Heim MicrosoftWindows 7 Uppfærsla 2: Spotify á Íslandi

Uppfærsla 2: Spotify á Íslandi

eftir Jón Ólafsson

Uppfærsla 1: Tengill í WP 7.5 og 8 neðst í pósti
Uppfærsla 2: Það var að koma uppfærsla sem býður uppá skroll áfram og afturá bak í lögum (visual scrubber) ásamt litlum buggfixum

Spotify er skýþjónusta þar sem hægt er að streyma lögum í tölvu eða snjalltæki.

  1. Ókeypis útgáfa er með ótakmarkaðri tónlist en með auglýsingum og virkar bara í tölvunni.
  2. Ef notandi borgar 5 Evrur á mánuði þá er hægt að losna við auglýsingarnar en virkar bara í tölvunni.
  3. Fyrir 10 Evrur á mánuði fær notandi ótakmörkaða tónlist (online og offline) án auglýsinga, hægt er að hlusta á Spotify í öllum tækjunum þínum. Það eru til forrit fyrir PC, Windows Phone, iOS og Android.

Spotify er löglegt forrit sem starfar í fullri samvinnu við tónlistabransan og er ánægjulegt að sjá þjónustuna loksins virka á Íslandi. Þetta er stórt skref en núna bíðum við bara eftir Netflix, Hulu og Pandora svo eitthvað sé nefnt.

Hér er kynningarmyndband frá Spotify sem gert var fyrir íslenskan markað

 

Sæktu Spotify fyrir

Windows tölvuna

Windows Phone 8  

Windows Phone 7.5

Þeir sem eru með önnur stýrikerfi geta fengið upplýsingar á Simon.is eða leitað í markaði.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

1 athugasemd

Haraldur Helgi 19/04/2013 - 21:06

Ég faaaagna þessu mjög, Spotify er komið í öll mín tæki og hefur verið í gangi frá því þeir opnuðu hér heima. Yndislegt!

Reply

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira