Microsoft Surface Pro

eftir Jón Ólafsson

Þegar Lappari.com fékk tækifæri til að prófa Surface Pro var því að sjálfsögðu vel tekið . Enda hef ég lengi viljað prófa hvort ég geti leyst af þunga fartölvu með þessari fisléttu hybrid vél. Spurning hvort að “power user” geti notað 128GB Surface Pro með Type Cover lyklaborði og ekkert annað í vinnu og leik.

Áður en ég byrja þá finnst mér nauðsynlegt að skilgreina fyrir sjálfum mér hvað Surface Pro er. Ég hef venjulega sagt að þetta sé venjuleg PC tölva í skrokki spjaldtölvu sem er kannski rétt en segir samt ekki nóg.

  • Surface Pro kemur með Windows 8 Pro
  • Surface RT kemur með Windows 8 RT

Surface vélarnar koma í tveimur útgáfum, Hybrid (Surface Pro) og síðan sem spjaldtölva (Surface RT). Lappari fjallaði um Surface RT vélina fyrir stuttu síðan og þó svo að ég hafi verið mjög hrifin af henni miðað við aðrar spjaldtölvur þá fann ég alveg að hún kæmi ekki í staðinn fyrir fartölvu. Surface RT getur allt sem venjuleg spjaldtölva getur ásamt því að það er Office RT pakki á henni með Word, Excel, PowerPoint og nú fljótlega bætist Outlook við líka. Þetta er massífur pakki og með honum standa tæplega 100 þúsund Windows 8 öpp í Microsoft Store. Surface Pro aftur á móti getur notað öll þessi forrit í Store ásamt rúmlega 80 milljónum forrita sem til eru fyrir PC tölvur.

 

Surface2

 

Stærsti munur á Windows 8 og Windows 8 RT er því sá að Windows 8 RT getur ekki notað hefðbundin x86 Windows forrit (eins og t.d. Photoshop, Chrome). Þess í stað styðst hún við forrit sem fylgja með ásamt því að hafa aðgang að tugum þúsunda forrita í gegnum Windows Store sem er forrita, tónlistar og leikja markaður Microsoft. Þar er bæði hægt að kaupa og/eða sækja ókeypis forrit.

Ég byrjaði þessar prófanir mínar á því að skilja fartölvuna eftir heima og nota bara Surface Pro í vinnunni. Ég þurfti að finna útúr því hvernig ætti að tengja Surface Pro við auka skjá, lyklaborð, mús og hátalara sem eru í skrifstofunni en það var svo sem ekki mikið mál eins og sést hér. Næsta verkefni var að tengjast 3G þegar ég var að vinna úti í bæ en eins og sést hér þá er það nú ekki erfiður hjallar að yfirstíga.

 

Hönnun og vélbúnaður.

Ég varð strax hugfangin af hönnun Surface vélanna en þær hafa almennt fengið mjög góða dóma hjá tæknifréttamönnum um allan heim. Mér finnst í raun og veru ótrúlegt að hægt sé að koma svona öflugri vél fyrir í svona lítilli skel. Vélin er í álskel (VaporMg) sem gerir vélina sterkbyggða. Vélin er aðeins 13.5 mm að þykkt og þegar ég handlék hana þá fékk ég strax þá tilfinningu að vélin væri sterkbyggð og vel hönnuð.

Surface vélarnar eru með útsmellanlegan fæti (Kickstand) sem hefur ekki sést áður á spjaldtölvum. Þetta er skemmtileg viðbót og gerir innslátt með lyklaborði mjög þægilegan. Einnig er þetta mjög gott ef t.d. er verið að horfa á bíómynd í vélinni. Eins og ég bendi á í Surface RT umfjölluninni þá hefði ég viljað getað stillt standinn, taka hann lengra út eða inn eftir þörfum. Ekkert stór mál en hefði verið kostur.

Vélin er með 4GB DDR3 vinnsluminni og fjögurrakjarna Intel i5 örgjörva (3317U, 2.6 GHz) sem er mjög öflugur og keyrir stýrikerfið og öll forrit sem ég hef prófað hnökralaust, vélin hoppar milli forrita hratt og vel. Vélin ræsir upp í heimaskjá á 5-6 sekúndum (“Kalt start” ie.cold boot) og slekkur á sér á 2-3 sekúndum. Surface Pro er örlítið þykkari en Surface RT en Microsoft hefur sett á vélina örþunna rauf umhverfis bakhlið þar sem heitt loft kemst út.

Eins og á Surface RT þá eru tvær 720p myndavélar á Surface Pro, ein að framan fyrir ofan skjáinn sem hentar vel í myndsamtöl og síðan önnur aftaná skjánum fyrir myndatökur. Báðar sinna sínu hlutverki ágætlega. En sem áður myndi ég aldrei ráðleggja notendum að nota spjaldtölvu við myndatökur.

 

Surface3

 

Surface Pro kemur annað hvort með 64GB eða 128GB SSD disk. Mikið hefur verið talað um pláss og plássleyfi á Surface vélunum en einfalt er að auka laust geymslupláss með einfaldri aðgerð. Vélin sem ég fékk er með 128GB geymslurými og þegar ég var búinn að setja upp allt mitt á henni þá var ég með 76GB laus sem er (vitanlega) sama og ég er með á fartölvunni sem er líka með 128GB disk.

Stærðir á geymslurými er reyndar aðeins flóknari eins og ég hef fjallað um hér á lappari.com áður. Í þeim pósti ber ég saman laust geymsluplás á MacBook Air og Surface Pro (bæði 64 og 128GB), sést að það munar litlu sem engu á lausu plássi á þessum velum,

 

 

Tengimöguleikar

Surface Pro er með microSDXC rauf sem styður allt að 64GB minniskort sem er ódýr og einföld leið til að auka við geymsluplássið. Einnig er hefðbundið USB3 port til að tengja við flakkara, mús, lyklaborð, 3G módem eða minnislykil svo eitthvað sé nefnt en ég var með 8 porta USB3 hub í mínum prófunum.

Á Surface Pro er einnig hefðbundið Mini DisplayPort tengi þannig að einfalt er að tengja vélina við auka skjá, sjónvarp eða skjávarpa og senda þannig mynd og hljóð á stærri skjá með stafrænum gæðum. Vélin er með Bluetooth 4 ásamt þráðlausu netkort sem styður 802.11a (a/b/g/n) og þannig allt að 300Mbps. Vélin er einnig með tengi fyrir heyrnartól.

Hér er myndband frá Microsoft sem rennir lauslega yfir kosti Surface Pro…

 

Rafhlaða og lyklaborð

Það er 42 W-h rafhlaða í Surface Pro og samkvæmt Microsoft þá má reikna með 4-4,5 klst útúr henni við eðlilega notkun. Hugtakið eðlileg notkun er alltaf sveiganlegt en reikna má með að 1080 HD skjár og öflugur örgjörvi dragi vel á rafhlöðuna. Áður en ég fékk vélina var ég vonsvikinn með rúma 4 klst í rafhlöðuendingu miðað við rúmlega 8 klst í Surface RT en það er nú kannski ekki alveg sanngjarn samanburður. Það er meira vit í að bera Surface Pro saman við aðrar PC vélar eins og t.d. fartölvuna mína sem var með 3.5 klst rafhlöðu þegar hún var ný. Ég tók rúnt í 3 verslanir og gerði smá rannsókn. Að meðaltali var rafhlöðuending í vélum með svipaðan vélbúnað 3,5 – 6 klst þannig að þetta er kannski ekki svo afleitt.

Surface Pro er samt ekki með jafn góða endingu og Acer Iconia W700 sem ég fjallaði um fyrir tveimur mánuðum. Sú vél er reyndar ekki jafn öflug en rafhlaðan í W700 entist helmingi lengur en á Surface Pro

Ég tók Surface Pro með mér í eitt ferðalag og dugði hún vel í þetta 4 tíma flug og spilaði ég 1 bíómynd og 2 þætti en hægt er að lengja endingu með því að lækka birtistig í skjánum lítillega. Að meðaltali náði ég um 5 tímum útúr rafhlöðunni á hefðbundnum vinnudegi.

Microsoft gerði þrjár breytingar á hleðslutækinu á Surface Pro sem mér líkar vel. Snúran er lengri, segullinn sterkari og það er USB tengi á hleðslutækinu þannig að það er t.d. hægt að hlaða símann þar.

 

Surface1

 

Microsoft selur tvær tegundir af ansi flottum lyklaborðum með Surface vélunum. Lyklaborðin smella við spjaldtölvuna með segli en það er einfalt og fljótlegt að smella því á. Annað lyklaborðið er snertilyklaborð (Touch Cover) en hitt er “venjulegt” lyklaborð (Type Cover) en bæði lyklaborðin smellast á vélina með þessum segli og virka einnig sem skjáhlíf þegar ekki er verið að nota vélina. Vélin sem ég er með er með Type Cover og er ég mjög ánægður með það, án efa eitt besta lyklaborð sem ég hef prófa á hybrid eða spjaldtölvum og mun betra en á Acer Iconia W700 vélinni.

Myndband frá Microsoft sem sýnir munin á Touch og Type lyklaborðunum

Með því að stilla á Íslensku sem meginmál þá urðu séríslenskir stafir virkir eins og að um hefðbundina PC tölvu væri að ræða. Vitanlega er Surface með venjulegu lyklaborði á skjánum (onscreen keyboard) sem verður virkt ef annað lyklaborð er ekki tengt við vélina. Ef skjályklaborð er notað þá eru íslenskir stafir aðgengilegir með því að halda inni öðrum staf:

 

Hljóð og mynd

Skjárinn á Surface Pro er 10,6″ ClearType Full HD skjár sem styður 10 snertipunkta. Skjárinn er með mjög nákvæma snertiskynjun og lenti ég sjaldan í því að smella á eitthvað vitlaust. Vélinni fylgir penni sem hægt er að nota beint á skjáinn til að skrifa eða teikna. Hann virkar vel og frábært að nota hann með t.d. One Note og Fresh Paint en hægt er að snúa honum við til að stroka út eins og um blýant væri að ræða. Það er ljósnemi á skjá sem stillir birtu eftir umhverfi sem sparar rafhlöðu og gerir lestur þægilegri.

Upplausnin er 1920 x 1080 (209 ppi, 16:9) sem er mjög nálægt Retina upplausn á Macbook Pro. Allur texti og myndir komu mjög vel út á þessum skjá og virkaði hann í alla staði frábærlega, það má því með sanni segja að þetta sé góður skjár sem sýnir liti eðlilega og hægt er að horfa á skjáinn frá öllum hornum.

 

Surface5

 

Hátalarar eru tveir og eru staðsettir efst á báðum hliðum Surface sem gefur henni ágætis stereo hljóð hvort sem hlustað er á tónlist eða bíómyndir. Þeir eru einnig hannaðir þannig að þeir varpa hljóði að notenda sem er nokkuð ólíkt mörgum spjaldtölvum sem ég hef prófað.

Ég mæli alltaf með heyrnartólum við hlustun á tónlist þar sem hátalarar eru ekkert sérstaklega hljómmiklir en þeir leysa þó verkið ágætlega. Surface Pro er einnig með 2 hljóðnemum.

 

Margmiðlun

Á heimaskjá er flýtivísun í venjulegt skjáborð (desktop) sem Windows notendur þekkja vel en heimaskjáinn er eins og á öllum útgáfum af Windows 8. Þaðan er hægt að nálgast „My Computer“ og þau drif sem eru aðgengileg þaðan og umhverfið eins og á venjulegri fartölvu að sjá. Það er þæginlegt að þurfa ekki að finna góðan skráarstjóra til að nálgast innra minnið (heitir C:\ drif), flakkara, USB lykilinn eða auka minniskortið.

Þar sem þetta er “bara” venjuleg tölva þá gat ég spilað allt margmiðlunarefni hvort sem það var netstreymi eða af USB lyklum eða flökkurum. Þarf ekkert að fara nánar í þetta þar sem öll upplifun var á pari við það besta sem ég hef prófað.

Eina sem ég get bætt við er að mér líkar mjög vel í snap kostinn þar sem hægt er t.d. að horfa á bíómynd og vera með Word eða Twitter opið á sama tíma. Þessa virkni nota ég mikið og verður hún bætt mikið í Windows 8.1 uppfærslu eins og ég fjalla um hér.

Hér sést Twitter straumur til vinstri og síðan er ég að horfa á Top Gear í hægri glugga

media

 

Hér er ég í mikilvægri skjalavinnslu og með Twitter straum smelltan hægra megin

skjalavinnsla

 

Skjáhlutföllin á Surface Pro eru 16:9 sem á mannamáli þýðir að skjáinn er Widescreen (breiður og ekki hár), það getur því verið klaufalegt að halda á henni nema að hún sé lárétt. Þetta hentar þó minni notkun betur en 4:3 þar sem ég nota vélina mest sitjandi við skrifborði eða liggjandi í sofanum að horfa á margmiðlunarefni. Ég er annað hvort með aukaskjá við vélina eða með forrit smellt (snap view) til hliðar.

 

Surface í vinnuumhverfi

Fyrsta sem ég gerði var skrá vélina inn á Domain og keyra scriptu sem tengir vélina við netdrifin mín og virkaði það allt fumlaust. Eins og á fartölvu gat ég með einföldu móti tengst VPN (Cisco client) og þannig netdrifum og netþjónum yfir þráðlaust net eða 3G eins og ég væri staddur á venjulegri PC tölvu.

Þarf í raun og veru ekkert að segja meira þar sem allt sem þú getur á venjulegri PC tölvu getur þú á Surface Pro.

Það er mikill munur að losna við að bera 2,6 KG fartölvu daglega í vinnuna og skipta yfir í 0,9 KG hybrid vél. Þetta létti líka mikið á skrifborðinu þar sem vélin er miklu nettari en fartölva. Ég hef breytt aðeins vinnuflæðinu mínu en í stað þess að hafa skjáinn til hliðar við tölvu þá er Surface Pro fyrir neðan aukaskjá. Mér finnst þetta frábært og í stað þess að vera alltaf að horfa til hliðar þá er allt í beinni línu…

Lyklaborð og mús > Surface Pro > Skjár

SurfacePro_Feature

 

Eini gallinn sem ég get talið upp er kannski ekki galli samanborið við fartölvu þar sem hann er þar líka….  Í dag er ekki hægt að raðtengja marga skjái án auka doccu eins og ég fjalla um hér.

  1. DisplayPortið á Surface Pro styður ekki raðtengda (daisy-chained) skjái. Þetta er takmörkun í Intel Ivy Bridge GPU en mun vera hægt á vélum með Haswell CPU/GPU
  2. Windows 8 styður ekki mismunandi DPI á milli skjáa sem þýðir að ef ég er með texta stækkaðan (t.d. 125%) á Surface Pro þá er það líka þannig á aukaskjánum sem er klaufalegt.

Þetta er ekkert vandamál en er samt hvimleitt en góðu fréttirnar eru að Microsoft lagar þetta (nr:2) þegar Windows 8.1 kemur út. Það verður því áhugavert að prófa Surface Pro 2 þegar hún kemur út og þá vonandi með Haswell örgjörva og Windows 8.1.

Þar sem Surface Pro er ekki með venjulegu VGA tengi fyrir skjáinn eins og fartölvan, heldur venjulegt mini displayport þá fór ég í Tölvutek til að redda því . Ég fann þar Mini DisplayPort í VGA breytistykki en ásamt því eiga þeir breytistykki í DVI og Full-HDMI ef það hentar betur.

Þó svo að þetta sé galli þá eru til lausnir.

OW

Sem dæmi þá má sjá hér mynd af uppsetningu hjá einum Twittara (mynd birt með hans leyfi) þar sem hann er með Surface Pro tengda við HP 3005pr Replicator og nær því 1080p upplausn á báða skjái ásamt því að nota Surface skjáinn.

 

 

Hugbúnaður og samvirkni.

Öll hefðbundin forrit (vafri, póstforrit, tengiliðir, skipuleggjari o.s.frv.) fylgja með vélinni en það sem vantar uppá er aðgengilegt í gegnum Windows Store (forritamarkað Microsoft). Það er í tísku að gagnrýna þennan forritamarkað vegna þess hversu fá forrit eru þar eða tæplega 100 þúsund sem virka á Pro/RT. Það má með sanni segja að úrvalið sé minna en hjá Apple og á Android markaðnum en þegar horft er til þess að Windows 8 Pro getur notað öll venjuleg x86 forrit þá blikna hin kerfin í samanburði. Þetta gerir það að verkum að á Surface Pro hefur notandi aðgang að markaðnum og þessum 80 milljónum forrita sem talið er að til séu fyrir Windows stýrikerfið.

 

heimaskjar

 

Þar sem ég hugsa Surface Pro sem arftaki fartölvunar þá setti ég upp sömu forrit og ég nota þar eins og Office 2013 Pro, Chrome, Adrobe Reader, MetroTwit, Skype, TeamViewer, WinRar, Cisco VPN o.s.frv. Í stuttu máli þá virkaði allt fumlaust og eins vel eða betur en það gerir á fartölvunni.

Ég skrái mig alltaf inn í öll Windows 8 kerfi sem ég nota með Microsoft notendanum mínum, hvort sem það er fartölvan, borðtölvan, Surface RT/Pro eða Windows Phone síminn minn. Það sem þetta gerir er að tækin mín samstilla sig við notendann minn sem vistaður er í skýinu hjá Microsoft (á SkyDrive) en þar hef ég ókeypis 7GB til að afrita ljósmyndir af símanum mínum eða til að hýsa gögn..

Þetta þýðir í mjög stuttu máli:

  • Þegar ég breyti um skjámynd á Windows 8 fartölvunni þá breytist skjámyndin á Surface.
  • Þegar ég bý til Office skjal á fartölvu þá verður það strax aðgengilegt á Surface (vice versa)
  • Þráðlaus net sem ég tengist með fartölvu afritast yfir á Surface. Því þurfti ég bara að setja inn WEB lykill við fyrstu uppsetningu og síðan þekkti Surface þráðlausu netin sem ég nota að staðaldri.
  • Ég er alltaf með sömu upplýsingar á Surface og á fartölvunni og þarf því ekki lengur að senda skjöl sem ég útbý á spjaldtölvunni yfir á fartölvu með tölvupósti.

Sumt (alls ekki allt) af þessu er hægt í iPad og Android en ekki án auka hugbúnaðar (t.d. með Dropbox eða Google Drive).

Flash efni og annað netstreymi hefur fullan stuðning á Windows 8 og RT. Þetta þýðir að ég gat spilað allt flash efni af heimasíðum sem er mikill kostur þar sem mikið af efni er enn í Flash. Tilraunarinnar vegna þá prófaði er ég að horfa á úrslitakeppni NBA yfir internetið með Surface Pro og gekk það hnökralaust fyrir sig.

 

Að lokum þar sem Surface RT og Pro er oft borið saman við iPad þá er hér eitt létt myndband

http://www.youtube.com/watch?v=zgu9uo2UpPg

 

Niðurstaða

Að mínu mati er Surface Pro falleg, öflug, stílhrein og góða hybrid vél sem veitir framleiðendum (OEM´s) aðhald og sýnir þeim hvað hægt er að gera með góðum hugbúnaði, vélbúnaði og góðum hönnuðum. Helsti kostur Surface Pro er að þetta er venjuleg PC tölva í spjaldtölvu “skrokki”. Þannig er mjög einfalt að taka með sér fullvaxta tölvu á ferðalög eða í vinnuferðir án þess að þurfa að burðast með þunga fartölvu. Vélin er mjög einföld í notkun og þar sem flestir nota venjulegar PC vélar þá ættu flestir  „venjulegir“ notendur að geta notið hennar strax og án málamiðlana.

 

 

Það er spurning við hvaða vél á að bera Surface Pro saman við en að mínu mati er það helst Macbook Air. Surface Pro hefur að mínu mati vinninginn að öllu leiti nema rafhlöðuendingu. Það er ekki til neitt eitt tæki sem hentar öllum en Surface Pro gerir tilraun til þess og stendur sig frábærlega við það.

Surface Pro er mjög vænlegur kostur fyrir fyrirtæki vegna þess að það þarf ekkert að huga að breytingum á innri kerfum, allt virkar eins og áður. Kosturinn er að fyrirtæki eru þá með mjög meðfærilega tölvu sem einfalt er að tengja við staðarnet og internet með þráðlausuneti eða með 3G.

Microsoft hafa verið duglegir að vinna í þróun og uppfærslum á þessum Surface vélum og verða þær betri og léttari í keyrslu við hverja uppfærslu. Notendur geta reiknað með töluverðum breytingum þegar Windows 8.1 kemur í haust en það verður ókeypis uppfærsla fyrir alla sem eiga og nota Windows 8 vélar.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira