Nokia Lumia 520

eftir Jón Ólafsson

Það er sannarlega skemmtilegra að prófa flagskip símaframleiðanda en mér fannst samt spennandi þegar Hátækni bauð mér að ódýrasta símann frá Nokia sem heitir Lumia 520. Eftir að hafa prófað nokkra Nokia Lumia síma (620, 720, 820, 920 og 925) þá hlakkaði mig kannski mest til að prófa þennan Lumia síma af ódýrari týpunum. Ég hef átt og sinni í dag nokkuð mörgum ódýrum Android tækjum og veit því mjög vel það er mikill munur á ódýrum Android símum og síðan á þessum dýru. Það er því athyglivert að sjá hversu “snjall” Lumia 520 snjallsíminn er í raun og veru, vitandi að hann kostar milli 25 og 30 þúsund í dag (10.09.2013). Það er í dag komið ágættis úrval af WP8 símum en þar er Nokia sannarlega leiðandi með gott framboð af símtækjum eins og sjá má hér.

Lumia 520 hefur almennt fengið góðar viðtökur hjá tæknimiðlum sem góður “entry-level” sími en hann er töluvert öflugri en forveri sinn sem heitir Lumia 510.

Hér má sjá Nokia Lumia 520 afpökkun

 

Ég mundi líka segja að þessi sími sé mjög mikilvægur fyrir Nokia (lesist Microsoft) þar sem hingað til hefur vantað ódýra síma til að keppa við Android á þessu verðbili. Það eru mjög margir sem þekkja og líkar við Nokia merkið enda þeir þekktir fyrir áræðanleik og sterk símtæki. Það eru einnig fjölmargir sem ég þekki sem hafa hingað til notað “venjulega” Nokia síma sem kostar kannski 10 – 20 þúsund og vilja vita hvort það sé þess virði að bæta við þessum þúsundköllum og fá þannig snjallsíma.

Það er nauðsynlegt fyrir lesendur að hafa í huga að mögulegar athugasemdir mínar útaf þessu símtæki eru mögulega vegna þess að þetta er ódýr sími og því mjög líklegt að Nokia hafi þurft að gera ákveðnar málamiðlanir til að ná þessu verði.

 

Hönnun og vélbúnaður

Það verður líklega seint sagt að Nokia Lumia 520 sé sérstaklega “sexy sími” en hann er “í lagi”. Í kassanum kemur skjár og símtækið (samfast) sem leggst síðan inn í nokkuð þykka og sterklega plastskel. Þessa plastskel er hægt að fá í nokkrum litum eða svarta, bláa, gula, rauða og hvíta.

 

Nokia eru svo sem ekki lengur þeir einu sem framleiða síma í mörgum litum því núna er hægt að fá t.d. iPhone, HTC, Motorolla í mörgum litum og er gott að sjá aðra framleiðendur prófa sig áfram með litina. Ólíkt t.d. Lumia 920 þá finnst vel að skelin er úr plasti og þar sem ég er vanari flaggskipum farsímaframleiðanda þá verð ég að segja að það finnst vel að Lumia 520 er í ódýrari kanntinum. Hann er sterklegur að finna en sannarlega í ódýr.

Síminn er með 4″ skjá og leggst hann eins og fyrr segir inn í plastskelina sem hylur bakhlið og hliðar ásamt því að brúnir umleika skjáinn á framhlið (mögulega ryksælt svæði). Takkarnir á hægri hlið eru þrír eins og á öðrum Windows Phone símum, sértakki fyrir myndavél, powertakk ásamt hækka/lækkatakka. Takkarnir eru úr keramik sem segir mér að þeir séu sterkir og rispufrýir. Framhliðin fer nær öll undir skjáinn fyrir utan að ysti byrjar skelin sem umleikur símann eins og fyrr segir. Á framhlið eru þrír snertitakkar eins og við þekkjum á öllum Windows Phone símum, bakka, heim og Bing leit. Hliðar og bakhlið eru kúpt sem lætur símtækið liggja vel og örugglega í hendi.

 

Lumia520_1

 

Stærðir

  • Hæð  119.9 mm
  • Þyggt  9.9 mm
  • Breidd  64 mm
  • þyngd 124 gr

Lumia 520 er með Dual-Core 1GHz Snapdragon S4 örgjörva og er eins og Lumia 620 og 720 með 512MB í vinnsluminni meðan Lumia 820, 920 og 925 eru með 1GB. Þessi örgjörvi skilar sínu ágætlega og hef ég aldrei orðið var við hökt í stýrikerfinu sjálfu. Það er helst þegar ég opna sum forrit eða þyngri leiki sem ég verð var við hversu hægvirkari hann er miðað við Lumia 820, 920 eða 925. Þegar Lumia 520 er búinn að ræsa forritinu upp þá virkar það vel en eins og fyrr segir þá sést að hann strögglar aðeins við að opna stærri forrit.

Ég finn því mun á Lumia 520 samanborið við flagskipin en þessi munur er að mínu mati eðlilegur þar sem ég er að bera Lumia 520 saman við síma sem kosta allt að fjórum sinnum meira og ættu því að vera öflugri að öllu leiti.

Lumia 520 er 8GB innra geymslurými sem nýtist undir stýrikerfi eða ljósmyndir og annað margmiðlunarefni. Síminn er einnig með rauf fyrir Micro-SD kort og um leið og ég setti 32GB kort í símann þá bauð símtækið uppá að vista allar myndir og videóupptökur beint á SD. Lumia 520 styður stærst 64GB SD kort og er því einfalt og nokkuð ódýrt að fara með geymslurýmið í 72GB sem verður að teljast mjög gott.

Til viðbótar er Windows Phone beintengt við SkyDrive og þar bætist við ókeypis 7GB í skýinu sem nýtist til að taka afrit af símanum sjálfum eða af ljósmyndum og myndböndum.

Einfallt er að kaupa sér meira Skydrive geymslupláss

  • auka 20GB kosta um 1200 krónur á ári
  • auka 50GB kosta um 3200 krónur á ári
  • auka 100GB kosta um 6400 krónur á ári

Verð miðast við gengi á pundi 14.09.2013

 

Tengimöguleikar

Lumia 520 er með Micro USB tengi (USB 2.0) þannig að einfalt er að tengja símann við tölvu til að sækja eða setja á hann efni. Þetta er kostur þar sem notendur geta notað allar Micro USB snúrur sem þeir eiga fyrir, það er ekkert sérstakt tengi eða millistykki sem þarf. Microsoft býður uppá forrit sem hleðst sjálfkrafa niður við fyrstu tengingu (við Win8) en hægt er að nálgast efnið af símanum í gegnum “My Computer” ef notendur vilja það frekar.

Síminn er með 3.5 mm heyrartólstengi ásamt því að bjóða uppá Bluetooth 3.0. og Lumia 520 er með þráðlausu neti (WiFi) eins og við er að búast sem styður 802.11 a/b/g/n og allar helstu dulkóðanir sem skipta máli eins.

Lumia 520 er ekki með NFC og mun ekki styðja 4G netið en styður vitanlega 3G sem kemur til með að virka áfram.

 

Rafhlaða og lyklaborð

Rafhlöðuendingin er það sem olli mér hvað mestu vonbrigðum við Lumia 620 en Lumia 520 er með aðeins stærri rafhlöðu eða 1430mAh Li-Ion og miðað við síma með 4″ dugar hún vel. Dugði rafhlaðan yfirleitt í gegnum daginn þó svo að ég hafi notað símann töluvert og hafi ávallt verið tengdur við WiFi eða 3G og að samstilla 3 EAS tölvupóstreikninga.

 

Lumia520_2

 

Ef ég hafði tíma og notaði símann til að gera eitthvað meira, eins og að lesa heimasíður, eða opna reglulega Twitter og Facebook þá dró nokkuð ört á rafhlöðuna. Hér má sjá nokkur ráð sem lengja rafhlöðuendinguna . Rafhlaðan er útskiptanleg sem er kostur á svona síma, hægt er að skipta henni út þegar líftíminn hennar er að styttast eða til að skipta út fyrir stærri rafhlöðu ef hún býðst.

Lumia 520 er eins og aðrir Windows Phone 8 símar með fullt Qwerty lyklaborð og verð ég að segja að það kom mun betur út á þessum síma samanborið við Lumia 620 en það er líklega stærri skjár sem hjálpar til. Eins og ég sagði í Lumia 620 umfjöllun þá finnst mér 3.8″ skjár einfaldlega of lítill fyrir fullt QWERTY lyklaborð en á móti er kostur er að geta unnið á símanum með annari hendi sem er oft erfitt á stærri síma.

Lyklaborðið er ekki enn komið með íslensku útliti en allir íslensku stafirnir eru engu að síður til staðar. Sem dæmi til að skrifa Þ þá er T haldið inni, til að skrifa Ð þá er D haldið inni o.s.frv.

 

Hljóð og mynd

Skjárinn í Lumia 520 er 4″ IPS LCD skjár sem styður upplausn uppá 800×480 punkta og er með punktaþéttleika uppá 233ppi sem er ágætt, miðað er við verðið á símanum. Myndir, texti og flest sem ég prófaði var skýrt og fallegt á þessum skjá ásamt því að allt margmiðlunarefni sem ég prófaði kom vel til skila. Það sést samt klárlega munur ef hann er borinn saman við Lumia 925 sem enn og aftur verður að teljast mjög eðlilegt. Skjáskroll og almenn gagnvirkni var góð og brást síminn (skjárinn) hratt og vel við öllu sem ég gerði á honum.

Nokia hafur náð mjög langt með myndavélar í snjalltækjum og er myndavélin í Nokia Lumia 1020 að flestra mati sú allra besta á markaðnum í dag en ég á enn eftir að prófa hann sjálfur.

 

 

Lumia 520 er ekki með myndavél á framhlið sem er galli en hann með 5 MP (2592 x 1936) myndavél á bakhlið sem styður 100/200/400/800 ISO. Myndavélin er með f/2.4 ljósopi og 1/4″ sensor, myndavélin er með 4x stafrænum aðdrætti en ekki með flassi.

Myndavélin skilar sínu samt ágætlega og er á pari við það sem maður er vanur hjá ódýrari snjallsímum ásamt því að geta tekið upp 720p videóupptöku @ 30 römmum á sekúndu.

Til að styðja við hljóðupptökur og til að bæta hefðbundin talgæði notar Nokia tvo hljóðnema sem skilar sér í ágætum gæðum á hljóðupptökum. Símtalsgæðin eru góð en þessir tveir hljóðnemar vinna einnig saman að því að eyða vind- og umhverfishljóðum úr samtölum (Noise cancellation). Hátalarar símans skiluðu þokkalegum hljómi við símtöl með hátalara en eru alls ekki ætlaðir til tónlistarafspilunar að mínu mati.

 

Margmiðlun og leikir

Margmiðlunarupplifun á Lumia 520 er góð og réð hann við að spila “allt” það sem ég ætlaði honum. Hvort sem það var bíómynd af innra-minni eða SD-Korti, Youtube video eða aðra vefstrauma. Lumia 520 er með góðum tónlistarspilara og með XBOX music (eða Spotify) áskrift þá ertu kominn með öfluga tónlistarkosti. Einfalt er einnig að bæta við tónlist eða bíómyndum beint af tölvu og ætti Lumia 520 að ráða við flest allt sem þú gætir vilja nota hann í.

Það má segja að á þessu verði sé Lumia 520 sé góð kaup, þó svo að hann verði bara notaður sem tónlistarspilari. Sem margmiðlunartæki þá er alltaf kostur að hafa Micro-SD rauf þannig að margmiðlunarefni geti allt verið á stóru SD korti meðan öppin eru á símanum sjálfum.

 

Hugbúnaður og samvirkni

Allir Windows Phone 8 símar koma með glæsilegri hugbúnaðarsvítu sem gerir það að verkum að það ætti ekki að vanta mörg forrit til viðbótar. Sem dæmi um forrit sem fylgja ókeypis með má nefna Office Pakkinn með Word, Excel og PowerPoint, One Note, Here svítan ásamt þessu venjulega eins og tölvupóstforrit, pdf lesara, reiknivél, dagbók, tengiliðir, vekjaraklukka o.s.frv.

Office pakkinn gerir notanda kleift að vinna með Word, Excel og PowerPoint skjöl beint af SharePoint, SkyDrive eða af símanum sjálfum. Hægt er að breyta þeim, senda með tölvupósti eða bara vista í skýið án þess að þurfa að kaupa auka hugbúnað. Eins og ég hef oft sagt þá hef ég aldrei kynnst svona góðri skjalavinnslu á snjallsíma áður. Vafrinn í Windows Phone 8 er gríðarlega góður og að mínu mati einn sá besti af þeim vöfrum sem fylgja með snjallsímum í dag. Chrome fyrir Android er reyndar mjög góður en ég á erfitt með að meta hvorn mér líkar betur við.

Lumia520_4

Ef þig vantar fleiri forrit þá býður Microsoft Store upp á 145 þúsund forrit (13.05.2013) sem er jú minna en Google og Apple bjóða uppá en ég verð samt að segja að ég fann forrit fyrir allt sem mig vantaði fyrir utan Snapchat. Forrit sem ég sótti mér til viðbótar voru 6tag (Instagram) – TwitterFacebook Beta (eða official) – Foursquare (eða 4th & Mayor) – WeatherFlashlight XT112ViperBoltagáttinBing svíta

Hér er ágætislisti yfir forrit sem Íslenskir WP notendur nota og hér má lesa um Nokia Here leiðsöguforrit sem fylgja ókeypis með öllum Nokia Lumia símtækjum

 

Niðurstaða

Umfjöllunin byrjaði á vangaveltum um hversu snjall svona ódýr snjallsími getur verið og gleður mig að segja að hann er mjög snjall.

Segja má að hann geti gert allt það sama og dýrari Windows Phone 8 símar geta þó svo að hann geri það kannski hægar. Nokia Lumia 520 kom mér því skemmtilega á óvart og virkaði hann vel og leysti þau verkefni sem ég lagði fyrir hann með sóma. Vitanlega eru alltaf málamiðlanir í svona ódýrum tækjum og að mínu mati á það helst við um skjáinn, myndavélina, vöntun á auka myndavél og plastskelin sem er frekar “ódýr” viðkomu. Mögulega er hægt að setja útá rafhlöðuendingu líka en miðað við verð væri það bara ósanngjarnt.

Lumia 520 stenst fyllilega samanburð við síma á svipuðu verði og er að mínu mati ein bestu kaup sem hægt er að gera ef verið er að leita að ódýrum snjallsíma. Ég er sannfærður um að erfitt sé að finna síma sem býður uppá sambærilega kosti og virkni á þessu verði en ég sé Lumia 520 sem fullkominn síma fyrir þá sem vilja ekki eyða mjög miklu í snjallsíma en vilja samt síma sem getur “allt” eða þá sem eru að feta sín fyrstu skref með snjallsíma.

 

 

Viðbót vegna fyrirtækja

Windows Phone 8, Blackberry og iOS frá Apple eru þrjú af öruggustu stýrikerfum sem í boði eru fyrir snjallsíma í dag. Þessi staðreynd ásamt því að ég set stórt spurningamerki við þá skilmála sem þarf að samþyggja til að geta notað Google þjónustur gera Android síma varasama sem fyrirtækjasíma. Við þetta bæti að það fæst ekki nýr iPhone eða Blackberry tæki undir 100 þúsund krónur sem segir mér að fyrirtæki hljóti að vekja þessum og öðrum ódýrum WP8 símtækjum athygli.

Ég vil reyndar ganga lengra og segja að Lumia 520 sé sjálfssagðu valkostur fyrir fyrirtæki sem vilja kaupa ódýr símtæki fyrir starfsmenn. Með Windows Phone 8 fá fyrirtæki öruggt stýrikerfi, frábæra tölvupóstvirkni sem styður t.d. POP, IMAP, IBM Notes, GMail, Yahoo Mail, Outlook.com ásamt EAS Exchange samstillingu. Hægt er að tengjast beint við Skydrive og SharePoint netþjón og vinna í skjölum beint af símanum í Office pakkanum, allt innbyggt og bara virkar.

Windows Phone 8 stýrikerfið er mjög stapílt á Lumia 520 og virkaði hnökralaust en stýrikerfið byggir á lifandi reitum sem gerir símann persónulegan og þæginlegan að mínu mati.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

2 athugasemdir

Theodór Marrow 16/09/2013 - 21:05

Sæll, þetta er frábær umfjöllun, eftir að hafa lesið þetta sé ég að þetta er sá sími sem mun henta mér vel, hef verið að skoða Samsung en þekki þá ekkert, ég hef átt nokkra Nokia síðustu 15 árin sem hafa reynst mjög vel, þó svo ég hafi marg oft misst þá í gólfið, á núna Nokia 6010 en hann er að verða úreltur, en góður í allt einfalt. Verðið á 520 símanum er nokkuð gott, en auðvitað er með mig eins og marga aðra, að fá mikið fyrir lítið.
Er kassinn sterkur og þolir innvolsið og skjárinn það ef síminn dettur í gólfið, eða eitthvað sambærilegt hnjask?

Kv

Reply
Lappari 16/09/2013 - 23:44

Sælir, Þakka kærlega fyrir það Theodór, ég legg metnað minn í þetta og því þakklátur fyrir hólið.

Erfitt að leggja mælikvarða á styrkleikan en miðað við þá snjallsíma sem ég hef átt/notað síðustu ár þá er þessi einn af þeim betri. Sérstaklega því þetta er bara skjár+sími sem leggjast inn í sterka plastskel. Þessa skel er hægt að skipta um ef það sér á henni og innvolsið virðist vera sterklegt eins og venja er hjá Nokia.

Ég hef átt margar gerðir af snjallsímum síðustu árin, oft misst þá en alltaf sloppið við skemmdir. Minni samt á að allir símar sem detta á hlið eða horn eiga á hættu að enda með brotin skjá, það er alltaf veikleiki þessara símatækja. Ég hef kannski bara verið heppinn ??

Það er reyndar hægt að tryggja sig enn betur og setja símann í einhverja svona tösku.

http://www.pdair.com/index.php/smartphone-cell-phone-pda/nokia/nokia-lumia-520.html

Reply

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira