Við hér á Lappari.com höfum í gegnum árin fjallað um ótalmörg snjallúr og klæðanleg tæki eins og þau eru kölluð. Eins og mörg ykkar vita er undirritaður með talsverða tækjadellu og á það til að safna að sér alls konar nauðsynlegum græjum sem eru notaðar meðan áhuginn er til staðar. En raunveruleikinn er oft sá að eftir nokkrar vikur af fikti og prófunum enda mörg af þessum tækjum í skúffunni góðu, þar sem gömlu snjalltækin mín fara til að deyja.
Sum tæki ná hins vegar að verða hluti af daglegu rútínu hjá mér og verða ómissandi. Þannig hefur sagan verið með Samsung Galaxy Watch 6 Classic en núna eru þrjú ár síðan úrið kom á markað og ég hef notað það daglega í tvö ár. Það er orðið ómissandi í vinnunni, við hreyfingu og til að fylgjast með nætursvefninum.
Spurningin er því þessi: Hvernig eldist svona snjallúr eftir tveggja ára samfellda, daglega notkun, og heldur það enn í við nýrri tæki?
Hönnun og ending
Það sem náði mér strax við Watch 6 Classic er þessi vélræni snúningshringur (rotating bezel). Eftir tveggja ára notkun get ég fullyrt að þetta er án efa frábær leið til að stýra snjallúri. Að finna fyrir litlum vélrænum smellum þegar farið er á milli tilkynninga eða skjámynda gerir notendaviðmótið ótrúlega nákvæmt og ánægjulegt í notkun. Af einhverri furðulegri ástæðu tók Samsung þessa virkni úr Watch 7 en setti svo aftur inn í Watch 8 Classic eftir miklar kvartanir notenda. Það segir sína sögu um hversu mikilvægur hann er fyrir notendur.
Þegar kemur að gæðum hefur úrið staðist tímans tönn með glæsibrag. Umgjörð úrsins er úr ryðfríu stáli og með safírgleri (Sapphire Crystal) sem hafa fengið að finna fyrir því á þessum tveimur árum. Alls konar högg við daglega hreyfingu og vinnu en ekkert sést á því. Glerið er enn fullkomlega órispað og umgjörðin hefur haldið sér ótrúlega vel. Þetta er því vel hannað og sterkbyggt snjallúr sem heldur sér vel í „eðlilegri“ notkun.
Eðlilega sést aðeins á leðurólinni og úrinu sjálfu en miðað við að ég hlífi því ekkert sérstaklega í daglegri notkun mundi ég segja að það hafi staðist þessa notkun mjög vel.

Hugbúnaður og dagleg notkun
Wear OS með One UI Watch viðmótinu hefur þroskast ansi vel. Úrið kom út með Wear OS 4 en hefur síðan fengið stórar uppfærslur og keyrir nú Wear OS 6 með One UI 8.0. Eftir allar þessar uppfærslur er úrið enn jafn hratt og viðbragðsgott, hik eða seinagangur eru í algeru lágmarki eða hreinlega ekki til staðar.
Í daglegri notkun nota ég líklega mest:
Tilkynningar: Frábært að geta séð helstu skilaboð, tölvupósta eða tilkynningar án þess að þurfa alltaf að rífa upp símann.
Snertilausar greiðslur: Google Wallet virkar hnökralaust á úrinu og er eitthvað sem maður venst ótrúlega fljótt.
App-úrval: Aðgangur að Google Play Store gerir það að verkum að öll helstu öpp eins og Spotify, Strava, Google Maps o.fl. standa til boða og virka eins og smurt.
Heilsutengd forrit: Samsung Health hefur þroskast mikið síðustu árin og fylgist úrið vel með svefni, hjartslætti, orkustigi o.s.frv.
Það er þó rétt að hafa smá fyrirvara hér.
Stórar hugbúnaðaruppfærslur verða líklega takmarkaðar fyrir nákvæmlega þetta módel. Þetta er þriggja ára gamalt úr sem er komið nokkuð langt í uppfærsluferlinum. Fyrir daglega notkun skiptir það litlu í dag, en það er atriði sem vert er að hafa í huga ef þú ert að spá í að kaupa úrið núna.

Heilsu- og svefnmælingar
Ég held að það sé seint hægt að segja að ég sé eitthvað útivistarfrík eða einstaklega reglusamur þegar kemur að svefni en ég held að einmitt þess vegna séu heilsu- og svefnmælingarnar í uppáhaldi hjá mér. Samsung BioActive skynjarinn mælir púls, blóðsúrefni, líkamssamsetningu (BIA), svefnmynstur o.fl.
Svefnmælingarnar eru ansi ítarlegar. Úrið fylgist með svefnstigum, hreyfingu á nóttunni og gefur raunhæfar vísbendingar um hversu vel maður er hvíldur fyrir daginn. Á daginn heldur það manni við efnið með því að minna á að standa upp og hreyfa sig ef setið hefur verið of lengi við tölvuskjáinn.
Hreyfingareftirlit ásamt púls- og svefnmælingum eru þær sem ég treysti mest á í daglegri notkun og þær virðast samræmast vel því sem maður upplifir. Líkamssamsetningarmæling (BIA) er skemmtileg viðbót en ég tek henni með fyrirvara, Hún virðist sveiflast talsvert milli mælinga eftir vökvabúskap og hvaða tíma dags ég mæli. Ég myndi allavega ekki nota hana sem nákvæman mælikvarða heldur frekar til að fylgjast með þróun yfir tíma.
Rafhlaðan eftir 2 ára notkun
Ég er meðvitaður um að rafhlaðan gefur eftir við notkun þegar kemur að snjallúrum og öðrum snjalltækjum (rafhlöðutækjum). Eftir tveggja ára daglega notkun og hleðslu flesta daga get ég þó staðfest að rafhlaðan heldur nokkuð vel sínu striki.
Ég fæ enn auðveldlega heilan sólarhring út úr úrinu með púls- og svefnmælingu virka. Ég finn samt mun frá því úrið var nýtt en þá skreið það stundum í tvo sólarhringa og gott betur. Ég mundi segja í dag að einn sólarhringur sé raunhæft viðmið eftir 2 ára og ég vil ekki teygja mig mikið lengra. Það er eðlileg rýrnun eftir hundruð hleðslulota.
Lykillinn er að koma sér upp fastri hleðslurútínu (t.d. meðan farið er í sturtu eða slakað á á kvöldin). Geri maður það finnur maður varla fyrir þessum takmörkunum. Hraðhleðslan hjálpar líka mikið, stutt stund í hleðslu skilar dágóðri viðbót. Ég er t.d. með hleðslustöð á skrifborðinu heima og í vinnunni, sem ég nota til að hlaða úrið þegar það hentar mér sem best.
Niðurstaða
Samsung Galaxy Watch 6 Classic er eitt af þeim fáu snjalltækjum sem hefur komið á skrifborðið hjá mér og aldrei farið í „skúffuna góðu“, það segir mér í raun allt sem segja þarf.
Snúningshringurinn er enn einn sá besti í bransanum, gæðin standast tímans tönn og rafhlaðan heldur nægilega vel. en helstu fyrirvarar eru takmörkuð framtíð uppfærslna. Ef lesendur finna þetta úr á góðu verði þá eru þetta ein besta kaup sem völ er á í snjallúrum, klassískt útlit og ending sem margfalt dýrari úr eiga erfitt með að slá við.