Heim ÝmislegtFréttir Verða 20 milljarða IoT tækja árið 2020?

Verða 20 milljarða IoT tækja árið 2020?

eftir Jón Ólafsson

Nýherji stóð fyrir ansi magnaðri ráðstefni á Akureyri í vikunni sem gekk undir nafninu #tæknifæri og voru nokkrir Lapparar staddir þar. Ásamt því að virða fyrir okkur nýjungar frá Lenovo þá var töluvert var fjallað um IoT eða Internet of Thing sem er samnefni fyrir nettengjanleg tæki, hvort sem það eru snjallúr, ískápar eða þvottavélar.

Snæbjörn Ingólfsson sem má með sanni segja að sé góðkunningi Lappara hélt ansi magnaðan lestur um IoT. Hann sagði gestum meðal annars að fyrsta kynslóð tengdra tækja (IoT) hafi nú þegar litið dagsins ljós, til dæmis með heilsuböndum og snjallúrum. Úrvalið muni að hans sögn aukast hratt og verðið á tækjum lækka. Þá muni tækin ná yfir stærri þætti í daglegu fólks áður en langt um líður, bæði í vinnu og einkalífi.

 

Meðal tækja sem eru orðin eða verða nettengd eru kaffivélar, ísskápar eða bílar.

Nettengd tæki verða áður en langt um líður orðin fleiri en tölvur og snjalltæki, sem við höfum notað til þess að tengjast netinu hingað til. Þessi bylting, sem nefnd hefur verið „Internet of Things”, mun ná til heilsu fólks, öryggi ýmis konar á heimilum og í borgum, fjármála og daglegrar skipulagningar fólks. Megin ávinningur þessarar tækni er aukin skilvirkni og lægri kostnaður á heimilum, vinnustöðum og samfélögum. Því er spáð að þessi þróun verði með sambærilegum hætti og snjalltækjavæðingin, en á fáeinum árum fjölgaði snjalltækjum úr 170 milljónum í einn milljarð tækja,

 

Snæbjörn bendir réttilega á að eins og sakir standa séu Asíuríki í fararbroddi í netvæðingu tækja.

Það er einkum fyrirtæki sem draga vagninn en gert er ráð fyrir að heimili og svo opinberir aðilar muni taka við kyndlinum. Þegar heimilin taka við sér þá mun skapast gríðarlegt magn af gögnum. Greiningaraðilum eins og Gartner og McKinsey, ber reyndar ekki alveg saman um fjölda nettengdra tækja á næstu árum en það má slá því föstu að þau verði rúmlega 20 milljarðar árið 2020. Það sem helst stendur þessari byltingu fyrir þrifum er sameiginlegur staðall og enn eru öryggismálin óljós.

 

Ert þú farin/n að nota einhver IoT tæki ?

Hvað finnst þér?

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira