Heim ÝmislegtAndroid Fyrstu Kynni: Samsung Galaxy S7

Fyrstu Kynni: Samsung Galaxy S7

eftir Jón Ólafsson

Við hér á Lappari.com höfum nú verið með Galaxy S7 og Galaxy S7 edge í prófunum síðustu vikurnar og því komin ágæt tilfinning fyrir tækinu sjálfu.

Það styttist því sannarlega í umfjöllun okkar en segja má að fyrstu kynni séu jákvæð, símtækið er nokkuð snoturt og tækið fer ágætlega vel í hendi. Galaxy S7 virðist sterklegur og vel hannaður þó hann sé ekki alveg jafn fallegur og Galaxy S7 edge sannarlega er.

Galaxy S7 er vel búinn vélbúnaðarlega og nokkuð á pari með stóra bróðir sínum edge. Símtækið er með öllu þessu helsta sem vænta má úr flaggskipi frá Samsung. Hann er mjög sprækur og vottar ekki fyrir neinu hiki í stýrikerfi eða forritum. Myndavélin er mjög góð við flest skilyrði.

 

  • Kubbasett: Qualcomm MSM8996 Snapdragon 820  //  Exynos 8890 Octa
  • Örgjafar: Dual-Core 1.15 GHz + Dual-Core 1.6 GHz + Quad-Core 2.3 GHz
  • Skjár: 5.1″ Amoled skjár með 1440 x 2560 upplausn (577ppi)
  • Minni: 4GB LPDDR4 RAM
  • Geymslurými; 32/64GB UFS ROM
  • microSD rauf stem styður allt að 200GB kort
  • Myndavélar: Standard 12MP f/1.7 með 1/2.6″ sensor og sjálfuvél sem er 5MP
  • Rafhlaða: 3,000mAh
  • Stýrikerfi: Android 6.0 Marshmallow
  • Stærðir: 142.4mm x 69.6mm x 7.9mm
  • Þyngd: 152g
  • Símkerfi: LTE / 3G / 2G
  • Tengimöguleikar: Wi-Fi 802.11 a, b, g, n, ac / NFC / Bluetooth 4.2
  • Litir: Silfur / Hvítur / Gull / Svartur
  • IP68 — vatnsheldur í allt að 1,5m í 30 mín

 

Við höldum prófunum áfram og birtum síðan ýtarlega umfjöllun á næstu dögum.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira