LG G3

eftir Gunnar Ingi Ómarsson

Fyrir rétt um ári síðan þá fjölluðum við hér á Lappari.com um LG G2 og vorum við nokkuð hrifnir af honum. Í stuttu máli má segja að við vorum í skýunum með vélbúnaðinn en hönnunin og ytra byrði pirraði okkur. Stuttu seinna var það LG G2 mini sem fékk frekar dræmar móttökur hjá okkur en núna er kominn tími á að koma niðurstöðu okkar um LG G3 niður á blað.

LG G3 er alls ekki nýr sími en okkur langaði samt mikið að prófa hann, sérstaklega til að sjá hvort hann væri betri en G2 var. Almennt hefur LG G3 fengið ágætar viðtökur í tæknimiðlum og vakti hann áhuga okkur strax þegar hann kom út og þá sér í lagi þegar vélbúnaður vs verð er skoðað. Á blaði virðist þetta vera nokkuð pottþéttur sími á góðu verði miðað við samkeppnisaðila.

 

Byrjum á hörkuspennandi afpökkunarmyndbandi.

 

 

 

 

Hönnun og vélbúnaður

Segja má að útlitið á LG G3 sé töluvert breytt frá G2 og er það fyrst og fremst í litaúrvali, frágangi (build quality) og að takkarnir hafa breyst í viðkomu. Tækið er samt nokkuð líkt G2 að því leiti að enn er útlit byggt á mjúkum línum, á hornum sem og á bakinu. Tækið er með 5,5″ skjá og er því dálítið stórt og það er ekki á hvers manns færi að ná horna á milli á skjánum með annari hendi. Mér fannst símtækið skemmtilegt í meðhöndlun og það passaði fínt í vasann á buxunum þó að ég þyrfti aðeins að hagræða símtækinu í vasanum þegar ég settist. LG virðist hafa tekið dálítið úr hönnunarstefnu Samsung með þessu tæki en ef eitthvað virkar þá er ekkert að því að nota það.

 

LG_G3_4

 

Síminn er allur úr plastefni og bakhlutinn er með smá munstri til að minnka plast útlitið en það virkar nú aðallega úr fjarlægð. LG tók þá ákvörðun að hlusta á sína viðskiptavini og breyttu hönnun á G3, miðað við G2, þannig að núna er bakhlið tækisins ekki steypt saman með framhlið. Þetta þýðir að hægt er að skipta um rafhlöðu og setja auka minniskort í símtækið, en þetta var það sem við settum hvað mest útá G2 tækið.

LG tók á sínum tíma þá skringilegu ákvörðun að setja hækka/lækka takkann og power takkann aftan á símtækið undir myndavélalinsunni á G2 tækinu og þeir halda þessari hönnun áfram á G3. Þetta er ákvörðun sem ég bara get hreinlega engan veginn skilið því mér finnst þetta vera stærsti gallinn við símtækið og þetta var að pirra mig allan tíman sem ég var að prófa tækið. Við gerðum þó smá könnun meðal LG G2 og G3 eigenda sem við þekkjum til og þeir voru langflestir sammála um að það venjist hratt að nota þessa takka. Það mætti þó laga þess takka aðeins því manni finnst eins og þeir séu að fara festast eða ekki virka almennilega, eru ekki næginlega vandaðir. Eins og ég sagði þá eru þessir takkar fyrir neðan 13MP myndavélalinsuna sem er þá líka aftan á símtækinu ásamt LED flashi sem er staðsett við hliðina á linsunni. Neðan við takkana á bakhliðinni er svo logo LG.

 

LG_G3_10

 

 

Framhlið símans er alveg þakin gleri nema þar sem er tekið úr fyrir hátalara fyrir hlust en þar við hliðina á er lítil 2.1 MP myndavélalinsa fyrir sjálfumyndir (selfies). Það eru engir físískir takkar framan á tækinu heldur eru bara snertitakkar neðst á þessum gullfallega skjá og það má sko með sanni segja að skjárinn og framhliðin á þessu tæki er alveg einstaklega vel gert. Ólíkt Samsung er LG svo með logoið sitt neðst á framhliðinni.

Það er hægt að stilla snertitakkana töluvert en hægt er að velja á símanum nokkra valmöguleika, t.d. hvort back takkinn sé hægra meginn við home takkann eða vinstra meginn. Svona einfaldir hlutir fá mín hrós því ég veit fátt eitt leiðinlegra en að þurfa alltaf að læra upp á nýtt hvort maður fer til baka með því að ýta á vinstri eða hægri takkann. Einnig býður viðmótið upp á að vera með 3 eða 4 takka.

 

Skjárinn á LG G3 er True HD-IPS + LCD skjár með 16M litum, 2560 x 1440 punkta upplausn sem gefur okkur ~538ppi pixel þéttileika sem er gríðar mikið á alla mælikvarða. Lítur út eins og að LG hafi ákveðið að skara frammúr öðrum með frábærum skjá og hanna síðan símann í kringum hann. Segja má að þeim hafi tekist þetta frábærlega því þó svo að skjárinn sé 5,5″ þá er símtækið samt svipað að stærð og HTC One (5″) OG Xperia Z2 (5,2″).

Litir koma vel út og áhorfsvídd (e. viewing angles) er mjög gott og skjárinn er nægilega bjartur og skýr til að vera vel nothæfur utandyra í sól. Þetta er klárlega með betri skjáum sem við höfum prófað lengi ef ekki frá upphafi.

 

LG_G3_6

Mér fannst vanta sértakka fyrir myndavélina en það er bara hægt að stýra/opna myndavélina með snertitökka en þetta er svo sem ekki bara bundið við LG síma heldur orðin lenska hjá mörgum framleiðendum.
Við hérna hjá Lappara erum alveg mennskir og komumst fljótt að, eftir birtingu, að það er vel hægt að opna myndavélina með hækka/lækka takkanum aftanum símanum. Til að opna myndavélina er nóg að halda þessum takka inni í smástund og þá opnast myndavélina. Við þökkum bara dyggum lesendum fyrir að benda okkur á þessi mistök og eru þau því hér með leiðrétt.

LG G3 tækið sem við prófuðum var með 3GB af vinnsluminni og 32GB af geymslurými sem eins og fyrr segir er einfallt að stækka með allt að 128GB microSD korti. Til viðbótar er hægt að sækja og setja upp lausnir eins og OneDrive, GDrive eða Dropbox, til að vista ljósmyndir og gögn á, og eru notendur kvattir til þess. LG G3 notar Snapdragon 801 kubbasett og fjórkjarna Krait 400 örgjörva sem keyrir á 2,5GHz en G3 er með Adreno 330 skjástýringu

 

Helstu stærðir

  • Hæð 138.5 mm
  • Þykkt 8.9 mm
  • Breidd 70.9 mm
  • Þyngd 143 gr

 

 

Tengimöguleikar

LG G3 er eins og fyrr segir með 3.5 mm tengi fyrir heyrnatól neðst á símanum við hliðina á hefðbundnu microUSB sem er notað fyrir gagnaflutning sem og hleðslu. Það þýðir að þú getur notað allar microUSB snúrur sem þú átt fyrir án þess að þurfa einhverskonar millistykki eða sérstök tengi. Ég verð samt að segja að það venst illa að hafa hljóðtengi sem er staðsett neðan á símanum í stað þess að það væri ofaná eins og venja er en þetta má hreinlega flokka sem sérvisku í mér.

 

LG_G3_9

 

Tækið virkar eins og önnur símtæki sem ég hef séð og prófað þegar þau eru tengd við tölvu og myndirnar sömuleiðis á svipuðum stað og í öðrum símum og myndavélum. Það þarf þó að muna að virkja data transfer ham tækisins þegar það tengist með USB því staðgefinn stilling gerir ráð fyrir að það sé bara verið að hlaða með USB þegar það er tengt við tölvu.

Þráðlaust netkort er í LG G3 eins og í flestum öðrum nýjum símum í dag og er það Wi-Fi 802.11 a/b/g/n/ac með WiFi direct, WiFi Hotspot og DLNA. Svo er að sjálfsögðu Bluetooth 4.0, infrared port, NFC (Near Frequency Connector), FM útvarp og GPS.

Það koma nokkur módel af LG G3 en D855 er með 4G sem virkar á Íslandi en hann bíður uppá 800/1800 MHz bandbreiddina sem virkar hér á landi ásamt gamla góða 3G.

 

Rafhlaða og lyklaborð

Rafhlaðan í þessari flottu græju kom mér á óvart en hún virkaði alveg skelfilega illa fyrstu 2-3 dagana en eftir það virkaði hún alveg þrusu vel. Ég reikna með að þessi lélega ending hafa verið meðan síminn var að uppfæra sig, meðan ég setti upp forrit ásamt því að síminn var index´a skjalakerfið.

Ég notaði símann í vinnu og var með 2 EAS póst tengdan, 3 gmail, twitter og facebook tengt, Wi-Fi var tengt þegar það var hægt og 3G/4G þá þegar ekki var Wi-Fi. Með þessari notkun þá var ég yfirleitt nokkuð öruggur með það að síminn entist í rúman einn og hálfan sólahring, eða 36 tíma, ef ég var ekki þeim mun meira að tala í símann.

Uppgefin rafhlöðuending samkvæmt LG er:

  • Tal yfir 2G: 19 tímar
  • Tal yfir 3G: 21 tímar
  • Biðtími:  553 tímar
  • Tegund: Li-lon 3000 mAh

Lyklaborðið á LG G3 er mjög fínt og mér fannst ekkert varhugavert við það, að undanskyldu að ég sá ekki að hægt væri að fá íslenska stafi á það. Það var einn mjög sérstakur fítus sem stóð uppúr með lyklaborðið en það var að hægt var að skipta því í tvennt þannig að allir takkar væru auðvelt að ná með þumli og það hjálpaði til muna við að skrifa á það. Ég þurfti svo að setja inn íslenskt lyklaborð sem viðbót og missti því þennan fítus.

 

LG_G3_5

 

Hægt er að stilla Android á íslensku sem er örugglega fínt fyrir suma en ég er af gamla skólanum með þetta og hef ævinlega símana sem ég nota á ensku.

 

Hljóð og mynd

Ég var nú búinn að minnast á 5.5″ gullfallega skjáinn á þessum síma og það er ekkert að því að impra betur á því. Skjárinn heillaði mig hvað mest, allir litir komu fallega út á honum og voru mjög líflegir. HD myndbönd hvort sem það voru af minniskorti eða af youtube komu sérstaklega vel út í þessum skjá og mér finnst ótrúlegt hversu miklar framfarir hafa verið í skjám á símtækjum síðustu árin. Þá prófuðum við líka nokkur 4K myndbönd af youtube.com sem komu skuggalega vel út og er lítið hægt að segja nema sjón er sögu ríkari.

Myndavélin í símanum kom ágætlega út í flestum prófunum okkar, hvort heldur sem er ljósmyndataka eða myndbandsupptaka. Vélin er snögg og þægileg í notkun, mjög fljótlegt að kveikja á vélinni og byrja að mynda. Myndavélaforritið sjálft er eitt það besta í Android símum sem við höfum prófað.

Furðulegt að hafa ekki sérstakan takka á símtækinu sjálfu fyrir myndavélina því notendur þurfa alltaf að opna símtækið, leita að myndavéla forritinu áður en hægt er að byrja að mynda. Þetta er kannski ekki stórmál fyrir flesta en tækifærið getur verið farið ef þetta tekur of langan tíma. Eins og áður kom fram þá var okkur bent á að þetta er ekki rétt, nóg er að halda hækka/lækka takkanum niðri til að opna myndavélina.

 

LG_G3_2

 

Myndavélin er 13MP og með Optical Image Stabilization sem gerir mun auðveldara að taka óhreifðar og skýrar myndir þrátt fyrir að vera á ferð eða í skjálfhendum höndum. Sjálfumyndavélin (fyrir Selfie) er 2.1MP (1080p@30fps) og ágæt í myndsímtöl og ætti einnig að duga í spennandi sjálfumyndirnar (e. Selfies).

LG G3 er með laser við hliðina á aðal linsunni sem er stanslaust að vinna með hugbúnaði myndavélarinnar til að finna og halda myndefninu í fókus. Einstaka sinnum fannst mér myndavélin lenda í vandræðum með að focusa þegar aðdráttur er notaður og einnig í myndbandsupptökum. Helst var það í lengri upptökum þar sem mikið var um að vera en þá færði síminn focus af viðfangsefninu yfir á eitthvað annað sem var í jaðrinum sem endaði oftar enn ekki í hálfónýtri upptöku.

Litir voru annars afbragðsgóðir við góð birtuskilyrði og myndir skarpar og góðar, það var mjög gaman að skoða dýptina á litunum sem myndavélin náði að beisla. Vélin er mjög góð fyrir útimyndatökur ásamt því að standa sig nokkuð vel innanhús en það er helst við lakari birtuskilyrði sem vélin brást okkur. Hugbúnaðurinn í símanum reynir að vinna á móti því en á kostnað myndgæða þar sem stundum urðu þær yfirlýstar, úr focus eða jafnvel pixlaðar.

 

Margmiðlun og leikir

Ég prófaði, eins og fyrr segir, að horfa dálítið á HD bíómyndir og youtube myndbönd á símanum og það kom einstaklega vel út. Þá prófaði ég líka að opna slatta af forritum og það var voðalega lítið mál að flakka á milli því síminn er mjög vel búinn þegar kemur að vélbúnaði.

 

LG_G3_3

 

Eins og aðrir Android símar þá kemur LG G3 með fínum tónlistarspilara og hægt að setja upp viðbótarþjónustu eins og Spotify eða Google Music, sjálfur nota ég Spotify mest. Þá geturu líka alltaf bætt við tónlist beint inn á síman sem þú átt til á tölvunni þinni.

Ég er nú ekki sérstaklega mikill leikjagaur þegar kemur að snjallsímum en ég ákvað að prófa nokkra og var niðurstaðan eins og við var að búast, allt keyrði eins og ekkert væri og þetta leit frábærlega út á þessum flotta skjá.

 

Hugbúnaður og samvirkni

LG G3 tækið sem ég fékk í hendurnar kom með Android útgáfu 4.4.2 (KitKat) en hægt er að uppfæra hann í útgáfu 5.0 (Lollipop). Eins og margir vita þá keyra flestir framleiðendur sitt eigið distro (distribution) af Android, oft á tíðum með einhverskonar breytingum á application launcher, almennum stillingum og svo eigin hugbúnað. Android distroið frá LG var ótrúlega snarpt og viðbragð við snertiskjáinn með því betra sem ég hef prófað. Ég hef yfirleitt ekki verið mikið að spá í þeim hugbúnaði sem fylgir símunum, reyni oftar en ekki að henda út því sem ekki þarf að vera þarna til að reyna straumlínalaga aðeins og fá betra performance útúr tækinu, en ég gerði það ekki í þetta skipti þar sem ég gef álit á símanum eins og almennur notandi myndi nota hann.

Það sem hefur oftar en ekki verið kalla Google svítan hérna á Lappari, Google Mail, Docs, Calendar, Drive og fleira, er að sjálfsögðu til staðar í þessu símtæki og virknin á því er eins og á flestum þeim símtækjum sem ég hef prófað, semsagt alveg vandræðalaust. Fyrir þá sem hafa ákveðið að fara Microsoft (MS) lausu leiðina þá er þetta flott leið en fyrir þá sem vilja fara MS leiðina þá eru þær lausnir fyrir Android notendur orðnar mjög góðar. Sjálfur nota ég mikið Microsoft OneNote og það er komin útgáfa fyrir það á Android sem virkar alveg prýðilega, síðan er líka OneDrive til að synca skjöl og myndir í skýið fyrir þá sem vilja ekki nota Google hugbúnað.

Hér má lesa smá samanburð á þessum skýlausnum.

 

LG_G3_1

 

Ég hef sjálfur notað leiðsöguforrit mikið, yfirleitt notast ég bara við að kynna mér ferðina fyrirfram og/eða notast við kennileiti til að rata. Yfirleitt þegar ég er að kynna mér þessar leiðir notast ég mikið til ja.is eða Google Maps. Svo með tilkomu Google Maps í símann þá var þetta ennþá auðveldara og maður getur gert þetta meira “on the fly” og núna ennþá meira með Navigation. Þetta er að sjálfsögðu ekki gallalaust kerfi því jú ef það er lélegt netsamband, 3G/4G og álíka, þá er þetta varla nothæft.

Android notendur geta einnig sótt sér Here navigation sem bíður notendum uppá að hlaða kortum niður á símtækið eða minniskortið og því þarf ekki 3G/4G fyrir leiðsögn.

 

 

Niðurstaða

Eins og þegar ég prófaði LG G2 þá kom LG G3 mér skemmtilega á óvart. Þessi sími er mjög vel búinn vélbúnaðarlega og keyrir stýrikerfi og öll forrit sem við prófuðum með stæl.

Þegar ég hugsa til baka þá var þetta mjög ánægjuleg reynsla, í fyrstu fannst mér hann ekkert spes en hann vandist mjög vel og varð síðan einn af þessum símum sem erfitt er að leggja frá sér þegar umfjöllun líkur. Það í raun og veru eftirtektarvert að það var ekkert við símann sem ég þoldi ekki, hann er vel búinn, getur allt og venst mjög vel.

Hönnunnin er það helsta sem ég vill gagnrýna við þetta símtæki en það er staðsetning takka á bakhlið sem fór hvað mest í taugarnar á mér, aðallega vegna þess hvernig ég held á símanum þegar ég tala í hann, en það er eins og langflestir sem ég talaði við.

Góð rafhlöðuending og gullfallegur skjár ásamt góðum vélbúnaði yfirvinna galla við hönnun. Síminn er mjög snarpur og skemmtilegt að vinna á því, það er ekkert hik (lagg) á tækinu sem ég varð var við og það át upp öll verkefni sem ég henti í það.

Ef þú getur sætt þig við takkana á bakhlið þá eru kostirnir augljósir og vegna þess getum við hiklaust mælt með þessu tæki fyrir þá sem vilja ekki eyða alltof miklu en eru að leita sér að alvöru Android snjallsíma sem tæklar nánast allt sem er hægt að fleygja í það í dag.

 

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira