Heim Ýmislegt QuizUp – Fréttatilkynning

QuizUp – Fréttatilkynning

eftir Jón Ólafsson

Ég fæ oft sendar fréttatilkynningar og stundum birti ég þær, ef þær vekja áhuga minn…  Hér er verið að kynna nýjan leik sem Íslenskur leikjaframleiðandi er að setja á markað og því um að gera að vekja athygli á honum eins og hægt er.

—- Fréttatilkynning er birt óbreytt hér að neðan —-

 

QuizUp, stærsta spurningaleik í heimi, hleypt af stokkunum

 

Íslenski leikjaframleiðandinn Plain Vanilla hleypir QuizUp af stokkunum í dag. Um er að ræða spurningaleik fyrir iPhone sem er sá stærsti sinnar tegundar í heiminum en í leiknum er að finna um 150 þúsund spurningar í hátt í 300 flokkum. QuizUp er fyrsti spurningaleikurinn til að bjóða upp á samskipti á milli vina jafnt sem ókunnugra sem spila í leiknum, hvort sem það er í gegnum bein skilaboð, umræðuþræði eða staðbundnar stigatöflur (eftir borgum og löndum).

 

Keppendur í QuizUp geta valið sér ótakmarkaðan fjölda flokka þar sem þeir spila ýmist einir, við aðra samtímis eða leika fyrst heila lotu og bíða síðan eftir að sá sem skorað var á klári sinn leik. Ef keppendur tengjast QuizUp í gegnum Facebook þá geta þeir skorað á vini sína eða fengið leikinn til að velja fyrir þá hinn fullkomna andstæðing. Hver viðureign í QuizUp stendur yfirleitt yfir í minna en eina mínútu. Keppendur fá sjö spurningar og hafa að hámarki 10 sekúndur til að svara. Sá sem svarar fleiri spurningum rétt sigrar. Í lok hvers leiks birtist keppandanum samantekt yfir þróun leiksins, en þar má sjá stigafjölda, lokabónus, sigurbónus og heildarbónus, sem leggjast við og hækka viðkomandi á heildarstigalistum QuizUp.

 

Eftir því sem keppendur þræða sig áfram í hverjum efnisþætti og spurningaflokkum í Quiz Up vinna þeir sér inn titla og heiðursmerki eins og: Best(ur) í borginni eða landinu. Komist keppendur upp í borð 10 í flokki geta þeir bætt titlum við prófílinn sinn (t.d. „Dough Boy“ í flokknum lógó og „Car Zar“ í flokknum bílar). Í prófíl hvers keppanda má m.a. sjá uppáhaldsflokka og þá titla og heiðursmerki sem viðkomandi hefur unnið sér inn.

 

Tengill á leikinn í App Store:  https://itunes.apple.com/us/app/quizup-biggest-trivia-game/id718421443 

 

Flokkar og efnisþættir í QuizUp

  • Listir og bókmenntir (listir: almennt, bókmenntir: almennt, arkitektúr, klassískt, Batman, Biblían, barnabókmenntir, Fifty Shades of Grey, Harry Potter, The Hunger Games, The Hichhiker‘s Guide to the Galaxy o.fl.)
  • Viðskipti (vörumerki, hagfræði, frumkvöðlar o.fl.)
  • Fræðsla (stærðfræði: almennt, stærðfræði: auðvelt, stærðfræði: erfitt, orð, skilgreiningar orða)
  • Landafræði (Afríka, Asía, Ástralía, Evrópa, fánar, nefnið borgina, nefnið landið, nefnið fánann, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka, ríki í Bandaríkjunum, höfuðborgir)
  • Saga (saga: almennt, 16. og 17. öldin, 18. og 19. öldin, 20. og 21. öldin, Grikkland til forna, Róm til forna o.fl.)
  • Lífsstíll (bjór, bílar, jól, föt, snyrtivörur, drykkir, tíska, matur, grænmeti og ávextir, heilsa, innanhússhönnun, leikföng o.fl.)
  • Kvikmyndir (kvikmyndir: almennt, hasar og ævintýri, teiknimyndir, Batman, Bollywood, klassískar myndir, gamanmyndir, Disney, drama, The Godfather, Harry Potter, hryllingsmyndir, The Hunger Games, Indiana Jones, James Bond, Lord of the Rings, Óskarsverðlaunin, Pixar o.fl.)
  • Tónlist (tónlist: almennt, tónlist frá 7. áratugnum, tónlist frá 8. áratugnum, tónlist frá 9. áratugnum, tónlist frá 10. áratugnum, Bítlarnir, Beyoncé, kántrítónlist, hip hop og rapp, Elton John, strákasveitir o.fl.)
  • Vísindi (líffræði, efnafræði, jarðfræði, mannslíkaminn, eðlisfræði, læknisfræði, vísindamenn o.fl.)
  • Íþróttir (íþróttir: almennt, kappakstur, hafnabolti, körfubolti, ruðningur, fótbolti, box, skák, hokký, MMA, Ólympíuleikarnir o.fl.)
  • Sjónvarp (sjónvarp: almennt, sjónvarpsþættir frá 9. áratugnum, sjónvarpsþættir frá 10. áratugnum, The Big Bang Theory, Breaking Bad, Buffy the Vampire Slayer, Desperate Housewives, Dexter, Doctor Who, Family Guy, Seinfeld o.fl.)

  

Keppendur í QuizUp geta keypt svokallaða XP Boosters sem gera þeim kleift að komast hraðar upp í næsta borð. Aðeins er hægt að vera með eitt „búst“ virkt á hverjum tíma og endist það í eina klukkustund. Hægt er að kaupa tvöfalt, þrefalt og ferfalt „búst“.

 

Verðskrá fyrir „búst“

  • Tvöfalt „búst“ kostar $1.99
  • Þrefalt „búst“ kostar $3.99
  • Fjórfalt „búst“ kostar $5.99

 

Bandaríkin mikilvægasti markaðurinn – en Ísland skiptir stofnendur þó máli
Leikurinn kemur út samtímis um allan heim en markaðssetning hans fer að mestu fram vestanhafs. Þó að Ísland sé ekki helsti markaður Plain Vanilla, sem gefur út QuizUp, þá fer þróun leiksins að nær öllu leyti fram hér á landi. Áhugi Íslendinga á spurningakeppnum er jafnframt mikill og Plain Vanilla birti heilsíðuauglýsingar í íslenskum dagblöðum í morgun til að kynna leikinn fyrir landsmönnum. Íslenskir stofnendur vonast eftir góðum undirtektum við leikinn hér á landi – þó ekki nema sé til að gleðja þá fjölmörgu íslensku starfsmenn sem unnið hafa að leiknum síðustu misseri.

Orðaþrautir njóta vinsælda – því ekki spurningaleikir?
Leikir þar sem fólk spilar við aðra í gegnum síma og spjaldtölvur hafa notið vaxandi vinsælda undanfarið og orðaþrautir ýmiss konar eru sérstaklega vinsælar. Fjárfestar í Plain Vanilla telja að QuizUp geti höfðað til sama hóps en enginn sambærilegur leikur er á markaðnum. Spurningaspil eins og Trivial Pursuit njóta mikilla vinsælda víða um heim sem og Pub Quiz spurningakeppnir þar sem fólk keppir sín á milli á öldurhúsum. Því má telja að jarðvegurinn fyrir spurningaleik eins og QuizUp sé allgóður.

Nánari uppl. veitir Andrés Jónsson hjá Góðum Samskiptum.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira