Heim ÝmislegtAndroid Hér er Pixel, nýtt símtæki frá Google

Hér er Pixel, nýtt símtæki frá Google

eftir Jón Ólafsson

Fyrr í dag kynnti Google nýtt símtæki, arftaki Nexus tækja sem munu einfaldlega heita Pixel. Það þekkja margir til Nexus tækjana en þar fá notendur “hreint” Android eins og Google hannar það án viðbóta frá framleiðendum en segja má að Pixel sé tilraun Google til blása glæðu í sölu þeirra tækja. Það þarf svo sem ekkert að ýta við sölunni á Android þar sem nálægt 7 af hverjum 8 seldum símtækjum keyra á Android en Pixel er tilraun Google til að ná meiri stjórn á Ecosystem´inu og mögulega til þess að sækja meiri tekjur á þennan markað.

Pixel og Pixel XL eru með sambærilegan vélbúnað en XL týpan er með 5.5″ skjá meðan Pixel er með 5″ skjá og XL er einnig með stærri rafhlöðu..     og þeir eru með 3.5″ tengi fyrir heyrnartól  #hæApple

 

 

Áhugasamir geta skoðað meiri upplýsingar á heimasíðu Goggle.

 

Glettilega líkur iPhone samt… hvað segið þið?

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira