

Líkt og flest önnur hugbúnaðarfyrirtæki sem einblína á snjallsímamarkaðinn þá hefur Google í boði margskonar samstillingarforrit til að flytja gögn til og frá snjallsímum með Android-stýrikerfinu. Nokia 6.1 er engin undantekning þar og í raun eru skilaboðin einföld; ef þú ert að nýta þér einhverja Google-þjónustu í dag, þá hentar Nokia 6.1 sem og aðrir Nokia Android-símar mjög vel fyrir slíka vinnslu þar sem þeir eru að keyra á ómengaðri útgáfu af Android-stýrikerfinu.

Android One

Nokia 6.1, líkt og hinir nýju símarnir í Nokia-línunni keyra á því sem Google kallar í daglegu tali Android One. Þetta er heiti á ‚stock-útgáfunni‘ af Android-stýrikerfinu en eins og áður hefur komið fram þá er þetta hrein og „ómenguð“ útgáfa af Android-stýrikerfinu án neinna sérstakra viðbóta við valmyndina. Hinsvegar er ef til vill það stærsta og merkilegasta við Android One er að þeir símar sem eru með Android One-viðurkenningu frá Google eru símar sem tryggja ákveðinn fjölda af uppfærslum á stýrikerfinu sem og öryggisuppfærslum í framhaldinu. Í tilviki Nokia-símanna þá þýðir þetta að símarnir eru með 24 mánaða tryggingu á stýrikerfisuppfærslum og 36 mánaða tryggingu á öryggisuppfærslum. Fram til þessa þá hefur HMD sent frá sér öryggisuppfærslu á 30 daga fresti og hefur það gengið eftir með fyrri síma.

Niðurstaða

HMD setti talsvert hátt viðmið með Nokia 6 þegar hann kom út í fyrra. Þar var á ferðinni símtæki sem hitti í mark á mörgum vígstöðvum; hönnun, notagildi, verð svo að fátt eitt sé nefnt. Nokia 6.1 bætir um betur og skilar ekki bara af sér öllu því góða sem Nokia 6 bauð upp á heldur bætur um betur. Má þar fyrst og fremst þakka mun öflugri örgjörva heldur en þeim sem var í fyrri útgáfunni og var það augljóst í viðmiðunarprófunum að þarna hafði verið bætt vel í.

Nokia 6.1 er áfram á sama verði og Nokia 6 sem er ánægjulegt að sjá. Hinsvegar hefur samkeppnin aukist talsvert í þessu verðbili og eru framleiðendur á borð við Motorola, HTC, Xiaomi og fleiri með samskonar símtæki, sem standa sig auðvitað misvel en eru jafnvel að bjóða upp á virkni sem Nokia 6.1 er ekki með eins og t.d. veðurvörn.

Nokia 6.1 er öflugur sími sem skilar sínu og er ekkert að velkjast í vafa með hvaða tilgangi hann þjónar. Þetta er gott tæki fyrir þá sem eru að leita að hæfilegu jafnvægi milli símvirkni og verðs og ekki skemmir að síminn lítur svakalega vel út og fer vel í vasa eða veski.

Fyrir þessa umsögn var Nokia 6.1 í almennri notkun við mismunandi vorhitastig frá 4. maí til til 23. maí þannig að umsögnin er byggð á venjulegri notkun við íslenskar aðstæður.

Það er ekki um villst með Nokia 6.1 að í gegnum hann skína hin gömulgrónu Nokia-gæði og því ættu notendur sem hafa kynnst Nokia á nýjan leik með nýju Android-línunni sem og þeir sem hafa notað eldri gerðir af Nokia-símum að kannast vel við sig í þessu umhverfi.

Nokia 6.1 er því hinn fullkomni HM-sími þar sem hann hentar einstaklega vel til þess að horfa á myndstreymi á skýrum og góðum skjá sem hentar vel fyrir íslenskar aðstæður, hvort sem það er skýjað eða glampandi sól.

Hvað finnst þér?

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira