Sony Xperia Z2

eftir Jón Ólafsson

Það er ekki langt síðan ég prófaði Xperia Z1 en núna aðeins 8 mánuðum seinna var ég að prófa nýtt flaggskip sem á pappírum virðist vera verðugur arftaki hins fyrri. Z1 var alls ekki gallalaus og fagnaði ég því tækifærinu að fá að prófa Sony Xperia Z2.   Eins og fyrr segir þá var Sony Xperia Z1 alls ekki gallalaus sími og má telja líklegt að svona stutt sé milli flagskipa vegna þess að Sony ætlar að laga það sem sett var útá og byggja á þeim góða grunni sem Xperia Z1 sannarlega var. Þessi umfjöllun er búin að taka mjög langan tíma og náði ég því prófa símtækið ítarlega.

 

Hér má sjá Sony Xperia Z2 afpökkun

 

Hönnun og vélbúnaður

Sony Xperia Z2 er stórglæsilegt símtæki en reyndar fannst mér Z1 vera stórglæsilegur á sínum tíma. Z2 er þó ekki jafnfallegur og HTC One m8 en fyrir utan M8 þá er þetta einn fallegasti sími sem ég hef haldið á. Ég fékk strax á tilfinningunni að í höndunum hafi ég sterkann og vel smíðaðan síma. Xperia Z2 heldur í útlit forvera sinna að miklu leiti og er eins og Z1 samsettur utanum álramma (eitt heilt stykki) sem vitanlega gerir símtækið mun sterkara og massífara þegar það er handleikið.   Álramminn þekur hliðar símans og hjálpar til við að gefa þá tilfinningu að notandinn haldi á sterku og vönduðu tæki. Sony Xperia Z2 sem ég prófaði er hvítur og eins og fyrr segir með álkanti allan hringinn.

Z2_2

 

Sony Xperia Z2 auglýsing

 

Framhlið er öll úr einu heilu glerstykki og ver stóran og fallegan 5.2“ skjáinn. Það eina sem sést á framhlið er örþunn rauf að ofan þar sem hátalarinn er og önnur neðst þar sem hljóðneminn er, þar er reynar líka hátalari sem gefur góðan stereo hljóm en meira um það seinna. Allur frágangur á framhlið er til fyrirmyndar og greinilega vandað vel til verka. Líkt og á Xperia Z1 þá eru stór svæði efst og neðst á framhlið Z2 sem pirrar mig lítillega og nýtist ekkert. Efst er Sony logo og myndavél en neðst er dautt svæði sem er ekkert nýtt.

Xperia Z2 er með þrjá takka á hægri hlið, sértakki fyrir myndavél, hækka/lækkatakka ásamt power takka sem fellur mun betur að útliti símans en hann gerði á Z1. Staðsetning takka er mjög góð og einfalt að ná til þeirra með annari hendi en ef eitthvað er þá er power takki of nálægt hækka/lækkatakka sem olli því að ég þurfti oft að leita aðeins að honum þegar ég opnaði símann.   Síminn er allur frekar kassalaga að sjá en samt með rúnuðum og frekar skörpum hornum. Síminn liggur ágætlega vel og örugglega í hendi. Bakhlið á símanum er þakinn einu heilu glerstykki og því slétt, eina sem sést á bakhlið er Sony logo og tvær myndavélar.

 

Helstu stærðir í mm.

  • Hæð: 146.8
  • Breytt: 73.3
  • þykkt: 8.2
  • Þynngd: 163 gr

 

Sony Xperia Z2 tekur eins og flest önnur flagskip fullan þátt í vélbúnaðarkapphlaupi annara framleiðanda en hann er mjög vel búinn vélbúnaðarlega.  Síminn skartar nýjasta Snapdragon 801 kubbasettinu og keyrir á fjórkjarna 2.3 GHz Krait 400 örgjafa (Adreno 330 GPU) og ætti því að ráða við flest allt sem notendur vilja keyra á símanum ásamt því að vera með 3GB í vinnsluminni sem er á pari við öflugustu símtæki á markaðnum í dag. Þessi öflugi örgjörvi og vinnsluminni skilar sér í viðbragðsgóðu viðmóti og hef ég aldrei orðið var við eitthvað hökt í símann, hvort sem er í stýrikerfinu sjálfu, forritum eða í leikjum enda óeðlilegt á svo dýrum síma.

Z2_5

Eins og þegar við prófuðum Nokia Lumia 1020 sem er símtæki með 41MP myndavél þá set ég spurningarmerki við aðeins 16GB geymslurými (Lumia 1020 er með 32GB). Sérstaklega vegna þess að aðeins 12GB eru laus fyrir notendur, restin fer undir ROM og innbyggð forrit. Þetta segi ég því myndir sem notendur taka á 20.7MP myndavél vistast á þessi 12GB ásamt því að það samnýtist undir stýrikerfi og annað margmiðlunarefni. Munur á Lumia 1020 er að Xperia Z2 er með rauf fyrir microSD kort og því einfalt og ódýrt að bæta við auka 64GB af geymslurými undir ljósmyndir og margmiðlunarefni. Það er því nauðsynlegt að bæta strax við stóru minniskorti til að vista myndir og annað efni á. Einnig er hægt að sækja og setja upp lausnir eins og OneDrive, GDrive eða Dropbox til að vista ljósmyndir og gögn.

 

Tengimöguleikar

Ég er mögulega eitthvað takmarkaður en ég hef aldrei fundið löngun til þess að vera með síma eða taka myndir með síma í vatni en það eru líklega margir sem heillast af því. Sony Xperia Z2 er vatnsheldur eins forveri sinn og eru því flest tengi varinn með loki sem þarf að opna til þess að komast í þau, þetta er stór ókostur að mínu mati en þetta er málamiðlun sem verður að vera til að gera tækið vatnshelt. Vitanlega er þetta bara mín skoðun en þetta er nauðsyn fyrir þá sem þurfa vatnsvarinn síma en augljóslega ókostur fyrir alla aðra.

Xperia Z2 er með IP55 og IP58 vottun sem þýðir að hann er rykvarinn og ef allar hlífar eru lokaðar þá ætti hann að þola vatnsskvettur ásamt því að vera vatnsheldur niður að 1 metra af ferskvatni í allt að 30 mínútur.

Z2_8

Á vinstri hlið Sony Xperia Z2 er USB tengi ásamt því að þar fer SIM kortið inn í vatnshelt hólf

Z2_7

Á hægri hlið er rauf fyrir microSDXC kort bakvið vatnshelt lok.

 

Ég tengdi símtækið við tölvuna (Windows 8.1) til að sækja ljósmyndir sem ég hafði tekið og var það nokkuð einfalt. Síminn kom fram í My Computer og myndirnar þar inni í möppu sem heitir „innri geymsla\DCIM\100ANDRO“.   Efst á síma er 3.5 mm heyrnartólstengi sem er alltaf opið, þarf ekki lok yfir til að gera tækið vatnshelt. Xperia Z2 er með Bluetooth 4.0 (A2DP) og með þráðlausu neti eins og við er að búast sem styður 802.11 a/ac/b/g/n og þar með allar helstu dulkóðanir sem skipta máli eins.

Sony Xperia Z2 er einnig með NFC kubb sem býður meðal annars uppá borganir, samnýtingu gagna, og notkun NFC merkja. Símtækið styður 4G að fullu og var mjög sprækur á 4G neti Símanns meðan ég prófaði hann.

 

Rafhlaða og lyklaborð

Rafhlaðan var mjög góð í Xperia Z1 og er hún sambærileg í Xperia Z2. Rafhlaðan er nú 3200 mAH, óútskiptanleg en því miður sá ég engar miklar framfarir frá Z1. Ekki svo að skilja sem það sé vonbrigði, hún er “bara” sambærileg.

  • Tal yfir 2G: 15 tímar
  • Tal yfir 3G: 19 tímar
  • Biðtími: 35 dagar

 

Það má því segja að rafhlöðuending sé frábær og það skipti litlu hversu mikið ég notaði símann, alltaf gat ég klárað daginn með töluverða hleðslu eftir í lok dags. Jafnvel þó svo að ég notaði símann og myndavél töluvert mikið í þessum prófunum. Venjulegur dagur hjá mér er að taka nokkuð af ljósmyndum ásamt því að vera ávallt tengdur við WiFi eða 4G og að samstilla 3x EAS tölvupóstreikninga. Má hafa í huga að léleg ending á fyrstu 1-2 dögum er oft eðlileg meðan símtækið er að index´a gögn notenda.

Hér má sjá nokkur ráð sem ég tók saman fyrir Windows síma en þau eiga við önnur símtæki ef þú vilt lengja rafhlöðuendinguna .

Sony Xperia Z2 er með tengi fyrir vöggu á vinstri hlið sem síminn getur staðið í en samkvæmt Sony á vaggann að hlaða símtækið líka. Vaggan er alls ekki vitlaus hugmynd þar sem tæki með svona stóran skjá nýtist til að horfa á mediaefni. Það fylgir þó ekki vagga með símtækinu og því gat ég ekki prófað þetta.

Z2_3

Stýrikerfið og lyklaborð er á íslensku sem er kærkominn viðbót og ætti að einfalda og létta mögum lífið, íslensk þýðing á kerfinu er nokkuð góð og tiltölulega einfalt að rata um kerfið. Lyklaborðið í Xperia Z2 er gott og þæginlegt er að nota það til innsláttar. Síminn er með innbyggðu „Swipe“ lyklaborði sem þýðir að notendur geta bara strokið yfir lyklaborðið til þess að skrifa og þeir sem nota þetta segja almennt að hraðinn við innslátt eykst mjög mikið.

 

Hljóð og mynd

Skjárinn á Sony Xperia Z2 er gullfallegur 5.2″ Triluminos LCD Full HD skjár sem styður 1920×1080 upplausn eða 424ppi (pixel per inch). Skjárinn er “fjölsnertiskjár” og skynjar allt að 10 fingra fjölsnertingu. Þegar ég prófaði Xperia Z1 þá varð ég fyrir vonbrigðum með skjáinn en ég vonaði því svo sannarlega að Sony hafði lagfært hann í Xperia Z2. Skjárinn er mjög flottur á blaði (speccalega) en það er enn eitthvað við hann sem pirrar mig þó að hann sé mun betri en hann var á Z1. Þetta flokkast vitanlega sem persónulegt mat því þetta er ekki mælanlegt en ég get útskýrt þetta þannig að mér finnst enn að skjárinn sé frekar líflaus og það er eins og það vanti „eitthvað“.

Skjárinn er mjög góður innanhús við kjörbirtustig en utanhús er hann einfaldlega lélegur, sérstaklega ef það skín sól á skjáinn. Eins og í Z1 þá eru litir og texti eru í lagi ef horft er beint á símtækið en um leið og síminn hallar aðeins þá renna litir saman og texti verður illlesanlegur. Mér hefur verið bent á að mörgum þyki þetta kostur þar sem aðrir sjá síður á skjáinn en þetta flokkast sem galli í minni sveit.

Punktaþéttleikinn er eins og fyrr segir 424ppi sem er með því hæsta sem þekkist í snjallsímum og öll snertivirkni í skjánum er mjög góð. Eins og við er að búast þá er erfitt er að nota símann með blauta fingur eða í vettlingum. Get ekki gert að því að mér þykir það svolítið glatað….  sérstakt þar sem síminn er vatnsheldur og því líklega ætlaður til notkunar við erfiðar aðstæður, en þessi upplifun er eins á Samsung Galaxy S5.

 

Sony er ekki nýliði þegar kemur að framleiðslu myndavéla og hafa þeir lagt mikið á sig til þess að geta keppt við myndavéla síma eins og Lumia 1020. Þeir vilja meina að þeim hafi tekist að gera Point-To-Shoot myndavélar óþarfar þar sem gæðinn í Xperia símtækjunum séu sambærileg og er ég að miklu leiti sammála því (enda ekki að miklu að keppa).

 

Hér er myndband frá Android Authority þar þeir fjalla um myndavélina.

 

Myndavélin í Xperia Z1 var ekkert slor en hún hefur verið endurbætt töluvert í Z2 en símtækið er með 20.7MP myndavél eins og áður hefur komið fram og tekur upp myndbönd í 4K upplausn (2160p@30fps). Ef tekinn eru upp 4K myndbönd þá tekur hver mín um 400MB sem þíðir að þessi 12GB fyllast á tæplega 30 mín.

Myndavélin er með 1/2.3″ myndflögu (sensor) með IS (Image Stabilization), HDR og Panorama svo að eitthvað sé nefnt. Síminn er með ágætri linsu sem tryggir að áhugaljósmyndarar ættu ekki að verða sviknir af myndum sem símtækið tekur. Notendur munu að mestu fá yfirsamplaðar 8MP enda er það sjálfgefið við sjálfvirka stillingu en hægt er að fara í handvirkar stillingar til að ná myndum í meiri gæðum sé þess óskað.

Ég er sannfærður um að fæstir þurfa ljósmyndir úr snjallsímum sem eru meira en 8MP en fyrir dellukalla og áhugaljósmyndara þá skipta þessir hlutir samt miklu máli.

Z2_6

Venjulega þarftu að einbeita þér að því að halda myndavélasímum alveg stöðugum til að ná góðum videóum en þetta þarf ekki þegar Sony Xperia Z2 er notaður. Sony Lens G linsan skilar björtum myndböndum og víðu sjónarhorni sem að skilar aftur af sér skörpum ljósmyndum og myndböndum. Xperia Z2 er einnig með 2MP myndavél á framhlið sem hentar þvi vel t.d. í Snapchat eða myndsímtöl eins og Skype eða Hangout en hún getur tekið 1080p myndbönd.

Myndavélaappið býður uppá sjálfvirka upphleðslu á ljósmyndum yfir WiFi en til þess þarf notandi að vera með Sony Entertainment Network reikning (Er einhver með það?). Innbyggða myndavélaappið virðist ekki bjóða uppá upphleðslu á myndum eða myndböndum á hefðbundnar skýlausnir eins og OneDrive, Dropbox eða Google Drive. Það er samt hægt að nota Google Photos í staðinn fyrir Sony Album appið og opna Photos > Settings > Auto Backup og smella þar á ON efst og þá er myndum hlaðið inn á Google+ síðu notenda.

Ég verð samt að enda þessa samantekt um myndvélina á neikvæðum nótum. Sony er eini stóri framleiðandinn annar en Nokia sem hefur keppt á 20MP + leikvellinum og væntir maður því mikils af þeim. Sony veldur mér vonbrigðum því hugbúnaðurinn sem fylgir með myndavélinni er lamandi og vinnur myndir úr þessari ágætu 20.7MP myndavél frekar illa. Focus er hvorki hraður né nákvæmur sem veldur því að myndir virðist oft á tíðum vera “of mjúkar” og á stundum smá ýktar. Myndvinnsluhugbúnaður frá Sony, sem kallast Bionz, vinnur myndir yfirleitt of mikið sem veldur gerfilegri ofmetun  og gerfilegum litum.

Ég get þó sagt að myndavélin komi mér töluvert á óvart, sem þarf  svo sem ekki að vera gott. Þegar ég var að gefast upp á myndvélinni þá skilaði hún mér flottum myndum sem ég féll fyrir, þó olli hún mér oftar en ekki vonbrigðum. Það má vera að kröfurnar séu of miklar hjá mér en það má ekki gleyma því að þetta er flaggskip frá Sony og því eðlilegt að til þess séu gerðar kröfur.

Hátalarar eru eins og fyrr segir staddir efst og neðst á síma og skila þeir saman hann mjög góðum hljómi hvort sem var við símtöl með hátalara eða við tónlistarafspilun. Hátalarar í Xperia Z1 eru mjög góðir og þessir eru einfaldlega enn betri, sannarlega langbestu hátalarar í síma sem ég hef prófað. Síminn er með stafrænni útilokun á umhverfihljóðum sem ætti að virka vel í íslenska rokinu.

 

Margmiðlun og leikir

Margmiðlunarupplifun á Xperia Z2 er mjög góð eins og við er að búast á flaggskipi og ræður hann við að spila og gera “allt” það sem ég ætlaði honum. Hvort sem það var leikur sem ég sótti af Google Play, bíómynd af innra-minni, Youtube video eða aðra vefstrauma. Það er sama og ekkert hik í vinnslu (e. lag) símans enda er hann, eins og fyrr segir, mjög vel búinn vélbúnaðarlega. Einstaka forrit fraus eða var stundum lengi að ræsa sig en það er svo sem ekki óþekkt fyrirbæri í Android.

Með innbyggðum tónlistarspilara ásamt þjónustu eins og Spotify áskrift eða Google Music þá ertu kominn með öfluga tónlistarkosti. Einfalt er einnig að bæta við tónlist eða bíómyndum beint af tölvu og ætti Xperia Z2 að ráða við allt sem þú gætir vilja notað hann í.

Z2_1

Það er kostur að hafa rauf fyrir auka minniskort þar sem einfalt er að samnýta það fyrir ljósmyndir og annað margmiðlunarefni á stóru SD korti.

 

Hugbúnaður og samvirkni

Sony Xperia Z2 kemur með Android 4.4.2 sem er nýjasta útgáfun af Android en Sony bætir ofaná sérstöku Sony viðmóti. Xperia Z2 kemur ágætlega útbúinn hugbúnaðarlega sem gerði það að verkum að mig vantaði ekki mörg forrit til viðbótar. Sem dæmi um forrit sem fylgja ókeypis með má nefna Office Suite sem er afsprengi af Office hugbúnaðar svítu Microsoft. Office Suite gerir notenda kleift að opna Word, Excel og PowerPoint skjöl en öll vinna með þau er takmörkuð. Vert að geta þess að Office svíta Microsoft mun mjög fljótlega verða vera fáanleg fyrir Android.

Sony virðist gera enn eina tilraunina til að fá notendur til að nota skýjaþjónustur sínar og leikjamarkað. Eftir nokkra daga var ég búinn að raða Sony forritum saman í möppu sem heitir „ónotað“. Ég ætla svo sem ekki að fara yfir þessi Sony forrit að öðru leiti en að minnast á þau. Þessi Sony forrit þvælast svo sem ekki mikið fyrir notenda og einfalt er að fyrirgefa Sony fyrir þetta.

Þar sem þetta er Android sími þá fylgir Google svítan einnig með ásamt þessu venjulega eins og tölvupóstforrit, reiknivél, dagbók, tengiliðir, vekjaraklukka o.s.frv. Í hvert skipti sem ég prófa Android síma þá þarf ég að minnast á magn og flækjustig forrita fyrir venjulega notendur.  Það er truflandi að vera með á nýju tæki tvö forrit sem gera sama hlutinn eins og t.d. tvö myndaalbúm og tvo tónlistarspilara. Ég hef áður fjallað um það hér að of mikið val er ekki endilega besta lausnin. Vanir notendur (power-users) fagna því að hafa úr miklu að velja meðan ég reikna með að venjulegir notendur hafi ekki hugmynd um hvort forritið þeir eiga að nota og þvælast á milli þeirra, eru þá með mikið af forritum sem þeir nota aldrei og taka þannig pláss og þvælast fyrir.

Það er ýmis furðuleg virkni sem Android notendur “lenda í” þegar ýmis forrit eru notuð í fyrsta skipti. Einfalt dæmi þá kom upp gluggi sem þegar ég var búinn að taka fyrstu ljósmyndina sem spurði mig hvernig ég “vildi klára þessa aðgerð” en ég vildi vitanlega gera það með stæl en það var ekki hægt að velja það. Ég gat valið hvort ég vildi skoða myndir í Sony Albúm eða Google Photo en bæði þessi forrit eru þarna þó svo að ég noti bara annað þeirra. Ég valdi Sony Album fyrst en skipti síðan um skoðun og þó svo að ég sé nokkuð vanur snjallsímum og þ.m.t. Android þá tók mig töluverðan tíma að finna þessa valkosti í stillingum þegar ég vildi breyta sjálfvali.

Sony hafa farið nokkuð góða leið með stýrikerfið að mínu mati en það er ansi nálægt Android eins og það kemur af spenanum (e. stock). Kerfið er viðbragðsgott og ekki of mikið af krúsídúllum  eins og þegar Samsung er skoðað til samanburðar. Sem vinnutæki þá er samstilling á vinnuskjölum milli símtækis og vinnutölvu ekki mikil og lítið hægt að vinna með þau á síma ásamt því að ég hafði ekki aðgang að vinnuskjölum á SharePoint en það eru forrit í Google Play sem bjóða uppá einhverja frekari samþættingu. Einnig er hægt að setja upp Google Drive, OneDrive eða Dropbox á borðtölvu og síma og samstilla þannig vinnuskjöl en þetta er ekki innbyggt í símtækið og alls ekki jafngott og á Windows Phone símtækjum.

Þessi takmarkaða skjalavinnsla dugar líklega langflestum en sem vinnutæki sem ég nota mjög mikið þá er þetta frekar hamlandi fyrir mig en þetta á ekkert frekar við Xperia Z2 frekar en annað Android tæki.

 

Z2_9

Leiðsöguhugbúnaður sem fylgir nú ókeypis með Android símum er frá Google og byggir á kortum úr Google Maps. Mín reynsla af Google Navigation er sú að þetta virkar mjög vel í borgum erlendis en er mjög takmarkað í minni löndum eins og Íslandi og þá sérstaklega utan Reykjavíkur. Ég er t.d. óendanlega fúll yfir því að gatan mín sé ekki enn kominn í Google Maps þó svo að hún sé aðeins 5 KM fyrir utan Akureyri og er orðin rúmlega 10 ára.

Google Navigation er með ekki með “offline” virkni sem gerir það verkum að kort og leiðsöguupplýsingar eru sóttar yfir 3G/4G og kosta þannig penning innanlands og eru nær ónóthæft erlendis vegna kostnaðar.

Hér má sjá Youtube video sem sýnir offline samanburð á Nokia Here Drive sem fylgir ókeypis með Nokia sjallsímum og Google Navigation.

 

Þegar ég ferðast erlendis þá er ég oft með erlent SIM kort og get því notað Google Navigation og er það mjög gott með gagnatengingu en vonlaust ef notenda er með Íslenskt SIM kort vegna kostnaðar.

Z2_4

 

 

Niðurstaða

Sony Xperia Z2 er ágætis uppfærsla á Xperia Z1 símanum, þetta er alvöru alvöru hetjutæki og er almennt fágaðari, öflugri og betri en forveri sinn. Þó að ég setji út á nokkur atriði í umfjöllun þessari þá er Z2 er með betri Android tækjum á markaðnum.

Ef þú ert að leita þér að flaggskipi sem heitir ekki Galaxy S5 eða HTC One (m8) þá er Sony Xperia Z2 sannarlega tæki sem vert er að skoða betur, sérstaklega ef þú ert að leita að vatnsheldum síma með góðri myndavél til að taka ágætis tækifærismyndir.

 

 

Xperia Z2 er gríðarlega öflugur og góður sími, búinn vélbúnaði sem er á pari við það besta sem mögulegt er að finna þarna úti í dag. Öflugur örgjörvi, nóg af vinnsluminni og almennt mjög fallegur sími á að horfa.

Fyrir utan hluti sem eru sameiginlegir með öllum Android símum þá er þrennt neikvætt við vélbúnaðinn í Sony Xperia Z2 sem ég vill nefna hér í niðurstöðunni.

  1. Ég sé ekki þörfina fyrir vatnsheldan síma og því eru þessi lok fyrir portum og hólfum er stór galli fyrir mig þar sem ég nota þessar tengingar nær daglega og stundum oft á dag.
  2. Miðað við „specca“ þá var ég fyrir vonbrigðum með skjáinn, fannst hann sýna frekar líflausa liti ásamt því að hann vonlaus utanhús.
  3. Myndavélin er jafn frábær og hún er vonlaus…. hljómar án niðurstöðu en ég var fyrir vonbrigðum með hvernig síminn of vann ljósmyndir og að focus var oft seinn og ónákvæmur.

Að þessu sögðu eru lokaorð mín að ef þig vantar vantsheldan snjallsíma þá er Sony Xperia Z2 mjög góður sími sem ég mundi glaður kaupa frekar en Samsung Galaxy S5.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira