Okkur hér á Lappari.com var bent á áhugavert myndband frá Advania sem okkur langar til að deila með ykkur en þú getur séð myndbandið hér að ofan.
Í texta með myndbandinu sem birtist á Advania blogginu þá segir að opinberar stofnanir og fyrirtæki hafi orðið fyrir barðinu á skæðum álagasárásum, eða svokölluðum DDoS árásum.
Það eru til margar tegundir af álagsárásum en í grunninn ganga slíkar árásir út á að óprúttnir aðilar búa til gríðarlega mikla vefumferð sem er til þess fallin að valda of miklu álagi á tölvukerfi eða vefsetur. Þetta verður til þess að viðkomandi þjónusta verður óaðgengileg fyrir notendur og sá sem verður fyrir árásinni verður fyrir tekjutapi eða að orðspor hans bíður hnekki.
Í þessu myndbandi fara Daniel Kristinn Gunnarsson og Áki Hermann Barkarson netsérfræðingar Advania og öryggissérfræðingar Landsbankans, þeir Ægir Þórðarson og Hákon L. Åkerlund ítarlega yfir þessi mál.