Heim MicrosoftWindows 7 Windows – Autologin

Windows – Autologin

eftir Jón Ólafsson

Ég er að setja upp Windows 8 MediaCenter tölvu og vantaði að láta vélina sem er á Domain logga sig sjálfkrafa inn, sem sagt án þess að þurfa að slá inn kenni notenda. Ég fór því í smá tiltekt og er hér að endurvinna rúmlega þriggja ára gamla færslu sem ég var núna að prófa á Windows 8.

Ég er þannig búinn að staðfesta að þetta virkar á MCE2005 > WinXP > Vista > Win7 og núna Win8…

 

Logga réttan notenda inn í kerfið

Windows + R > skrifa Regedit og ýta á OK

Fara á eftirfarandi stað
HKLM>Software>Microsoft>Windows NT>CurrentVersion>Winlogon

Breyta/Bæta við eftirfarandi gildum…   nýjum er bætt við með New String Value

  • DefaultUserName      /sett inn sem user    eða    domain\user ef vélin er á domain
  • DefaultPassword    
  • AutoAdminLogin í 1   /(1 en ekki L).

 

Þá er bara að endurræsa og prófa en ég minni á að þetta minnkar öryggi vélarinnar mikið þar sem það er nóg að ræsa hana til að fá aðgengi að henni. Þannig væri hægt að opna Regedit og sjá user/pass en þetta er nú líklega í lagi á vélum sem fólk hefur takmarkað aðgengi að.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira