Heim MicrosoftWindows Mobile Windows Phone 8 – Barnahornið

Windows Phone 8 – Barnahornið

eftir Jón Ólafsson

Ég veit ekki með ykkur en börnin mín eru mjög dugleg að fara í símann minn þegar ég er ekki að horfa. Ég er einn af þeim heppnu sem hefur lent í því að barnið mitt opnaði tölvupóstinn minn og náði að svara vinnupósti með einhverju bulli. Sem bestur fer olli þetta ekki vandræðum í þetta skipti.

Windows Phone 8 leysir þetta með nýung sem heitur barnahornið (e. Kids Corner) en þetta virkar þannig að þegar ég læsi símanum með leyniorði þá geta börnin komist í barnahornið en þar eru bara þau forrit sem ég ákveð og ekkert annað. Þau komast ekki í stillingar símans (breyta viðmóti, símhringingu o.s.frv.), tölvupóst, Windows Store o.s.frv.

Hér er myndband sem sýnir Barnahornið vel:

 

Til að virkja Barnahornið þá fylgir þú þessum einföldu leiðbeiningum

  • Heimaskjá, strýkur til vinstri og finnur settings Settings > Kid´s Corner
  • Við fyrstu uppsettningu er smellt á NEXT og þar velur þú hvaða Leiki, Video, Tónlist eða Öpp börnin meiga nota.
  • Síðan er smellt á next og þar næst á Finish

 

Uppsetningin er svona einföld eins og sést í þessu myndbandi

 

Þetta er frábær nýung að mínu mati sem hefur slegið í gegn á mínu heimili.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira