Nokia Lumia 720

eftir Jón Ólafsson

Fyrir ekki svo löngu kom Nokia með viðbót í Lumia línuna sína þegar þeir tilkynnt Lumia 720. Eftir að hafa prófað Nokia Lumia 620, 820 og 920 þá var ég nokkuð spenntur að sjá og prófa miðlungs (mid-range) Windows Phone 8 snjallsíma. Það verður því gaman að sjá hvernig Lumia 720 passar inn í Lumia línuna.

Lumia 720 hefur fengið góðar viðtökur í tækniheiminum sem góður „mid-range“ sími en símtækið kostar um 65 þúsund (Júní 2013).

Það eru ekki margir miðlungs- eða ódýrir Windows Phone 8 símar á markaðnum og Lumia 720 því kærkomin viðbót.

 

Hönnun og vélbúnaður

Ólíkt Lumia 620 þá verð ég að segja að Nokia Lumia 720 er mjög „sexy sími“ en eintakið sem ég fékk til prófunar var skær gulur og vandist mjög fljótt. Í kassanum kemur skjár og símtækið (samfast) sem leggst síðan inn í þunna og létta plastskel. Þessa plastskel er hægt að fá í nokkrum litum, svartur, blár, gulur, grænn, bleikur og hvítur.

 

Það finnst vel að skelin er úr plasti en hún er samt ekki „ódýr“ viðkomu. Síminn er með 4.3″ skjá og eins og með Lumia 620 og 820 þá leggst hann inn í plastskelina sem hylur bakhlið og hliðar ásamt því að brúnir umleika skjáinn á framhlið.

Lumia 720 er mjög léttur og nettur sími en hann er svipað léttur og iPhone 5 eða aðeins 128 gr. Ummál símans er 12.79 x 6.75 x 0,9 cm og er hann því mjög þunnir og fer einstaklega vel í vasa

Lumia-720-takkar

Takkarnir á honum eru þrír eins og á öðrum Windows Phone símum, sér takki fyrir myndavél, „powertakki“ ásamt hækka & lækka takka. Takkarnir eru úr keramik sem segir mér að þeir séu sterkir og rispufrýir.

 

Framhliðin fer nær öll undir skjáinn fyrir utan að ysti byrjar skelin sem umleikur símann eins og fyrr segir. Á framhlið eru einnig  þrír takkar eins á öllum Windows Phone símum, bakka, heim og leit. Hliðar símans sem og bakhlið eru kúpt sem gerir það að verkum að hann liggur vel og örugglega í hendi.

Lumia-720-Framhlid-1

Lumia 720 er með Dual-Core 1GHz Snapdragon S4 örgjörva og er með 512MB í vinnsluminni eins og Lumia 620. Þessi örgjörvi skilar sínu ágætlega og hef ég aldrei orðið var við hökt í stýrikerfinu sjálfu. Það er helst þegar ég opna sum forrit eða þyngri leiki sem ég verð var við hversu hægvirkari hann er miðað við Lumia 820/920, en það er minna vinnsluminni sem veldur því. Þegar Lumia 720 er búinn að ræsa forritinu upp þá virkar það vel.

Ég finn því mun á Lumia 720/620 samanborið við Lumia 820/920 en þessi munur er að mínu mati eðlilegur þar sem ég er að bera þá saman við síma sem kosta helmingi meira og ættu því að vera öflugri að öllu leiti.

Lumia 720 er 8GB innra geymslurými sem nýtist undir stýrikerfi eða ljósmyndir og annað margmiðlunarefni. Síminn er einnig með rauf fyrir Micro-SD kort sem styður allt að 64GB kort og er því einfallt og nokkuð ódýrt að fara með geymslurýmið í 72GB sem verður að teljast mjög gott. Um leið og ég setti 32GB kort í símann þá bauð símtækið uppá að vista allar myndir og videóupptökur beint á SD.

Til viðbótar er Windows Phone beintengt við SkyDrive og þar bætist við ókeypis 7GB í skýinu sem nýtist til að taka afrit af símanum sjálfum eða af ljósmyndum og myndböndum.

Einfallt er að kaupa sér meira Skydrive geymslupláss

  • auka 20GB kosta um 1200 krónur á ári
  • auka 50GB kosta um 3200 krónur á ári
  • auka 100GB kosta um 6400 krónur á ári

Verð miðast við gengi Sterlingspunds 11.06.2013

 

 

Tengimöguleikar

Lumia 720 er með Micro USB tengi (USB 2.0) þannig að einfalt er að tengja símann við tölvu til að sækja eða setja á hann efni. Þetta er kostur þar sem notendur geta notað allar Micro USB snúrur sem þeir eiga fyrir, það er ekkert sérstakt tengi eða millistykki sem þarf. Microsoft býður uppá forrit sem hleðst sjálfkrafa niður við fyrstu tengingu (við Win8) en hægt er að nálgast efnið af símanum í gegnum “My Computer” ef notendur vilja það frekar.

Síminn er með 3.5 mm heyrartólstengi ásamt því að bjóða uppá Bluetooth 3.0 svo eitthvað sé nefnt.

 

Lumia 720 er vitanlega með þráðlausu neti (WiFi) eins og við er að búast sem styður 802.11 a/b/g/n og allar helstu dulkóðanir sem skipta máli eins og: WPA2 (AES/TKIP), WPA, WPA-Personal, WEP, WPA2-Personal, WPA-Enterprise, WPA2-Enterprise, PEAP-MSCHAPv2, EAP-SIM, EAP-AKA

Lumia 720 er einnig með NFC kubb sem býður meðal annars uppá borganir, samnýtingu gagna, og notkun NFC merkja. Nokia Lumia 720 mun ekki styðja 4G netið sem fljótlega verður tekið í gagnið hérlendis en styður vitanlega 3G sem kemur til með að virka áfram.

 

Rafhlaða og lyklaborð

Eftir að hafa orðið fyrir vonbrigðum með rafhlöðuendingin í Lumia 620 þá kom rafhlaðan í Lumia 720battery mér á óvart. Lumia 720 er með 2000mAh Li-Ion rafhlöðu sem dugði mér alltaf í gegnum daginn þó svo að ég sé ávallt tengdur við WiFi eða 3G og að samstilla 3 EAS tölvupóstreikninga.

Ég tók mikið af myndum og vafraði helling á netinu og Twitter/Facebook í þessum prófunum og ég náði aldrei að tæma rafhlöðuna. Ég lenti einnig í verkefni þar sem ég hafði engan tíma til þess að fikta í símanum og þá náði ég  tveimur sólarhringum á einni hleðslu

Rafhlaðan er útskiptanleg sem er kostur á svona síma, hægt er að skipta henni út þegar líftíminn hennar er að styttast eða til að skipta út fyrir stærri rafhlöðu ef hún býðst. Hér má sjá nokkur ráð sem geta lengt rafhlöðuendinguna töluvert.

 

Það er hægt að kaupa aukalega hlíf sem fer yfir síman (cover) sem virkar þá sem þráðlaus hleðsla.

720-tradlaus-hledsla-1

 

Lumia 720 er eins og aðrir Windows Phone 8 símar með fullt Qwerty lyklaborð og kemur það vel út á 4.3″ skjá. Lyklaborðið er ekki enn komið með íslensku útliti en allir íslensku stafirnir eru engu að síður til staðar. Sem dæmi til að skrifa Þ þá er T haldið inni, til að skrifa Ð þá er D haldið inni o.s.frv.

 

Hljóð og mynd

Skjárinn í Lumia 720 er 4.3″ ClearBlack IPS skjár sem styður upplausn uppá 800×480 punkta (WVGA) og er hann því 15:9. Punktaþéttleikiinn er 217ppi sem er nokkuð gott en færri enn á Lumia 620. Myndir, texti og flest sem ég prófaði var skýrt og fallegt á þessum skjá ásamt því að allt margmiðlunarefni sem ég prófaði kom vel til skila. Skjáskroll og almenn gagnvirkni var góð og brást síminn hratt og vel við öllu sem ég gerði á honum. Tók sérstaklega eftir að skjárinn í Lumia 720 (eins og á 820/920) var góður í sólarljósi og því vel nothæfur utandyra.

Nokia-Lumia-720-bakhlid-2

Nokia hafur náð mjög langt með myndavélar í snjalltækjum og er myndavélin í Nokia Lumia 920 að flestra mati sú allra besta á markaðnum í dag. Myndavélin í Lumia 720 er með Carl Zeiss linsu, hún er 6.7 MP eða 2848 x 2144 pixlar (f/1.9), 4x stafrænum aðdrætti og góðu flassi. Myndavélin skilaði sínu mjög vel og betra en ég er vanur hjá “venjulegum” snjallsímum á svipuðu verði.

Fljótlega mun ég búa til albúm með samanburðar myndum úr Lumia 620, 720, 820 og 920 (tengill væntanlegur).

Lumia 720 tekur eins og fyrr segir ágætar ljósmyndir ásamt því að geta tekið upp 720p @30 ramma videóupptöku. Lumia 720 er einnig með 1.3 MP myndavél á framhlið sem tekur myndir í allt að 1280 x 960 (f/2.4) sem hentar ágætlega fyrir myndsímtöl (t.d. Skype).

Til að styðja við hljóðupptökur og til að bæta hefðbundin talgæði notar Nokia tvo hljóðnema sem skilar sér í ágætum gæðum á hljóðupptökum. Símtalsgæðin eru ágæt en þessir tveir hljóðnemar vinna saman að því að eyða vind- og umhverfishljóðum úr samtölum (Noise cancellation).

Hátalarar símans olli mér vonbrigðum en hann skilaði í besta falli þokkalegum hljómi við símtöl með hátalara en er alls ekki ætlaður til tónlistarafspilunar að mínu mati. Hljóðið var oft bjagað við tónlistarspilun og jafnvel við venjulegar tilkynningar (vekjari eða símhringing).

 

Margmiðlun og leikir

Margmiðlunarupplifun á Lumia 720 er mjög góð og réð hann við að spila “allt” það sem ég ætlaði honum. Hvort sem það var bíómynd af innra-minni eða SD-Korti, Youtube video eða aðra vefstrauma. Lumia 720 er eins og aðrir Windows Phone 8 símar með góðum tónlistarspilara og með XBOX music eða Spotify áskrift þá ertu kominn með öfluga tónlistarkosti. Einfalt er einnig að bæta við tónlist eða bíómyndum beint af tölvu og ætti Lumia 720 að ráða við flest allt sem þú gætir vilja nota hann í.

Nokia-Lumia-720-bakhlid

Sem margmiðlunartæki þá er kostur að hafa Micro-SD rauf þannig að margmiðlunarefni geti allt verið á stóru SD korti.

 

Hugbúnaður og samvirkni

Allir Windows Phone 8 símar koma með glæsilegri hugbúnaðarsvítu sem gerir það að verkum að mig vantaði ekki mörg forrit til viðbótar. Sem dæmi um forrit sem fylgja ókeypis með má nefna Office Pakkinn með Word, Excel og PowerPoint, One Note, Here svítan ásamt þessu venjulega eins og tölvupóstforrit, pdf lesara, reiknivél, dagbók, tengiliðir, vekjaraklukka o.s.frv.720-navigation

Office pakkinn gerir notanda kleyft að vinna með Word, Excel og PowerPoint skjöl beint af SharePoint, SkyDrive eða af símanum sjálfum. Hægt er að breyta þeim, senda með tölvupósti eða bara vista í skýið án þess að þurfa að kaupa auka hugbúnað. Ég hef aldrei kynnst svona góðri skjalavinnslu á snjallsíma áður. Vafrinn í Windows Phone 8 er gríðarlega góður og að mínu mati einn sá besti af þeim vöfrum sem fylgja með snjallsímum í dag. Chrome fyrir Android er reyndar mjög góður en ég á erfitt með að meta hvorn mér líkar betur við.

Ef þig vantar fleiri forrit þá býður Microsoft Store upp á 150 þúsund forrit (11.06.2013) sem er jú minna en Google og Apple bjóða uppá en ég verð samt að segja að ég fann forrit fyrir allt sem mig vantaði. Forrit sem ég sótti mér til viðbótar voru Instance Twitter  –  Facebook Beta  (eða official) – Foursquare  (eða 4th & Mayor) – SophieLens for NokiaWeather Flashlight XT112 Viper Boltagáttin Fuse Ciel

En hér er ágætislisti yfir forrit sem Íslenskir WP notendur nota hér má lesa um Nokia Here leiðsöguforrit sem fylgja ókeypis með öllum Nokia Lumia símtækjum

 

Niðurstaða

Nokia Lumia 720 er mínu mati skemmtilegur sími sem lítur vel út og leysti vel þau verkefni sem ég lagði fyrir hann. Það eru alltaf málamiðlanir í mid-range tækjum samanborið við flagskipin en að mínu mati eru þær ekki stórvægilegar á Lumia 720. Aðalókostur hans er að vera “bara” með 520 MB í vinnsluminni og vegna þessa er hann stundum smá tíma að ræsa stærri forrit og leiki. Þarf samt að ýtreka síminn var sprækur og fínn í stýrikerfinu, tölvupósti, Navigation og öðrum innbyggðum forritum.

 

 

Lumia 720 stenst fyllilega samanburð við síma á svipuðu verði og er mjög aðvellt að mæla með honum. Í raun og veru er erfitt að finna síma sem býður uppá sambærilega kosti og virkni á þessu verði en ég sé Lumia 720 sem mjög góðan síma fyrir þá sem vilja fallegt símtæki sem “getur allt”.

Einnig er Lumia 720 eins og aðrir Windows símar kjörinn fyrir fyrirtæki en með Windows Phone 8 fá fyrirtæki mjög góða tölvupóstvirkni ásamt möguleikan á því að starfsmenn geti skoðað og unnið í Office skjölum beint af símanum símum. Windows Phone 8 stýrikerfið er mjög stapílt og virkaði hnökralaust á Lumia 720 en stýrikerfið byggir á lifandi reitum sem gerir símann persónulegan og þæginlegan að mínu mati.

 

Að lokum þá er hér myndband þar sem Joe Belfiore yfirmaður Windows Phone deildar Microsoft fer nokkuð ýtarlega yfir kosti WP8.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira