Heim Ýmislegt Við gleymdum að gefa ykkur síma.

Við gleymdum að gefa ykkur síma.

eftir Jón Ólafsson

Fyrr á þessu ári var hér á Lappari.com leikur í samstarfi við Emobi.is en verðlaunin í þessum leik var glæsilegur Dual SIM Lumia 530 snjallsími.  Við hreinlega gleymdum að fylgja leiknum eftir og draga út vinningshafa en minnum á að við erum mannleg og eins og góðum nördum sæmir oft örlítið sunnan við okkur.

Við biðjumst afsökunar á þessu og vonum að okkur verði fyrirgefið.

 

Við ætlum að klára þennan leik og draga út heppinn vinningshafa sem fær þennan síma að launum. Það var því ákveðið að framlengja þennan leik út þessa viku og tilkynna síðan um vinningshafa klukkan 13:00 næsta föstudag (01.05.2015).

 

Fyrri þáttakendur eru vitanlega enn í pottinum en hægt verður að taka þátt þangað til dregið verður. Reglurnar mjög einfaldar en það er aðeins tvennt sem þú þarft að gera:

  1. Vera vinur okkar á Facebook
  2. Smella á þennan tengil og merkja þar bæði @emobiis og þann vin sem þú hringir mest í.

 

Lappari.com fjallaði um Nokia Lumia 530 fyrir skemmstu en Lumia 530 dual síminn er nákvæmlega eins fyrir utan að hann tekur tvö SIM kort. Þetta er því kjörinn sími fyrir þá sem vilja vera með einn síma en tvö símanúmer.

 

Hvað finnst þér?

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira