Heim UmfjöllunUmfjöllun annað Kugel frá Thonet & Vander

Kugel frá Thonet & Vander

eftir Jón Ólafsson

Ég prófaði fyrir skemmstu ansi skemmtilega hátalara sem heita Kürbis Bt og eru frá Thonet & Vander en þeir stóðu sig mun betur en ég þorði að vona. Í framhaldi af því þá fór ég að leita mér að öflugri hátölurum sem ég gæti jafnvel notað í stofuna heima hjá mér.

Ég fékk lánaða og prófaði nokkuð marga en ég endaði þó fljótlega í Tölvutek en fyrir valinu urðu Kugel hátalarar frá Thonet & Vander. Tölvutek eru með ansi gott úrval af hátölurum hvort sem það eru einfaldir tölvuhátalarar eða öflugri og vandaðri sem nota má í stofuna.

Eins og kom fram í Kürbis Bt umfjöllun þá höfðum við lagst í nokkra rannsóknarvinnu yfir merkinu Thonet & Vanders og allt leit vel út sem við fundum á netinu og Kürbis Bt hafa reynst mér frábærlega og því áhugavert að sjá hvort Kugel reynist jafnvel.

Hér er hægt að sjá upplýsingar um Kugel frá Thonet & Vander en settið fæst í öllum verslunum Tölvutek.

 

 

Hvað er þetta og hvað er í kassanum?

Kugel samanstendur af tveimur hátölurum, annar er með innbyggðum magnara sem er síðan tengdur við annan stakan hátalara með 3 metra snúru. Á hátalaranum, sem er með magnaranum, eru 2 RCA tengi, hljómstillingar og straumtakki.

Í kassanum eru tveir hátalarar, snúrur milli hátalara, snúra frá hátalara að tæki (RCA í 3,5mm Jack), snúra að tónstyrks stýringu og síðan leiðarvísi með upplýsingum um tækið og uppsetningu.

 

Kugel_1

 

 

Hönnun

Hátalarnir eru frekar litlir og nettir miðað við hljómburð og greinilegt þegar þeir eru handleiknir að þetta er vönduð vara. Þeir eru látlausir og stílhreinir að sjá og líta út eins og venjulegir stofuhátalarar sem mér líkar vel við (ekkert of space’að útlit). Á framhlið þeirra er svört tauhlíf sem hlífir tveimur stökum hátölurum sem þar eru en bassakeilan er 6.5″ og sér hún um miðju og lágtóna og er þar einnig nákvæmur 1″ tweeter sem sér um hátóna.

 

Stærðir

  • Hæð: 35.5 cm
  • Breidd: 22.2 cm
  • Dýpt: 23.9 cm

 

Annar hátalinn er, eins og fyrr segir, með innbyggðum magnara ásamt því að á bakhliðinni er sjálft stjórnborðið fyrir þá en þar er hækka/lækka takki ásamt sértakka fyrir há og látíðni (bass/treble). Þar er einnig straumgaumljós sem gefur til kynna hvort það sé kveikt á þeim eða ekki.

Á bakhlið eru áðurnefnd tvö RCA tengi en það fylgir með ein RCA í 3.5mm tengi sem einfalt er að tengja í t.d. MP3 spilara þannig að notendur ættu að geta tengt flest allt sem þeim dettur í hug við þessa hátalara. Hátalarar standa á sterklegum plastpúðum sem gerir það að verkum að hátalarar standa stöðugir á gólfi/borði og renna ekki auðveldlega til.

 

Kugel_4

 

Það eina sem pirraði mig í raun og veru við hönnunina er tónstyrkstýring sem sést á myndinni hér á ofan en ég hefði viljað hafa þetta innbyggt í hátalarana en ekki á þessari snúru, þetta er auka vesen og eykur líkurnar á að eitthvað skemmist eða bili.

 

Uppsetning

Uppsetning á Kugel var mjög einföld en ég stakk græjunni í straum, tengdi hátalarana saman og tengdi síðan RCA í 3.5mm snúruna í hljóðkortið á stofutölvunni (Media Center). Þetta er eins einfalt og það má vera en það eru flest öll tæki með 3.5mm tengi fyrir heyrnartól og því má segja að Kugel gangi við öll tæki.

 

Kugel_2

 

 

Hljómburður

Kugel eru núna staðsettir inni í stofu sem ég var fyrirfram smeikur við að væri of stór fyrir þá en eins og fyrr þá koma þessir hátalarar frá Thonet & Vander mér mikið á óvart. Þrátt fyrir að vera frekar litlir þá er hljómburður góður og sér í lagi líkaði mér við mjúkann og nákvæman bassahljóm ásamt krystaltærum miðjuhlómi.

Þegar horft er á sjónvarp við lítinn tónstyrk þá fannst mér stundum vanta auka bassa eins og maður er vanur í 2.1 stettum þar sem sérstakt bassabox fylgir með. Það er reyndar einfalt að hækka bassann í hátölurunum eða bara einfaldlega hækka aðeins meira til að taka ekki eftir þessu.

Við lágan styrk hafði ég gaman af því að hækka vel í bass/tre á bakhliðinni en hljómurinn er einstaklega hlýr og tær. Ég prófaði að keyra tónstyrkinn vel upp og þoldu þeir vel allt sem ég taldi vera eðlilegt fyrir þá og þurfti tölverðan tónstyrk til að láta þá bjaga hljóminn.

Ég prófaði að tengja þá við flest tæki sem ég gat á heimilinu og má segja að þeir hafi aldrei valdið mér vonbrigðum og réðu með stæl við allt sem ég prófaði í þeim. Það er vitanlega töluverður munur á hljómgæðum sem berst frá tækjum og heyrðist þessi munur vel þegar þessar prófanir voru gerðar.

Uppgefið tónsvið er frá 40Hz og upp í 20KHZ en Kugel eru uppgefnir sem 120 Watts RMS eða 60 á hvorn hátalarara.

 

Kugel_3

 

Það er sami Tweeter í Kugel og er í Kürbis Bt en hann er gerður úr hágæða silki og skilar sér í mjög nákvæmum og öflugum tweeter.

 

Silk is one of the strongest natural fibers. Unlike synthetic fibers, it has a soft, smooth and stress-resistant texture. Its firmness and sensitivity allows high performance, yield and quality in the reproduction of treble. That´s why this noble material is used in the tweeters of our classic 2.0 and Hi- End line.

 

Bassakeila er 6.5″ stór og töluvert öflugri en í Kürbis BT en hún er gerð úr sérstöku efni sem kallast aramid fiber og skilaði sér í mjúkum, djúpum og nákvæmum bassa við minni tónstyrk og er nægilega öflug til að skila hlutverki sínu vel þegar hækkað er í þeim (öflugt kick).

 

Aramid fiber is a synthetic, firm and light fiber. It is an organic material of high performance due to its outstanding thermal and mechanical resistance, it is characterized by being resistant to shocks, light and moisture. Usually this material is used in the aerospace, textile and security industries due to its rigidity and its ultra slim weight. We use it to develop the woofers from our classic 2.0 and hi End line.

 

 

Niðurstaða

Eins og þegar ég prófaði Kürbis BT þá komu Kugel mér mikið á óvart og er ég í skýunum með þá. Þeir eru hljómmiklir og öflugir og sinna sínu hlutverki í stofunni mjög vel hvort sem þeir eru tengdir við heyrnartólstengið á sjónvarpinu eða með RCA snúru beint við geislaspilara.

Kugel eru mjög vel smíðaðir, massífir og sterklegir að finna og má segja að gæðin skíni hreinlega í gegn þegar hátalarnir eru handleiknir. Miðað við annað sem ég fann á svipuðu verði þá virðist Kugel vera mjög góð kaup og standast allan samanburð með sóma.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira